Síða 1 af 2
Bestu "midrange" android símarnir??
Sent: Mán 28. Mar 2011 13:46
af Hauxon
Síminn minn var að lenda í þvottavélinni og ég þarf því að fá mér síma. Ég er ekki alveg að tíma að eyða 100þ í síma þ.a. ég er að spá í einhverjum eitthvað ódýrari.
Sony Ericsson X8i
Frekar ódýr og bara með 1.6. ...er ekki hægt að uppfæra sjálfur?
LG Optimus One
Las einhvernsstaðar að snerti skjárinn á þessum virkaði ekki nógu vel.
HTC Wildfire
Aðeins dýrari en hinir.
Nokia C5
Ekki android, en kannski fínn samt??
Hvað segiði??? Hvað á maður að kaupa og hvers vegna?
Re: Bestu "midrange" android símarnir??
Sent: Mán 28. Mar 2011 14:04
af Orri
Bróðir minn var að fá sér Optimus One.
Okkur finnst hann alveg frábær sími í alla staði.
Reyndar eyðir hann batteríinu frekar hratt (í mikilli notkun þá þarf að hlaða hann einusinni á dag), en bróðir minn setur hann alltaf í samband yfir nótt og tekur því ekki mikið eftir þessu.
Annars er snertiskjárinn bara mjög fínn (finn lítinn mun á honum vs iPhone-inn minn).
Örgjörvinn í símanum er reyndar alveg á mörkunum (höktir stundum í Angry Birds og stórum vefsíðum í browsernum).
Við skoðuðum fullt af svona mid-range android símum og Optimus One var sá sem okkur leist best á.
Gætir líka skoðað notaða iPhone 3G fyrir svipaðann pening (jafnvel 3GS ?)
Re: Bestu "midrange" android símarnir??
Sent: Mán 28. Mar 2011 14:12
af Hauxon
Jamm, ég hef líka verið að spá hvort Android með svona litlum skjá sé nógu nothæfur, þ.a. til að skoða vefsíður osfr. Notagildið í stóru símunum er nokkuð augljóst, vasatölva og sími. En er ekki litlu Androidarnir bara símar??
Re: Bestu "midrange" android símarnir??
Sent: Mán 28. Mar 2011 14:18
af gissur1
Hauxon skrifaði:Jamm, ég hef líka verið að spá hvort Android með svona litlum skjá sé nógu nothæfur, þ.a. til að skoða vefsíður osfr. Notagildið í stóru símunum er nokkuð augljóst, vasatölva og sími. En er ekki litlu Androidarnir bara símar??
Að mínu mati er 3.7" algjört minimum í dag, helst að hann sé 4.3".
En það er bara mitt mat.
Re: Bestu "midrange" android símarnir??
Sent: Mán 28. Mar 2011 14:19
af GuðjónR
Hauxon skrifaði: En er ekki litlu Androidarnir bara símar??
Símar fyrir rasshausa.
Re: Bestu "midrange" android símarnir??
Sent: Mán 28. Mar 2011 14:21
af kubbur
ég veit að ég get aldrei farið til baka eftir að hafað keypt mér 4.3" síma
Re: Bestu "midrange" android símarnir??
Sent: Mán 28. Mar 2011 14:23
af MarsVolta
Sko ef þú ætlar að nota hann mikið til að ráfa á netinu, þá verðuru að fá þér síma með stórum skjá.
En annars átti ég HTC wildfire, fáðu þér frekar LG optimus one eða Samsung Galaxy 3 (fæst hjá símanum). En í guðanna bænum ekki fá þér Nokia, stýrikerfið sem er í þessum símum er algjört drasl! fyrir utan hvað það er ljótt
.
Ég mæli samt með Samsung Galaxy S ef þú átt efni á honum
, ég á eitt svona stykki og þetta er besti sími sem ég hef prófað
Re: Bestu "midrange" android símarnir??
Sent: Mán 28. Mar 2011 14:25
af Dormaster
ég er með Optimus one og mér finnst ekkert að honum skil ekki afhverju fólk er að segja að snerti skjárinn sé eitthvað lélegur.. en ég fékk að prófa Wildfire og mér fannst optimus one hundrað sinnum betri. wildfire hökktaði smá og síðan fannst mér ömurleg gæði á skjánum í wildfire og skjárinn var minni en á optimus one.
mér leyst allaveganna best á Optimus one.
Re: Bestu "midrange" android símarnir??
Sent: Mán 28. Mar 2011 14:28
af intenz
Hauxon skrifaði:Sony Ericsson X8i
Frekar ódýr og bara með 1.6. ...er ekki hægt að uppfæra sjálfur?
Getur uppfært úr 1.6 í 2.1, sem er betra jú en þú færð mest út úr 2.2 þannig ég myndi velja síma með þá útgáfu eða nýrri.
Hauxon skrifaði:LG Optimus One
Las einhvernsstaðar að snerti skjárinn á þessum virkaði ekki nógu vel.
Það er ekki á þessum sem snertiskjárinn er slappur, heldur er það forveri hans, LG Optimus GT540.
LG Optimus One heitir P500, sem er mjög fínn sími fyrir peninginn. Hann kemur með 2.2 og er uppfæranlegur í 2.3, en aftur á móti styður chipsetið í honum ekki Flash. Það er svona eini "ókosturinn" sem ég sé við hann.
Þetta er síminn sem ég myndi fá mér ef ég væri að kaupa mér Android síma með tilliti til kostnaðar.
Hauxon skrifaði:HTC Wildfire
Aðeins dýrari en hinir.
Dýrari en samt með slakari örgjörva heldur en Optimus One og einungis Android 2.1.
Re: Bestu "midrange" android símarnir??
Sent: Mán 28. Mar 2011 14:35
af Hauxon
Ástæðan fyrir því að ég setti Nokia þarna inn er nú bara að ég hef átt bæði Nokia og Sony Ericsson og Nokia símarnir hafa alltaf enst betur og verið með betra samband en SE. ég hef t.d. oft verið í stökustu vandræðum með að tala í gamla SE k660i símann minn ef ég er innandyra.
Re: Bestu "midrange" android símarnir??
Sent: Mán 28. Mar 2011 14:36
af wicket
Optimus One er besti miðlungs Android sími sem hægt er að fá. Það er bara þannig.
Frábærir simar og LG hafa staðfest að 2.3 kemur í hann.
Re: Bestu "midrange" android símarnir??
Sent: Mán 28. Mar 2011 14:41
af MarsVolta
intenz skrifaði:Dýrari en samt með slakari örgjörva heldur en Optimus One og einungis Android 2.1.
Ég er 99% viss að ég hafi verið með android 2.2 á wildfire símanum hjá mér, þurfti ekki að gera meira en að fara í system update, þá fór hann sjálfkrafa í 2.2
.
Re: Bestu "midrange" android símarnir??
Sent: Mán 28. Mar 2011 14:41
af Daz
Optimus One er kominn officially í 2.2.2
Aftur á móti virkar ekki flash í honum, skilst að 10.2 muni ekki virka.
Re: Bestu "midrange" android símarnir??
Sent: Mán 28. Mar 2011 15:09
af Nothing
LG optimus one mæli ég með, félagi minn á einmitt HTC wildfire og mér finnst skjámyndinn lélegt meðað við Optimus one.
Re: Bestu "midrange" android símarnir??
Sent: Mán 28. Mar 2011 15:54
af wicket
Daz skrifaði:Optimus One er kominn officially í 2.2.2
Aftur á móti virkar ekki flash í honum, skilst að 10.2 muni ekki virka.
Virkar ekki eins og er. Adobe setti kröfu um ARM v7 CPU eða meira en Optimus One er með v6. Hann hefur nóg CPU power til að keyra flash en Adobe stjórnar þessu.
Menn finna oftast leiðir framhjá þessu, hún er ekki komin en hún kemur á endanum. Það er alltaf þannig.
Þangað til er hægt að skoða flash content með SkyFire browsernum þó það sé ekki alveg fallegasta lausnin.
Re: Bestu "midrange" android símarnir??
Sent: Mán 28. Mar 2011 16:34
af Hauxon
Takk fyrir þetta. Skoða þetta betur í kvöld, tékka á hvað hr. internet segir.
Re: Bestu "midrange" android símarnir??
Sent: Mán 28. Mar 2011 18:36
af benson
Fáðu þér notaðan Nexus One á ebay.
Re: Bestu "midrange" android símarnir??
Sent: Mán 28. Mar 2011 19:01
af Daz
Reyndar eyðir hann batteríinu frekar hratt (í mikilli notkun þá þarf að hlaða hann
einusinni á dag), en bróðir minn setur hann
alltaf í samband yfir nótt og tekur því ekki
mikið eftir þessu. Annars er snertiskjárinn bara mjög fínn
Minn endist í 3-4 daga á einni hleðslu, reyndar nota ég símann kannski ekki eins og typiskur notandi en samt geri ýmislegt.
Re: Bestu "midrange" android símarnir??
Sent: Mán 28. Mar 2011 19:48
af audiophile
Optimus One er stálið. Færð ekki meiri Android síma fyrir peninginn en þennan. Ef þú vilt eitthvað betra er ekkert annað þess virði að skoða fyrr en á um 100þ og yfir.
Re: Bestu "midrange" android símarnir??
Sent: Fim 31. Mar 2011 22:04
af Hauxon
Keypti LG Optimus One og skrifa thetta ur honum. Er mjog sattur! :-D
Re: Bestu "midrange" android símarnir??
Sent: Fim 31. Mar 2011 22:09
af steinarorri
Hauxon skrifaði:Keypti LG Optimus One og skrifa thetta ur honum. Er mjog sattur! :-D
Mæli með Scandinavian keyboard og Icelandic dictionary
Re: Bestu "midrange" android símarnir??
Sent: Fim 31. Mar 2011 23:00
af FriðrikH
Besta bang for the buck er Orange San Francisco (ZTE Blade), er að fá betri review en Optimus one og er ódýrari (þarf þó að panta hann að utan):
http://cgi.ebay.com/ANDROID-2-3-ORANGE-SAN-FRANCISCO-NEW-PHONE-ZTE-EXTRAS-/300539512171?pt=UK_MobilePhones_MobilePhones&hash=item45f98d056b súper skjáir á þessum símum.
Ég var að velta þessum fyrir mér vs. Optimus One og er mjög ánægður að hafa fengið mér þennan, mæli með að þú gúglir hann allavega og skoðir hann vs öðrum símum í sama verðflokki.
Re: Bestu "midrange" android símarnir??
Sent: Fim 31. Mar 2011 23:05
af Zethic
intenz skrifaði:Hauxon skrifaði:HTC Wildfire
Aðeins dýrari en hinir.
Dýrari en samt með slakari örgjörva heldur en Optimus One og einungis Android 2.1.
Wildfire fékk 2.2 fyrir mörgum mánuðum.
Ég keypti minn síðasta sept. og er mjög ánægður með hann. Android er án efa skemmtilegasta stýrikerfið.
Mæli með honum !
Re: Bestu "midrange" android símarnir??
Sent: Lau 02. Apr 2011 18:11
af AronOskarss
Mæli núna með þessum sem Friðrik var að benda á lookar vel á blaði allavegana.
Re: Bestu "midrange" android símarnir??
Sent: Lau 02. Apr 2011 22:11
af Narco
Skal selja þér minn Desire ef þú hefur áhuga. Hann er bara nokkura mánaða gamall. Sendu mér pm ef þú vilt tékka á þessu.