Síða 1 af 2

android 3G beint í tölvuna..

Sent: Mið 16. Mar 2011 09:53
af Dormaster
ég er að fara til London núna á fimmtudaginn og ég mun ekki vera með neitt internet svo að ég var að pæla hvort að einhver kann að gera einhvern Hotspot/tengja beint í tölvuna fyrir Ubuntu 10,10 eða win7 (betra ef það er ubuntu).
ég reyndi þetta fyrir stuttu án árangurs, svo að ef einhver kann að nota 3g á símanum og tengja beint í tölvuna væri frábært ef hann myndi deila því hér með mér ;)
p.s. er með Android LG optimus one (p500)

Re: android 3G beint í tölvuna..

Sent: Mið 16. Mar 2011 10:06
af Daz
Á windows minnir mig að það hafi verið nóg að tengja símann og tölvuna saman með bluetooth eða USB. Þá fann tölvan sjálf "modem" í símanum og notaði það ef engin önnur tenging var í boði.

Re: android 3G beint í tölvuna..

Sent: Mið 16. Mar 2011 10:16
af blitz
Froyo 2.2 er með þetta

Re: android 3G beint í tölvuna..

Sent: Mið 16. Mar 2011 10:18
af ZiRiuS
Ég fann þessa klausu á þessari vefsíðu: http://m.economictimes.com/PDAET/articl ... 697345.cms

Using an Android device

Android has the most options when it comes to sharing an internet connection via Wi-Fi. For starters, any phone or tablet with Android version 2.2 or later has the personal Wi-Fi hotspot feature built in by default (without any restrictions). To activate it, go to Settings > Wiress and Network > Mobile AP. Once you activate Mobile AP, you can configure it with a name, add an access password and even hide the network so that only trusted devices can connect to it.

There are many options for older Android devices too. PdaNet is an option for USB and Bluetooth tethering (It was earlier also available for Palm and Windows Mobile phones). You can download the app directly from the Android App Market, connect the device to your computer and access the data connection. Another open source project is Android Wi-Fi Tether (available from code.google.com/p/android-wifi-tether). The app is available even for older devices with Android version 1.1 and 1.5 (cupcake). However, to use the Android Wi-Fi Tether app with Android version 2.1, you need to have a ‘rooted’ device. Rooting an Android phone is a process similar to jailbreaking on Apple iOS devices. It allows more access to the device’s hidden settings. Rooting is not illegal but will definitely void the warranty on the phone.

Re: android 3G beint í tölvuna..

Sent: Mið 16. Mar 2011 10:21
af Daz
blitz skrifaði:Froyo 2.2 er með þetta

Ef menn vilja DEILA tengingunni í gegnum wifi (wifi hotspot). Að veita tengingunni áfram í gegnum USB er allt annað mál. Annars er Optimus one með 2.2 :-$

Re: android 3G beint í tölvuna..

Sent: Mið 16. Mar 2011 10:22
af Dormaster
blitz skrifaði:Froyo 2.2 er með þetta

ég var á akureyri og ég prófaði bæði að gera hotspot og tengja hann beint við.. tölvan fann hann bara þegar að ég gerði hotspot en ég komst samt sem áður ekki á netið.. :/

Re: android 3G beint í tölvuna..

Sent: Mið 16. Mar 2011 10:37
af ponzer
Þetta heitir "Tethering & portable hotspot" og er aðeins í 2.2 og uppúr. Ég er búinn að prófa þetta og þetta svínvirkaði hjá mér, er hjá Símanum.

Re: android 3G beint í tölvuna..

Sent: Mið 16. Mar 2011 11:21
af Dormaster
okeei. tölvan finnur símann nema ég er ekki með neina drivera.. og tölvan finnur þá ekki :/
vitiði um einhverja ?

Re: android 3G beint í tölvuna..

Sent: Mið 16. Mar 2011 11:23
af dori
Náðu í forritið frá LG til að sýsla með símann (uppfærslur og stöffs).

Ég gæti trúað að það sé þetta.

Re: android 3G beint í tölvuna..

Sent: Mið 16. Mar 2011 11:52
af ponzer
Dormaster skrifaði:okeei. tölvan finnur símann nema ég er ekki með neina drivera.. og tölvan finnur þá ekki :/
vitiði um einhverja ?

Ef þú notar 3G tethering þá þarftu ekkert drivera eða snúru.. er síminn þinn ekki með Android 2.2 ?

Re: android 3G beint í tölvuna..

Sent: Mið 16. Mar 2011 12:30
af berteh

Re: android 3G beint í tölvuna..

Sent: Mið 16. Mar 2011 13:01
af Dormaster
ponzer skrifaði:
Dormaster skrifaði:okeei. tölvan finnur símann nema ég er ekki með neina drivera.. og tölvan finnur þá ekki :/
vitiði um einhverja ?

Ef þú notar 3G tethering þá þarftu ekkert drivera eða snúru.. er síminn þinn ekki með Android 2.2 ?

þegar ég fer í tethering & portable hotspot fæ ég upp 4 valmöguleika
1. USB tethering
2.portable Wi-Fi
3.portable Wi-Fi Hotspot settings
4.Help

þegar ég fer í portable Wi-Fi fæ ég þann valmöguleika að setja password nema ég get ekki ýtt á save einungis close.
þegar ég fer í USB tethering þarf USB snúrann að vera tengd nema mig vantar alla drivera.. er að vinna í því að ná í þá :D
síðan get ég ekki farið í portable Wi-Fi Hotspot settings.. I don't know why :/

Re: android 3G beint í tölvuna..

Sent: Mið 16. Mar 2011 13:21
af ZiRiuS
Ég fiktaði í þessu áðan þar sem ég á eins síma og þú Dormaster, ég enableaði "Portable Wi-Fi hotspot" setti inn passa og skellti þessu upp, þá sá ég þetta í tölvunni en gat ekki tengst því, prufaði bæði með og án encryption en ekkert virkaði.

Ég ætla að halda áfram að fikta í þessu og sjá hvað setur.

Re: android 3G beint í tölvuna..

Sent: Mið 16. Mar 2011 13:21
af Dormaster
ZiRiuS skrifaði:Ég fiktaði í þessu áðan þar sem ég á eins síma og þú Dormaster, ég enableaði "Portable Wi-Fi hotspot" setti inn passa og skellti þessu upp, þá sá ég þetta í tölvunni en gat ekki tengst því, prufaði bæði með og án encryption en ekkert virkaði.

Ég ætla að halda áfram að fikta í þessu og sjá hvað setur.

okeei Takk fyrir þetta ZiRiuS :)
EDIT;
ég er búinn að vera að fikta eitthvað í þessu og ég náði honum inn eins og þú og næ að tengjast símanum en ég fæ bara Limited access.. :(

Re: android 3G beint í tölvuna..

Sent: Fim 17. Mar 2011 12:12
af Dormaster
einhver sem getur lagað þetta er bara að fá eitthvað limited access.. næ að tengjast þessu líka í linux en sama vandamál næ ekki að fara á netið :(

Re: android 3G beint í tölvuna..

Sent: Fim 17. Mar 2011 12:32
af Nekeroz
Dormaster skrifaði:einhver sem getur lagað þetta er bara að fá eitthvað limited access.. næ að tengjast þessu líka í linux en sama vandamál næ ekki að fara á netið :(

Ég mundi ath með ip tölur og sjá hvort það er rétt gateway og dns á þessu öllu saman og hvort símin og hotspotið séu á sama subneti

Re: android 3G beint í tölvuna..

Sent: Fim 17. Mar 2011 12:58
af Dormaster
Nekeroz skrifaði:
Dormaster skrifaði:einhver sem getur lagað þetta er bara að fá eitthvað limited access.. næ að tengjast þessu líka í linux en sama vandamál næ ekki að fara á netið :(

Ég mundi ath með ip tölur og sjá hvort það er rétt gateway og dns á þessu öllu saman og hvort símin og hotspotið séu á sama subneti

Ekki vill svo til að þú kunnir það [-o<

Re: android 3G beint í tölvuna..

Sent: Fim 17. Mar 2011 13:39
af topas
Eg er með LG optimus 2.1 og setti upp portible hot spot og hann virkar mjög vel. Ég þurfti að root-a símann til að þetta virkaði, getur verið að það þurfi líka á 2.2?

Re: android 3G beint í tölvuna..

Sent: Fim 17. Mar 2011 15:02
af Dormaster
Okok.. eg rootadi minn en eg fann engan mun, eg notadi eih z4 eitthvad en eg fann engan mun en eg reyni tetta.
P.s. fekkstu limited access?

Re: android 3G beint í tölvuna..

Sent: Fim 17. Mar 2011 15:04
af Frantic
Ég væri skíthræddur um að fá feitan símreikning þegar ég kæmi heim...
Ég slekk helst á símanum þegar ég fer til útlanda(og muna að taka talhólfið af).
Maður hefur heyrt of mikið af hryllingsögum.

Re: android 3G beint í tölvuna..

Sent: Fim 17. Mar 2011 15:08
af gissur1
JoiKulp skrifaði:Ég væri skíthræddur um að fá feitan símreikning þegar ég kæmi heim...
Ég slekk helst á símanum þegar ég fer til útlanda(og muna að taka talhólfið af).
Maður hefur heyrt of mikið af hryllingsögum.

Seinnitíma vandamál ;)

Re: android 3G beint í tölvuna..

Sent: Fim 17. Mar 2011 15:25
af dori
Best í heimi að fá sér fyrirframgreitt símkort þar sem maður er að dvelja. Ég var í Ástralíu um jólin og keypti símkort á ~5000 kall sem gaf mér 3GB data og fuuuullt af mínútum/sms (ég gat talað við fólk hérna heima í klukkutíma þar og notað símanúmerið "erlendis" til að hringja og allt í góðu). Algjörlega þess virði.

Re: android 3G beint í tölvuna..

Sent: Fim 17. Mar 2011 15:35
af Frantic
Ég var að prófa 3G router um daginn.
Ég hringdi í Tal og sagði þeim að breyta númerinu í frelsi.
Svo setti ég tvöþúsund kall inná frelsið daginn eftir þar sem konan sem ég talaði við sagði að þetta myndi breytast í frelsi daginn eftir.
Allt í góðu með það. Svo notuðu foreldrar mínir routerinn yfir heila helgi.
Þegar þau komu heim þá var ég hissa að frelsið kláraðist ekki svo ég loggaði mig inná tal.is og ath stöðuna.
Þá var sim kortið ennþá í reikning(tvær vikur seinna) og yfir 7þúsund kr bara yfir þessa helgi.

Ég hringdi í tal til að spyrja hvað væri í gangi hjá þeim og fékk ekkert nema leiðindi frá sömu konu og ég talaði við um að breyta þessu.
Hún sagði mér að bíða og svo kom hún aftur og sagði já þetta gleymdist en þetta ætti að vera komið á morgun.
Ég varð mjög pirraður því þetta var augljóslega þeirra mistök og hún ætlaði að skella á mig með afsökunarbeiðni og loforð um að þessu yrði breytt daginn eftir.

Þetta endaði svo loksins með að ég fékk að tala við einhvern sem gat gert eitthvað í þessu máli sem algjörlega bjargaði málinu svo ég þurfti bara að borga 2þús.
Segið svo að það borgi sig ekki að vera með leiðindi við þessi símafyrirtæki :happy :megasmile

Re: android 3G beint í tölvuna..

Sent: Fim 17. Mar 2011 15:39
af dori
JoiKulp skrifaði:Ég var að prófa 3G router um daginn.

Tal eru náttúrulega í ruglinu. Að gleyma þessu er ekki boðlegt. Ég hringdi líka einhverntíma í þá þegar mér fannst ADSLið hjá mér vera skuggalega stabílt í lágri tölu og þá var mér sagt að einhver virtist hafa cappað tenginguna hjá mér (einhverjar tilraunir, ég man ekki) og að það hefði líklega gleymst að breyta því... feeeekar skrýtin skýring.

Ég er feginn að vera kominn til Hringdu :D

Re: android 3G beint í tölvuna..

Sent: Fim 17. Mar 2011 17:21
af Pandemic
Til þess að þú náir sambandi verðuru að vera með netstillingarnar frá símafyrirtækinu þínu og í Settings - Wireless & network settings - Mobile networks verðuru að vera með Data enabled, International data roaming og national data roaming enabled.