Síða 1 af 1

[ÓE]Motorola Razr

Sent: Þri 22. Feb 2011 15:09
af Lexxinn
Ætla fá að breyta þræðinum, hér með óska ég eftir vel með förnum motorola razr, svörtum eða brúnum.

Endilega senda mér pm ef þið eigið einn svona og tilbúnir að láta fyrir lítið.


Veit einhver hvort það sé ennþá hægt að fá þessa síma? Motorola Razor

Mynd

Re: Motorola Razor

Sent: Þri 22. Feb 2011 15:20
af dori
Ég held að það þeir séu ekki lengur í framleiðslu en ég veit svosem ekkert um það. Síminn heitir samt RAZR. Þú ættir að geta fundið hann notaðan hérna heima eða á ebay.

edit: fullt til á ebay eftir stutta leit.

Re: Motorola Razor

Sent: Þri 22. Feb 2011 15:21
af MarsVolta
Þessi sími heitir RAZR ekki razor :P, en það skiptir svo sem ekki máli. Ég hef ekki séð þá í símabúðunum nýlega, en það er hægt að fá þá nýja á ebay á undir 10 þúsund, unlocked og alles ;).
t.d. : http://cgi.ebay.com/NEW-MOTOROLA-RAZR-V ... 4cf55886f9

Re: Motorola Razor

Sent: Þri 22. Feb 2011 15:24
af AntiTrust
Ekki nýjann allavega, enda 6 ára gamalt módel. Hægt að fá þessa síma á klink notaða samt.

Re: Motorola Razor

Sent: Þri 22. Feb 2011 15:29
af BjarniTS
Góðir símar ?

Re: Motorola Razor

Sent: Þri 22. Feb 2011 15:31
af dori
BjarniTS skrifaði:Góðir símar ?

Mig minnir að einhver sem hafði átt fleiri en einn þannig hafi talað um að þeir biluðu mikið. Sel það þó ekki dýrara en ég keypti það og það eru líka mörg ár síðan. Þessi sími yrði allavega ekkert merkilegur í því úrvali sem er til í dag. Motorola er samt með svipaðan síma (svona flip dæmi) sem heitir i9, það er kannski spurning að tékka á því ef menn vilja endilega svona tæki.

Re: Motorola Razor

Sent: Þri 22. Feb 2011 15:31
af AntiTrust
BjarniTS skrifaði:Góðir símar ?


Flottir símar, en óþolandi stýrikerfi.

Re: Motorola Razor

Sent: Þri 22. Feb 2011 15:33
af MarsVolta
dori skrifaði:
BjarniTS skrifaði:Góðir símar ?

Mig minnir að einhver sem hafði átt fleiri en einn þannig hafi talað um að þeir biluðu mikið. Sel það þó ekki dýrara en ég keypti það og það eru líka mörg ár síðan. Þessi sími yrði allavega ekkert merkilegur í því úrvali sem er til í dag. Motorola er samt með svipaðan síma (svona flip dæmi) sem heitir i9, það er kannski spurning að tékka á því ef menn vilja endilega svona tæki.


Ég verð að taka undir þetta, ég hef heyrt að þessir símar bili mikið.

Re: Motorola Razor

Sent: Þri 22. Feb 2011 15:39
af halli7
Ég átti nú svona síma í 2 ár án þess að hann bilaði en það er óþolandi stýrikerfi í honum,

en svo endaði hann í þvottavélinni ](*,)

Re: Motorola Razor

Sent: Þri 22. Feb 2011 16:00
af schaferman
ég á svona alveg eins nema Dolsean gabana GOLD

Re: Motorola Razor

Sent: Þri 22. Feb 2011 16:09
af Jimmy
Mitt svona kvikindi lifði allan andskotann af.. Var með hann í byggingarvinnu á hverjum degi í rúmt ár og ég veit ekki hversu mörg högg hann lifði af.. Missti hann líka einu sinni á bólakaf í poll og hann restartaði sér á núlleinni og kvartaði ekki meir.. Er sennilega ennþá einhversstaðar ofan í skúffu í meiraenlítið sjoddaralegu ástandi.

Re: Motorola Razor

Sent: Þri 22. Feb 2011 16:44
af AntiTrust
schaferman skrifaði:ég á svona alveg eins nema Dolsean gabana GOLD


Þú meinar væntanlega Dolce & Gabbana :lol:

Re: Motorola Razor

Sent: Þri 22. Feb 2011 16:50
af Frost
Var með svona síma og fannst stýrikerfið óþolandi...

Re: Motorola Razor

Sent: Þri 22. Feb 2011 17:01
af Meso
Ég átti svona síma og þar á eftir KRZR sem er svipaður,
fannst þei frábærir, en jú stýrikerfið var pínu "sluggish"

En ég sá ekki alls fyrir löngu á barnalandi að einhevr var með nokkra svona ónotaða til sölu.

Re: Motorola Razor

Sent: Þri 22. Feb 2011 18:10
af Black
félagi minn átti svona síma lengi og hann virkaði fínt svosem flottir símar, eina var að takkaborðið var dáldið tregt og hann átti til að restarta sér uppúr þurru og blautu :I

en annars tek ég undir með hinum alveg hreint óþolandi stýrkerfi í motorolla, eins með samsung svo tregt og leiðinlegt ílla sett upp,

Er með huawei núna það er fínasti sími búinn að endast í ár, flott stýrkerfi einfalt og allt sem sími þarf kostar líka lítið :megasmile

Re: Motorola Razor

Sent: Þri 22. Feb 2011 18:13
af toybonzi
Er með einn Razr v2 sem að hefur virkað 100% frá fyrsta degi. Batteríin voru samt arfaslöpp í þeim.

Re: Motorola Razor

Sent: Mið 23. Feb 2011 01:05
af Lexxinn
Hef bara sjálfur góðareynslu og langar í einn svona aftur :)

Edit: ætla breyta þræðinum í ÓE þráð...

Re: [ÓE]Motorola Razr

Sent: Mið 23. Feb 2011 01:17
af kizi86
átti svona bleikan fyrir ekkert það löngu síðan, reyndi að selja hann en ekkert gekk, endaði með að gefa kellingu vinar míns símann þar sem enginn annar vildi hann :P

Re: [ÓE]Motorola Razr

Sent: Mið 23. Feb 2011 02:17
af Black
kizi86 skrifaði:átti svona bleikan fyrir ekkert það löngu síðan, reyndi að selja hann en ekkert gekk, endaði með að GEFA kellingu vinar míns símann þar sem enginn annar vildi hann :P


http://nooooooooooooooo.com/