Síða 1 af 1

Verðráðlagning

Sent: Fös 18. Feb 2011 14:05
af ZiRiuS
Sælir vaktarar.

Ég var að splæsa í glæsilegan LG Optimus One síma og er bara almennt þrusu ánægður en mig langar að selja gamla Nokia N96 símann minn (einn félagi minn sem hefur áhuga á honum) en ég hef ekki hugmynd um hvað ég á að setja hann á.

Ég skoðaði verð á Amazon og þar fæst hann á um 83þús nýr, en þar sem minn er orðinn tveggja ára og farið að sjást á honum þá var ég kannski að hugsa um 20-25þús fyrir hann. Er ég allt of bjartur með það verð? Það er ekkert að honum fyrir utan nokkrar rispur.

Endilega aðstoðið mig við þetta, takk :D.

Re: Verðráðlagning

Sent: Fös 18. Feb 2011 14:24
af AntiTrust
20-25 er mjöööög sanngjarnt verð, jafnvel of lítið. Sérð bara hvað N95 eru að fara dýrt, ennþá í dag.

Re: Verðráðlagning

Sent: Sun 20. Feb 2011 21:01
af kubbur
n95 eru reyndar epic símar, hvað myndirðu rukka fyrir n97 mini ?, er í nákvæmlega sömu hugleiðingum

Re: Verðráðlagning

Sent: Sun 20. Feb 2011 21:36
af Klaufi
kubbur skrifaði:n95 eru reyndar epic símar, hvað myndirðu rukka fyrir n97 mini ?, er í nákvæmlega sömu hugleiðingum


Kastaðu á mig pm ef þú ert að selja n97 mini ;)