Sælir/ar,
ég er búinn að vera velt því fyrir mér hvort það se einhvað vit í því að fá ser fartölvu.
Eru fartölvur allveg eins mikið rusl og var herna fyrir 5-6 árum? Er með sjúkann leikjaturn(kostaði 340 þús, keypt einhverntímann enda okt í fyrra) en því miður er ég sjaldan heima og oft hjá felaga mínum þar sem við erum að spila tölvuleiki, er að nota gömlu tölvunna hans. Þannig er að spá hvort það væri einhvað vit í því að skifta út þessum kassa fyrir nýja/nýlega fartölvu t.d Alienware eða einhvað svipað sem ræður við alla nýju leikinna, helst með 17" skjá allavega. Og ef það sé einhvað vit í þessu, hvað eru þessar fartölvur að endast lengi og hvernig er ábyrgðin á þeim?
Kv. Kazaxu.
Spurningar um fartölvur.
-
- Vaktari
- Póstar: 2730
- Skráði sig: Mán 15. Des 2003 21:11
- Reputation: 159
- Staða: Ótengdur
Re: Spurningar um fartölvur.
Myndi frekar mæla með því að fá þér litla og netta Shuttle vél, þá er möguleiki fyrir þig að uppfæra GPU og þessháttar.
-
- Stjórnandi
- Póstar: 6354
- Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
- Reputation: 161
- Staða: Ótengdur
Re: Spurningar um fartölvur.
Fartölvur voru ekki allar rusl fyrir 5-6 árum, ekkert frekar en í dag. Þú hefur greinilega reynslu af ruslinu
Annars get ég seint mælt með 17" 'far'tölvu, en ef leikjaspilun er það eina sem þú ert að eltast við þá gæti það svosem ágætis lausn fyrir þig. Verður samt að átta þig á því að þá yrðiru að eyða 2-300k í lappa ef þú ætlaðir að fá e-rja mulningsvél, og það er mjög takmarkaðir uppfærslumöguleikar.

Mín skoðun:
Fartölvur henta ekki sem leikjavélar, Berðu saman kælingu í góðri leikjavél og góðri fartölvu. Þótt fartölvurnar séu öflugar þá eru þær yfirleitt að baka hardware-ið við leikjaspilun.

Ef þú ert yfirleitt hjá honum af hverju ferðu þá ekki bara með tölvuna þína til hans? Endalaust LAN partí! Færð þér svo netta fartölvu í annað sem þú þarft að gera.
Mín $0.02: Hafðu mulningsvélina þína þar sem þú ert að spila leiki (allt í lagi að færa ef þú ert að fara að vera mikið á einhverjum stað t.d. yfir helgi). Hafðu netta fartölvu sem þú nennir að nota í allt annað en sjúka leikjaspilun.

Höfundur - Græningi
- Póstar: 28
- Skráði sig: Mán 14. Jún 2010 17:32
- Reputation: 0
- Staða: Ótengdur
Re: Spurningar um fartölvur.
Tölvan mín rétt kemst í bílinn minn og er þyngri en 19" túbuskjár, þannig get ekki verið að ferðast neitt mikið með hana. Og mer vantar helst góða tölvu á báðum stöðum, þessvegna datt mer í hug fartölva.
-
- Vaktari
- Póstar: 2485
- Skráði sig: Lau 20. Maí 2006 22:05
- Reputation: 235
- Staðsetning: NGC 3314.
- Staða: Ótengdur
Re: Spurningar um fartölvur.
Kassinn hjá mér tómur er um 17kg Það kemur ekki í veg fyrir að ég druslist með kvikindið hingað og þangað
Main -> || Windows 11 || Ryzen 5600x || Asus ROG B550i || 32GB DDR4 3600 || RTX 3070 || CM 750W SFX || Lian Li TU-150 || 34" IPS 3440x1440 180Hz ||
NAS -> || Truenas Scale || i7 8700 || 64GB DDR4 2666 || 2x 12 TB ||
"It's a magical world, Hobbes, Ol' Buddy... let's go exploring!"
NAS -> || Truenas Scale || i7 8700 || 64GB DDR4 2666 || 2x 12 TB ||
"It's a magical world, Hobbes, Ol' Buddy... let's go exploring!"
-
Höfundur - Græningi
- Póstar: 28
- Skráði sig: Mán 14. Jún 2010 17:32
- Reputation: 0
- Staða: Ótengdur
Re: Spurningar um fartölvur.
GullMoli skrifaði:Kassinn hjá mér tómur er um 17kg Það kemur ekki í veg fyrir að ég druslist með kvikindið hingað og þangað
Tja, veit ekki með þig en mer þykir aðeins meira vænt um tölvuna en það, og það fer bara illa með bakið á mer að koma tölvunni minni í aftursætið, er á 2 dyra bíl og ekkert rúmgóður afturí. Og tölvan kemst ekki í frammstætið.
Re: Spurningar um fartölvur.
Kazaxu skrifaði:GullMoli skrifaði:Kassinn hjá mér tómur er um 17kg Það kemur ekki í veg fyrir að ég druslist með kvikindið hingað og þangað
Tja, veit ekki með þig en mer þykir aðeins meira vænt um tölvuna en það, og það fer bara illa með bakið á mer að koma tölvunni minni í aftursætið, er á 2 dyra bíl og ekkert rúmgóður afturí. Og tölvan kemst ekki í frammstætið.
Strákar mínir, þið eruð í ruglinu! Stáluð þið hugmyndinni hans biturk og steyptuð ykkar kassa úr sementi? :s
Annars fer það ekki svo illa með tölvu að ferðast með hana, gott að opna hana þegar hún er komin á áfangastað og ath. hvort ekki sé allt tryggilega fast ennþá áður en þú ræsir hana en það er allt. Annað mál með bakið þitt... En ef það tekur svo mikið í að ferðast með tölvuna þá er eitthvað skrýtið í gangi Nýr kassi gæti leyst öll þín vandamál. Það er mun ódýrara en 17" alienware skrímsli sem ræður við einhverja leiki.
-
Höfundur - Græningi
- Póstar: 28
- Skráði sig: Mán 14. Jún 2010 17:32
- Reputation: 0
- Staða: Ótengdur
Re: Spurningar um fartölvur.
Ég hefði bara haldið það að það væri mikið auðveldari lausn að vera með fartölvu en turn ef maður ætlaði að ferðast einhvað mikið með hana. En málið með að fá minni turn, veit ekkert hvort það myndi virkilega leysa vandamálið. Því ég myndi þurfa að bera tölvuna upp á aðra hæð hvert skiftið sem ég myndi fara með hana.
En þetta er ekki spurning um að kaupa ser minni turn, er að spyrja hvort það se einhvað vit í því að spila leiki á fartölvum, t.d alienware eða jafnvel einhvað annað. Og hvort það se góð ábyrgð á þessu og að þetta endist allveg ágætlega.
Ég veit það að borðtölvur eru lang bestar en eru þær allataf lausnin?

Kazaxu skrifaði:Ég hefði bara haldið það að það væri mikið auðveldari lausn að vera með fartölvu en turn ef maður ætlaði að ferðast einhvað mikið með hana. En málið með að fá minni turn, veit ekkert hvort það myndi virkilega leysa vandamálið. Því ég myndi þurfa að bera tölvuna upp á aðra hæð hvert skiftið sem ég myndi fara með hana.
En þetta er ekki spurning um að kaupa ser minni turn, er að spyrja hvort það se einhvað vit í því að spila leiki á fartölvum, t.d alienware eða jafnvel einhvað annað. Og hvort það se góð ábyrgð á þessu og að þetta endist allveg ágætlega.
Ég veit það að borðtölvur eru lang bestar en eru þær allataf lausnin?
Borðtölvur eru algjörlega ekki alltaf lausnin. Það er ekki til neitt sem er alltaf lausnin. En skoðaðu hvað þú ert að gera. Ertu í tölvuleikjum heima hjá þér annan hvern dag og svo hjá vini þínum "hinn hvern dag"? Ég get ekki svarað neinum spurningum um hvernig þú notar tölvuna þína. Hversu mikið notarðu t.d. tölvu/fartölvu ekki til að spila tölvuleiki? Hvaða tölvuleiki ertu að spila og hvaða gæði þarftu að hafa á þeim?
Leikjafartölvur geta vissulega verið hentugar en þú þarft í rauninni að spurja þig hvort þú sért virkilega svo mikið að færa þig til að spila leiki til að það sé þess virði. Þú ert nefnilega að borga rosalega mikið fyrir þetta "far". Þó svo að tölvan sé með vélbúnað sem "heitir það sama" (nema með M, s.s. sömu númer) þá eru mobile útgáfurnar oft kraftminni. 2.5" harðir diskar eru hægari en 3.5" (ssd er auðvitað alltaf betra og fittar náttúrulega í fartölvur) og svo ertu auðvitað fastur með einhvern skjá/lyklaborð sem er boðið uppá á tölvunni. Þar sem þú ert samt að fara að nota hana (samkvæmt því sem mér skilst) sem LAN tölvu eiga þessir tveir síðustu ekki við.
Það sem ég er að biðja þig um að gera er að skoða þetta vel. Ég hef séð bekkjarfélaga hugsa svona og kaupa combo leikja/skóla fartölvu (17" skrímsli) og það endaði þannig að hann nennti ekkert rosalega oft að koma með hana í skólann (hmm... þetta er kannski lausn til að missa sig ekki í tölvunni ).
Allavega. Til að svara spurningunni þinni þá eru náttúrulega öll raftæki seld á Íslandi með 2ja ára ábyrgð þannig að ef þú kaupir hana heima er hún með svoleiðis. Ef þú kaupir hana úti í USA er hún með eins árs ábyrgð. Hugsanlega er hægt að fá viðbótarábyrgð. Sérstaklega á fínu merkin (Alienware)... Ég veit ekkert um hvernig þetta er að endast, þú hefur væntanlega séð að ég hef svolítið lágt álit á svona dóti