Síða 1 af 1
Plugged in not charging.
Sent: Þri 01. Feb 2011 21:57
af C2H5OH
Fartölvan mín tók upp á því um daginn að hætta að hlaða sig.
Segir bara "plugged in not charging"
Er búinn að googla þetta vandamál og það er víst mjög algengt, einhver bug í windows 7 og vista.
Það eru hellingur af lausnum sem fólk gerði,
með því að uninstalla "Microsoft ACPI-Compliant Control Method Battery", taka batterí úr, taka tölvu úr sambandi, setja batterí í, stinga í samband og einhverjar svaka æfingar.
Mælt var með því að uppfæra BIOS sem ég gerði,
en ekkert virkar.
Einhver hérna lent í þessu?
Er með Packard bell Easynote TJ65.
Re: Plugged in not charging.
Sent: Þri 01. Feb 2011 22:02
af AntiTrust
Gæti líka einfaldlega verið ónýt rafhlaða.
Re: Plugged in not charging.
Sent: Þri 01. Feb 2011 22:11
af vesley
Kemur þetta skilaboð líka þegar batteríið er ekki í tölvunni ?
Re: Plugged in not charging.
Sent: Þri 01. Feb 2011 22:55
af C2H5OH
Nei kemur bara þegar battríið er í. Þegar batteríið er ekki í kemur "Batterí not detected"
Tölvan er aðeins árs gömul, hefur ekki orðið fyrir einu hnjaski.
Eru eins árs batterí vön að skemmast?
Þetta var þannig að ég var að nota tölvuna inní stofu, svo þegar hún var að verða batteríislaus, þá stakk ég henni í samband en hún hlóð sig ekki.
Re: Plugged in not charging.
Sent: Þri 01. Feb 2011 23:16
af ÆvarGeir
ef batterýið er að hlaðast upp í sirka 80-90% og seigir 90% available (plugged in, not charging) er mjög líklegt að batterýið er ekki að hlaðast að fullu, þetta er í raun að seigja þér sannleikan á meðan aðrar tölfur seigja að batterýið sé full hlaðið en er það ekki. ef ég skil spurninguna rétt.
Re: Plugged in not charging.
Sent: Þri 01. Feb 2011 23:21
af C2H5OH
Ég stakk henni í samband þegar það voru 8% eftir á batteríinu, og þá sagði hún plugged in not charging. núna eru 0%... segir ennþá það sama.
Hún deyr þegar ég tek hana úr sambandi.
Re: Plugged in not charging.
Sent: Þri 01. Feb 2011 23:32
af icesaveman
Ég á í sama vanda. 12% (Plugged in, not charging). Er annars með Dell Inspiron.
Re: Plugged in not charging.
Sent: Þri 01. Feb 2011 23:33
af icesaveman
.. og þegar battery-ið er komið niður i 10% deyr tolvan..
Re: Plugged in not charging.
Sent: Þri 01. Feb 2011 23:43
af dori
Hleður hún sig þegar það er slökkt á henni? Ef ekki þá geturðu alveg afskrifað einhverja galla í Windows (BIOS líka?). Ég myndi skjóta á að rafhlaðan sé bara ónýt. Ef rafhlaðan er ónýt en ekki bara venjuleg rýrnun ætti það að vera í ábyrgð. Ég myndi fara með tölvuna til söluaðila og láta þá kíkja á þetta.
Re: Plugged in not charging.
Sent: Þri 01. Feb 2011 23:59
af icesaveman
Mín er loksins komin í lag.. ég tók batterý-ið bara úr og lét það aftur í (annars er líka stillt á ''Balanced'' hjá mér )
Re: Plugged in not charging.
Sent: Mið 02. Feb 2011 00:09
af KrissiK
gæti nokkuð verið að hleðslutækið hafi skammhlaupað og það streymir bara rafmagn en hleður ekki?
Re: Plugged in not charging.
Sent: Mið 02. Feb 2011 00:16
af papajoe
Sennilega er hleðslutækið þitt 19,5 V - 3,34 A. Þú þarft hleðslutæki sem er 19,5 V - 4,62 A. Finna eitt og reyna það. Oh, því miður var þetta fyrir Dell fartölvur. En þetta er sameiginlegt vandamál, þú þarft að hafa hleðslutæki með fleiri ampers.
Re: Plugged in not charging.
Sent: Mið 02. Feb 2011 15:32
af Frussi
Mín fartölva fór að gera þetta, en þá var batteríið ónýtt. Stundum hleðst það, stundum ekki...
Re: Plugged in not charging.
Sent: Lau 08. Okt 2011 20:23
af gullis
Ég er með sömu tölvu... Packard bell easynote tj65. Og var að lenda í þessu bara fyrir 5mín síðan. Og núna þegar ég er ekki með hana tengda (þar sem hún neitaði að hlaða) stendur
consider replacing youre batteri og það er um 78% eftir af því.. Hvað kostar annars nýtt batterí ? Og annað ég keypti nýtt hleðslutæki um daginn í tölvutek borgartúni og fékk ekki eins en þegar ég fór aftur þá sögðu þeir mér að þetta væri fyrir þessa tölvu og ég þyrfti ekki að hafa neinar áhyggjur, straumbreytirinn á nýja er aðeins stærri og auk þess eru ekki sömu ampers tölur og á gamla en ég man ekki nákvæmlega hvað það var,þeir hentu því fyrir mig þegar ég keypti nýja. Vonandi að þetta sé ekki tengt þessu nýja hleðslutæki hjá mér
Re: Plugged in not charging.
Sent: Lau 08. Okt 2011 23:25
af C2H5OH
gullis skrifaði:Ég er með sömu tölvu... Packard bell easynote tj65. Og var að lenda í þessu bara fyrir 5mín síðan. Og núna þegar ég er ekki með hana tengda (þar sem hún neitaði að hlaða) stendur
consider replacing youre batteri og það er um 78% eftir af því.. Hvað kostar annars nýtt batterí ? Og annað ég keypti nýtt hleðslutæki um daginn í tölvutek borgartúni og fékk ekki eins en þegar ég fór aftur þá sögðu þeir mér að þetta væri fyrir þessa tölvu og ég þyrfti ekki að hafa neinar áhyggjur, straumbreytirinn á nýja er aðeins stærri og auk þess eru ekki sömu ampers tölur og á gamla en ég man ekki nákvæmlega hvað það var,þeir hentu því fyrir mig þegar ég keypti nýja. Vonandi að þetta sé ekki tengt þessu nýja hleðslutæki hjá mér
Já hún byrjaði aldrei að hlaða aftur hjá mér... Ég breitti henni bara í HTCP vél án batterís, ég reyndar athugaði aldrei hvað nýtt batterí kostar, ef þú athugar það máttu alveg pósta því hérna, þætti gaman að vita hvað það kostar
Re: Plugged in not charging.
Sent: Sun 09. Okt 2011 16:44
af gullis
tölvan hjá mér hleður núna... en það blikkar alltaf rautt x við batteríið og stendur ennþá
consider replacing youre batteri ég held ða batteríið hjá mér sé bara að gefast upp. Ætla að kanna hvað nýtt batterí kostar,, kemur á óheppilegum tíma þar sem ég er einmitt að reyna að selja hana,, en svo kannski bara ágætt heldur en að þetta hefði skeð hjá nýjum eiganda eftir nokkra daga.. það hefði verið súrt fyrir hann
Re: Plugged in not charging.
Sent: Sun 09. Okt 2011 16:47
af Saber