Síða 1 af 1
Nokkrar spurningar varðandi iPhone 4
Sent: Lau 15. Jan 2011 21:11
af hsm
Sælir vaktarar
Ég er að fá iPhone 4 frá apple.dk sem á að vera opinn, en þar sem ég veit lítið sem ekkert um þessa síma þá langar mig að fá einhverjar upplýsingar um hann.
Þarf ég að virkja síman á netinu eða vitið þið hvort að ég get notað hann beint og hvernig er með apps, er nokkuð í boði að versla apps í Itunes frá Íslandi.
Allar upplýsingar varðandi iPhone 4 verslaða erlendis eru vel þegnar, það hljóta einhverjir að eiga svona síma sem eru fengnir að utan
og eru oppnir og vita hvernig þeir virka og hvaða takmarkanir eru á þeim ef einhverjar eru
Með fyrir fram þökk HSM
Re: Nokkrar spurningar varðandi Iphone 4
Sent: Lau 15. Jan 2011 21:18
af akarnid
EF hann er opinn þá þarftu bara að setja hann í samband við tölvuna og ræsa iTunes. Það detectar símann og verify-ar hann og þá er hann tilbúinn til notkunar.
Hvað varðar iTunes Store, þá þarftu að fara þá krókaleið að stofna aðgang í USA eða UK, og hafa þá þarlent heimilisfang í upplýsingunum.
Hér eru leiðbeiningar frá Apple um að stofna aðgang án kreditkorts. . Ath. að þú mátt ekki ljúga með heimilisfangið, það er actually tjékkað á hvort það stemmi. Notaðu bara heimilisfang frá ShopUSA t.d.
Síðan er það að nota aðila eins og
Eplakort til að kaupa inneignarkort sem þú redeemar í iTunes með því að slá inn kóðann.
Re: Nokkrar spurningar varðandi Iphone 4
Sent: Lau 15. Jan 2011 21:19
af SolidFeather
Haha iphone.
Re: Nokkrar spurningar varðandi iPhone 4
Sent: Lau 15. Jan 2011 21:44
af Jim
Það er mjög þægilegt að hafa tengilið í Bandaríkjunum eða Bretlandi. Þú getur notað heimilisfangið þeirra og látið þá kaupa kort fyrir þig. Það er ekkert mál að búa til erlendan reikning og öll Öpp virka.
Re: Nokkrar spurningar varðandi iPhone 4
Sent: Lau 15. Jan 2011 22:04
af kazgalor
Þú getur líka notað síðuna
http://www.Eplakort.isÞar getur þú keypt inneign í rauninni og notað til að kaupa apps og hvaðeina sem þér langar í.
Re: Nokkrar spurningar varðandi iPhone 4
Sent: Lau 15. Jan 2011 22:16
af hsm
kazgalor skrifaði:Þú getur líka notað síðuna
http://www.Eplakort.isÞar getur þú keypt inneign í rauninni og notað til að kaupa apps og hvaðeina sem þér langar í.
Það var búið að koma fram
og þar er maður að borga um 150.kr fyrir Dollarann. en takk samt.
Er ekki hægt að láta bróður minn í DK stofna reikning þar og verslað í gegnum hann
Og takk fyrir öll svörinn
Re: Nokkrar spurningar varðandi iPhone 4
Sent: Lau 15. Jan 2011 22:37
af akarnid
SVarið við þessu er jú.
Þá þarf bara að logga símann inn í App Store með því notendanafni sem búið er til af bróður þínum.
Re: Nokkrar spurningar varðandi iPhone 4
Sent: Lau 15. Jan 2011 22:43
af razrosk
Sleppa versla applekort LOL... jailbreakaðu bara síman þegar þú færð hann and enjoy. ef þú vilt alveg ENDILEGA update-a síman í segjum 4.3 eða 4.4 þegar það kemur þá re-jailbreakaru hann eftir að þú update-ar (þarft að setja mp3/videos/photos aftur inn reyndar og þú getur ekki syncað með itunes þegar þú ert jailbreaked, heldur notaru bara iphonebrowser og mediamonkey eða álíka forrit til þess...). færð 99% af apps frítt.
Re: Nokkrar spurningar varðandi iPhone 4
Sent: Lau 15. Jan 2011 22:51
af Jim
razrosk skrifaði:Sleppa versla applekort LOL... jailbreakaðu bara síman þegar þú færð hann and enjoy. ef þú vilt alveg ENDILEGA update-a síman í segjum 4.3 eða 4.4 þegar það kemur þá re-jailbreakaru hann eftir að þú update-ar (þarft að setja mp3/videos/photos aftur inn reyndar og þú getur ekki syncað með itunes þegar þú ert jailbreaked, heldur notaru bara iphonebrowser og mediamonkey eða álíka forrit til þess...). færð 99% af apps frítt.
Ég hafði mjög slæma reynslu af því að jailbreak-a iPod-inn minn. Hann var svo ofboðslega hægur að ég ákvað að unjailbreak-a hann
Re: Nokkrar spurningar varðandi iPhone 4
Sent: Lau 15. Jan 2011 22:55
af MatroX
razrosk skrifaði:Sleppa versla applekort LOL... jailbreakaðu bara síman þegar þú færð hann and enjoy. ef þú vilt alveg ENDILEGA update-a síman í segjum 4.3 eða 4.4 þegar það kemur þá re-jailbreakaru hann eftir að þú update-ar (þarft að setja mp3/videos/photos aftur inn reyndar og þú getur ekki syncað með itunes þegar þú ert jailbreaked, heldur notaru bara iphonebrowser og mediamonkey eða álíka forrit til þess...). færð 99% af apps frítt.
hhaha jahá þú getur bara víst syncað með itunes þegar síminn er jailbreakaður
Re: Nokkrar spurningar varðandi iPhone 4
Sent: Lau 15. Jan 2011 23:11
af Frost
Jailbreak = Hægur Iphone/Ipod
Re: Nokkrar spurningar varðandi iPhone 4
Sent: Sun 16. Jan 2011 18:18
af hsm
Takk kærlega fyrir svörin
En ég reikna ekki með að fara út í að jailbreaka símann þar sem að hann virkar hér heima og ég er ekki að fara að versla mér 100+ apps
Ég var með svona síma frá bróðir mínum í DK og mér fannst ég svo svalur með hann að ég mun nota hann mest megnis til að vera svalur
Það er aðeins eitt sem ég hata meira en Apple og það er að ég er farinn að fíla þetta darsl
Ég kenni bróður mínum um, þar sem að hann vinnur við að selja þetta og náði að smita mig af einhverjum stór hættulegur Apple vírus
Talandi um að Apple fái sjaldan vírus, þá getur maður samt fengið vírus af Apple
Re: Nokkrar spurningar varðandi iPhone 4
Sent: Sun 16. Jan 2011 18:31
af Tiger
Ég hef átt allar útgáfur af iPhone og sé ekki framá að eignast öðruvísi síma um ókomna tíð, I just love it. Ég hef aldrei séð tilgangin í að jailbreak-a símann minn og mæli ekki með því, endalaust vesen og bið þegar nýjar hugbúnaðarfærslur koma frá Apple (sem er nokkuð reglulega).
Og í sambandi við iTunes þá sé ég hérna ofar að það er búið að gera þér link á hvernig eigi að stofna iTunes aðgang án kreditkorts og er það lítið máli, og að borga pínu meira fyrir dollarann hjá eplakort eða buy.is finnst mér í fínu lagi, en ef þú lætur bróðir þinn kaupa inneignir þá veistu að þú getur bara notað það í dönsku iTunes verslunnini, og ég veit ekki hvernig úrvalið af tónlist, myndum og öðru er þar.