Síða 1 af 1

Toshiba Satellite L500-1V1 orðin frekar hæg

Sent: Þri 04. Jan 2011 19:16
af jardel
Ég er með Toshiba Satellite L500-1V1 mig finnst hún orðin frekar hæg ég nota Tune up og Registry Mechanic reglulega ásamt avast vírusvörn.
Veit einhver hvað getur verið að? Finnst þetta soldið leiðinlegt þar sem ég hef ávalt hugsað vel um tölvunar mínar og hef ekki lent i þessu áður.

Re: Toshiba Satellite L500-1V1 orðin frekar hæg

Sent: Þri 04. Jan 2011 19:19
af SolidFeather
Format C

Re: Toshiba Satellite L500-1V1 orðin frekar hæg

Sent: Þri 04. Jan 2011 19:25
af B.Ingimarsson
formattaðu og settu kerfið upp aftur, rykhreinsar kannski, þá ætti hún að vinna hraðar

Re: Toshiba Satellite L500-1V1 orðin frekar hæg

Sent: Þri 04. Jan 2011 19:43
af lukkuláki
Ef harði diskurinn er farinn að slappast þá gerist einmitt þetta.
spurning um að prófa diskinn ?
Getur líka verið uppsetningin þrátt fyrir að þú hugsir vel um það með því að hreinsa

Re: Toshiba Satellite L500-1V1 orðin frekar hæg

Sent: Þri 04. Jan 2011 21:38
af jardel
get ég formatað c drifið án þess að missa gögnin, er með windows 7 ef svo er hvernig geri ég það?

Re: Toshiba Satellite L500-1V1 orðin frekar hæg

Sent: Þri 04. Jan 2011 21:43
af hauksinick
Tekur flakkara bara og setur inná hann á meðan þú formattar..
Svo bara aftur inná.
Ég geri það allavega alltaf :-({|=

Re: Toshiba Satellite L500-1V1 orðin frekar hæg

Sent: Þri 04. Jan 2011 22:05
af jardel
hvernig formatta ég c drifið fyrir windows 7 aftur man það ekki alvegm, þið verðið að afsaka hvað ég er vitlaus í þessu, ef ég formatta c drifið eyðist þá ekki windowsið út því það er á c drifinu hjá mér þegar ég keypti tölvuna fylgdi ekki windows 7 diskur með tölvunni.

Re: Toshiba Satellite L500-1V1 orðin frekar hæg

Sent: Þri 04. Jan 2011 22:47
af jardel
Þekkir einhver hérna inn á það þar sem windows 7 diskurinn fylgidi ekki tölvunni er ég keypti hana.

Re: Toshiba Satellite L500-1V1 orðin frekar hæg

Sent: Þri 04. Jan 2011 23:03
af jardel
vélinn kom bara uppsett með windows 7 engin windows 7 diskur fylgdi með.

Re: Toshiba Satellite L500-1V1 orðin frekar hæg

Sent: Þri 04. Jan 2011 23:04
af SolidFeather
Hvað segirðu? Fylgdi Windows 7 diskurinn með tölvunni?

Re: Toshiba Satellite L500-1V1 orðin frekar hæg

Sent: Þri 04. Jan 2011 23:08
af noizer
Það ætti að vera forrit sem fylgdi með stýrikerfinu þar sem þú getur búið til Windows disk.

Re: Toshiba Satellite L500-1V1 orðin frekar hæg

Sent: Þri 04. Jan 2011 23:27
af Klemmi
SolidFeather skrifaði:Hvað segirðu? Fylgdi Windows 7 diskurinn með tölvunni?


Ég hló.

Re: Toshiba Satellite L500-1V1 orðin frekar hæg

Sent: Mið 05. Jan 2011 01:04
af jardel
hehe góður, manst þú hvaða forrit þetta er og hvernig það virkar

Re: Toshiba Satellite L500-1V1 orðin frekar hæg

Sent: Mið 05. Jan 2011 02:55
af jardel
ef ég er ekki með windows 7 diskinn þá þýðir lítið að formatta vélina ekki satt?

Re: Toshiba Satellite L500-1V1 orðin frekar hæg

Sent: Mið 05. Jan 2011 05:12
af Nothing
@jardel
Double post og triple póst er bannað, vinsamlegast notaðu edit takkann ;)
4. gr.

Ekki senda inn óþarfa bréf
Ekki senda inn bréf nema þú hafir eitthvað að segja eða spyrja um. Ekki senda inn
2 bréf í röð á sama þráðinn, þú getur notað breyta takkan til að bæta við eldri bréf.


En til að svara spurningunni þinni.
Þá þarftu alltaf Windows 7 disk ef þú ætlar að strauja tölvuna með Windows 7.
Þú getur download windows 7 útgáfu af netinu og notað síðan serial kóðan undir tölvunni, En passaðu þig á því að taka t.d. Home Premium 32bit ef það stendur á serial keyinum undir vélinni.

Mér finnst nú helvíti slappt að það sé enginn stjórnandi búinn að segja honum að double og triple post sé bannað.

Re: Toshiba Satellite L500-1V1 orðin frekar hæg

Sent: Mið 05. Jan 2011 09:18
af Frantic
Prófaðu frekar að hreinsa tölvuna með forritum eins og CCleaner.
Mér sýnist þú ekki alveg vera viss um hvernig þú átt að formatta diskinn.

Re: Toshiba Satellite L500-1V1 orðin frekar hæg

Sent: Fös 07. Jan 2011 02:04
af jardel
ég bið ykkur afsökurnar á þessum póstum man það næst að fara i edit, er að sækja windows home premium 64 bita sýnist það eina sem ég get get gert er að formatta vélina hún lætur ömulega stundum ekkert hægt að gera fyrir lódi, það er orðið svo langt síðan ég setti upp windows, slepp ég nú orðið við að hugsa um setja alla drivera upp eins og var alltaf?