Síða 1 af 1

Fartölvur með SSD?

Sent: Þri 04. Jan 2011 15:06
af GGG
Er enginn að selja lappa með SSD nema apple hérna heima :?: :-k

Re: Fartölvur með SSD?

Sent: Þri 04. Jan 2011 15:20
af mind
Nokkuð viss um að allar tölvuverslanir eru tilbúnar að selja þér aukalega SSD disk sem þú getur þá valið þér þar sem þetta eru soddan trúarbrögð, ekki mikið mál að afrita stýrikerfið á milli. Ólíklegt þó verslunin taki hinn diskinn uppí.

Re: Fartölvur með SSD?

Sent: Þri 04. Jan 2011 15:26
af GGG
mind skrifaði:Nokkuð viss um að allar tölvuverslanir eru tilbúnar að selja þér aukalega SSD disk sem þú getur þá valið þér þar sem þetta eru soddan trúarbrögð, ekki mikið mál að afrita stýrikerfið á milli. Ólíklegt þó verslunin taki hinn diskinn uppí.


Já það væri strax í áttina, en best auðvitað ef verslunin tæki hinn diskinn uppí :happy

Re: Fartölvur með SSD?

Sent: Þri 04. Jan 2011 15:44
af Daz
Nýherji er að selja Lenovo vélar með SSD, eða hafa gert það. Skv vefversluninni eru allar uppseldar núna, ætti að vera hægt að spyrja þar.

Re: Fartölvur með SSD?

Sent: Þri 04. Jan 2011 17:11
af Lexxinn
Mundi halda ef það væri fartölvutilboð og þú vildir taka SSD í stað HDD sem er í tölvunni, að flestar tölvuverslanir mundu taka gamla upp í á eithvað og láta þig fá SSD þá pínu ódýrari. Þó það sé erfiðara með fartölvur heldur en borðtölvur.
Annars er bara best að hringja, en helling af aðilum sem vinnu í tölvubúðum hérna svo bíddu bara fram á kvöld og gáðu hvað þeir segja.

Re: Fartölvur með SSD?

Sent: Þri 04. Jan 2011 17:18
af Klemmi
Höfum verið að selja einstaka fartölvur með SSD og yfirleitt tekið gömlu diskana upp í :) Sama hefur oftast gilt með stækkun á vinnsluminni og þess háttar.
Það er bara svo mikil hreyfing við að halda vefsíðunni við ef maður ætti að vera að bjóða tölvurnar með mismunandi týpum af SSD, auðvitað mætti búa til kerfi sem myndi leyfa manni að púsla algjörlega saman sinni eigin vél á netinu, en höfum ekki og býst ekki við að við ráðumst í þær framkvæmdir, ekki mikið af fólki sem hugsar svona langt :oops:

Re: Fartölvur með SSD?

Sent: Þri 04. Jan 2011 19:11
af GGG
Klemmi skrifaði:Höfum verið að selja einstaka fartölvur með SSD og yfirleitt tekið gömlu diskana upp í :) Sama hefur oftast gilt með stækkun á vinnsluminni og þess háttar.
Það er bara svo mikil hreyfing við að halda vefsíðunni við ef maður ætti að vera að bjóða tölvurnar með mismunandi týpum af SSD, auðvitað mætti búa til kerfi sem myndi leyfa manni að púsla algjörlega saman sinni eigin vél á netinu, en höfum ekki og býst ekki við að við ráðumst í þær framkvæmdir, ekki mikið af fólki sem hugsar svona langt :oops:


Gott að vita þetta :happy