Síða 1 af 1

iPhone vekjaraklukkan

Sent: Sun 02. Jan 2011 14:19
af intenz

Re: iPhone vekjaraklukkan

Sent: Sun 02. Jan 2011 14:22
af razrosk
Ok what the hell, ekki skrítið að eg svaf yfir mig... hef samt aldrei lennt í þessu áður.

Re: iPhone vekjaraklukkan

Sent: Sun 02. Jan 2011 14:24
af valdij
Hahaha, konan fékk að stilla vekjaraklukkuna fyrir sig á símanum mínum (iPhone) til að mæta í vinnuna í dag, síminn hringir að sjálfsögðu ekki þannig hún sefur yfir sig og sendir mér svo brjáluð sms rétt áðan afhverju helvítis vekjaraklukkan hafi ekki hringt.

Ástæðan greinilega kominn, ég var einmitt að undra mig á þessu afhverju hún hafi ekki hringt því hún var alveg rétt stillt :)

Fáránlegt samt að þetta skuli gerast eftir þetta hafi komið upp áður hjá þeim

Re: iPhone vekjaraklukkan

Sent: Sun 02. Jan 2011 14:27
af Plushy
Komumst ekki inn í vinnu í morgun því hann sem var með lyklana svaf yfir sig :)

Re: iPhone vekjaraklukkan

Sent: Sun 02. Jan 2011 14:28
af intenz
Já það er örugglega smá tjón sem hlaust af þessu. Verslunareigendur, starfsmenn og þeir sem áttu pantaðan tíma einhverstaðar.

Ekki gott fyrir Apple.

Re: iPhone vekjaraklukkan

Sent: Sun 02. Jan 2011 14:32
af Andri Fannar
Lenti í þessu í morgun...síminn bara gerði ekkert og vekjaraklukkan samt ON.

Re: iPhone vekjaraklukkan

Sent: Sun 02. Jan 2011 14:32
af Orri
Stillti vekjaraklukkuna á 12:45 í gær til að sjá Man Utd - Birmingham en vaknaði svo ekki fyrr en klukkan rúmlega 1 þegar bróðir minn vakti mig.
Var að furða mig á afhverju vekjaraklukkan hefði ekki fúnkerað en sá svo frétt um þetta á Engadget.

Re: iPhone vekjaraklukkan

Sent: Sun 02. Jan 2011 15:29
af biturk
kennir fólki að nota ekki apple vörur

Re: iPhone vekjaraklukkan

Sent: Sun 02. Jan 2011 15:39
af PikNik
"Meh, ykkur að kenna að nota lokaðan hugbúnað. :þ"

Quote af Svavari Kjarrval.

Re: iPhone vekjaraklukkan

Sent: Sun 02. Jan 2011 16:03
af Orri
Já því svona lagað gæti aldrei gerst við segjum Android ?

Re: iPhone vekjaraklukkan

Sent: Sun 02. Jan 2011 16:04
af emmi
Myndi samt velja iPhone yfir allt annað. Besti sími sem ég hef átt! :)

Re: iPhone vekjaraklukkan

Sent: Sun 02. Jan 2011 16:06
af benson
Orri skrifaði:Já því svona lagað gæti aldrei gerst við segjum Android ?


Gæti gerst á hvaða síma sem er. En miðað við hvað þessi er búinn að faila mikið þá finnst mér hann aðeins líklegri en aðrir.

Re: iPhone vekjaraklukkan

Sent: Sun 02. Jan 2011 16:19
af Andri Fannar
benson skrifaði:
Orri skrifaði:Já því svona lagað gæti aldrei gerst við segjum Android ?


Gæti gerst á hvaða síma sem er. En miðað við hvað þessi er búinn að faila mikið þá finnst mér hann aðeins líklegri en aðrir.


Faila mikið? Að hvaða leyti?

Re: iPhone vekjaraklukkan

Sent: Sun 02. Jan 2011 18:03
af AntiTrust
Burtséð frá iPhone vs. the world umræðunni, þá treysti ég aldrei einu tæki til að vekja mig. Þarf ekki mikið til að henda einum síma á gólfið og batterý-inu úr = sefur yfir þig.

Re: iPhone vekjaraklukkan

Sent: Sun 02. Jan 2011 18:12
af Jim
AntiTrust skrifaði:Burtséð frá iPhone vs. the world umræðunni, þá treysti ég aldrei einu tæki til að vekja mig. Þarf ekki mikið til að henda einum síma á gólfið og batterý-inu úr = sefur yfir þig.


Sama hér, ég stilli alltaf vekjaraklukkuna mína á 7:45 og stilli símann á 7:50 til vara :)

Re: iPhone vekjaraklukkan

Sent: Sun 02. Jan 2011 18:43
af Gunnar
haha nú veit ég afhverju ég svaf yfir mig :D
vona að þetta verði lagað