Síða 1 af 2

Snjallsímabyltingin.

Sent: Fös 29. Okt 2010 22:41
af GuðjónR
Ég set þetta hérna þar sem "snjallsímar" eru jú lófatölvur.

Grein á dv.is þar sem er farið í saumana á þessum símum, mig langar að vita hvað ykkur finnst um þessar fullyrðingar, þ.e. þið sem eigið snjallsíma.
Þarna er gengið svo langt að segja að Android sé komið fram úr iPhone...er það rétt?
Því er líka haldið fram að Samsung Galaxy S það flottasta? er hann virkilega flottara en iPhone?
Ykkar álit.

Greinin.

Re: Snjallsímabyltingin.

Sent: Fös 29. Okt 2010 22:45
af dori
Þetta er náttúrulega marketing hjá Símanum. Þeir eru að pusha Android...

Re: Snjallsímabyltingin.

Sent: Fös 29. Okt 2010 22:48
af GuðjónR
dori skrifaði:Þetta er náttúrulega marketing hjá Símanum. Þeir eru að pusha Android...

LOL ... nákvæmlega það sem ég var að hugsa...

...þess vegna langar mig að heyra hvað ykkur finnst.

Re: Snjallsímabyltingin.

Sent: Fös 29. Okt 2010 22:54
af Daz
PR kjáni hjá símanum skrifaði:Fyrir fimm árum var hlegið að þeim sem sögðu að GPS, tónlistarspilari, sími, tölva og myndavél yrði allt í eina og sama tækinu.

Fyrir fjórum árum keypti ég mér ómerkilegan síma sem var MP3 spilari, sími, komst á netið og var með myndavél. En augjóslega hefði verið þokkalega hlegið ef einhver hefði viljað bæta GPS tæki við þessa blöndu.

Re: Snjallsímabyltingin.

Sent: Fös 29. Okt 2010 23:13
af dori
Annars þá á ég ekki gáfaðri síma en Nokia e51 svo ég get ekki sagt til um hvort Android sé komið framúr iOS. Hins vegar þá, m.v. það sem ég hef séð þá er rosalega erfitt að dæma um það og það fer alveg eftir því að hverju þú ert að leita hvert svarið nákvæmlega er.

Ég myndi t.d. aldrei nenna að forrita fyrir iPhone. Bara prinsipp mál.

Re: Snjallsímabyltingin.

Sent: Lau 30. Okt 2010 00:26
af gissur1
Ég held að þetta fari bara eftir því hvað hver og einn vill. En finnst fáránlegt að segja að Galaxy S sé það flottasta því að það eru til 4 mismunandi gerðir af Galaxy S og 5 með Galaxy Tab (heitir það ekki Tab annars?)

Re: Snjallsímabyltingin.

Sent: Lau 30. Okt 2010 00:55
af Tiger
Ekkert nema plugguð auglýsing fyrir Símann sem selur slatta af Android símum en lítið ef ekkert af iPhone.

Re: Snjallsímabyltingin.

Sent: Lau 30. Okt 2010 11:03
af GuðjónR
Ég held ég stefni þá bara áfram á iPhone4 .... eða 5 ef ég verð of lengi að safna :sleezyjoe

Re: Snjallsímabyltingin.

Sent: Lau 30. Okt 2010 11:41
af FreyrGauti
Ég veit ekki hvort eitthverjir hérna horfi á Tekzilla en þau voru nú t.d. að tala um að iPhone4 væri úreltur samanborið við Android símana og W7 símana sem eru á leiðinni.

Re: Snjallsímabyltingin.

Sent: Lau 30. Okt 2010 12:19
af Oak
hef ekkert verið grimmt að skoða aðra síma en ég hef ekki fundið eins góðan snjallsíma eins og iPhone er. iOS er kannski ekkert fancy en með jailbreaki þá verður þetta skemmtilegt. átti 2G fyrst og fannst hann alveg eðall og vildi helst ekkert uppfæra fyrr en iPhone 4 kom út. þannig að núna er ég með iPhone 4 og er mjög sáttur. :D

vel orðað hjá þér...sem eru á leiðinni...iPhone 5 er líka á leiðinni og verður líklega öflugri en þeir allir...

er alls ekki apple fan boy...fíla bara iPod og iPhone en það er líka bara þegar að það er búið að fikta aðeins í þeim :)

Re: Snjallsímabyltingin.

Sent: Lau 30. Okt 2010 12:28
af GuðjónR
Já nákvæmlega...það er alltaf ný tækni og eitthvað flottara á leiðinni...
...ef maður ætlar að bíða eftir því þá getur maður beðið án þess að gera nokkuð þangað til maður drepst.

Re: Snjallsímabyltingin.

Sent: Lau 30. Okt 2010 12:32
af rapport
GuðjónR skrifaði:Já nákvæmlega...það er alltaf ný tækni og eitthvað flottara á leiðinni...
...ef maður ætlar að bíða eftir því þá getur maður beðið án þess að gera nokkuð þangað til maður drepst.

Það er prinsipp mál hjá mér að kaupa ekki iPhoner eftir þetta "hakk" sem sýnt var í sjónvarpinu um daginn...

Þetta er örugglega það sem krakkar munu fara leggja aðra krakka í einelti með á næstunni, upptökur af þeim að kúka o.s.frv. þar sem fólk verður ekki einusinni vart við að síminn þeirra hafi verið krakkaður.

Re: Snjallsímabyltingin.

Sent: Lau 30. Okt 2010 12:37
af GuðjónR
rapport skrifaði:

Mér krossbrá þegar ég sá þessa frétt, en er ekki rétt skilið hjá mér að "þrjóturinn" þarf að setja eitthvað forrit inn á símann til þess að ná yfirráðum yfir honum?

Re: Snjallsímabyltingin.

Sent: Lau 30. Okt 2010 13:09
af Glazier
GuðjónR skrifaði:

Nei, það þarf bara að vera kveikt á bluetooth/wifi/3g neti.

En ég efast stórlega að það verði gert mikið af þessu hérna á Íslandi..

Re: Snjallsímabyltingin.

Sent: Lau 30. Okt 2010 13:18
af GuðjónR
Og ég sá fyrir mér að hafa hann á nóttunni á náttborðinu sem vekjaraklukku.
:nerd_been_up_allnight

Re: Snjallsímabyltingin.

Sent: Lau 30. Okt 2010 13:26
af razrosk
Hef ekki átt né prufað betri smartphone en iPhone4... buin að prufa t.d. htc desire, htc legend, xperia x10/mini, htc hero, legend, vivaz, galaxy.... eini síminn sem mér finnst eiga séns í iphone 4 er nexus one.

Re: Snjallsímabyltingin.

Sent: Lau 30. Okt 2010 13:35
af chaplin
GuðjónR skrifaði:
rapport skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Já nákvæmlega...það er alltaf ný tækni og eitthvað flottara á leiðinni...
...ef maður ætlar að bíða eftir því þá getur maður beðið án þess að gera nokkuð þangað til maður drepst.

Það er prinsipp mál hjá mér að kaupa ekki iPhoner eftir þetta "hakk" sem sýnt var í sjónvarpinu um daginn...

Þetta er örugglega það sem krakkar munu fara leggja aðra krakka í einelti með á næstunni, upptökur af þeim að kúka o.s.frv. þar sem fólk verður ekki einusinni vart við að síminn þeirra hafi verið krakkaður.

Mér krossbrá þegar ég sá þessa frétt, en er ekki rétt skilið hjá mér að "þrjóturinn" þarf að setja eitthvað forrit inn á símann til þess að ná yfirráðum yfir honum?

Hvar finn ég þessa frétt?

Re: Snjallsímabyltingin.

Sent: Lau 30. Okt 2010 13:59
af Glazier
daanielin skrifaði:Hvar finn ég þessa frétt?

Guðjón linkar á hana neðst í fyrsta póstinum ;)

Re: Snjallsímabyltingin.

Sent: Lau 30. Okt 2010 14:16
af Oak
mér skilst að þú þurfir að vera með jailbreakaðan síma með uppsett OpenSSH og default password á það.

Re: Snjallsímabyltingin.

Sent: Lau 30. Okt 2010 14:38
af Glazier
Annars var ég að fá mér iPhone og ég hef ekki nokkrar áhyggjur af því að eitthver fari að hlera mig.

Og þessi grein með android held ég eins og aðrir eru að segja sé bara auglýsing fyrir Símann.
Ég er sáttur með minn iPhone og mun fá mér iPhone aftur seinna :)

Re: Snjallsímabyltingin.

Sent: Lau 30. Okt 2010 14:41
af audiophile
Ég hata iTunes, App store og allt tengd Apple þannig að ég persónulega myndi fá mér einhverja öfluga útgáfu af Android eða WP7.

Annars er ég nokkuð sáttur bara að notast við Nokia N79.

Re: Snjallsímabyltingin.

Sent: Lau 30. Okt 2010 16:37
af GuðjónR
audiophile skrifaði:Ég hata iTunes, App store og allt tengd Apple....

ussusss usss uss [-X

Re: Snjallsímabyltingin.

Sent: Lau 30. Okt 2010 17:12
af biturk
GuðjónR skrifaði:
audiophile skrifaði:Ég hata iTunes, App store og allt tengd Apple....

ussusss usss uss [-X

[-X [-X

:oops:

Re: Snjallsímabyltingin.

Sent: Lau 30. Okt 2010 17:38
af intenz
iDiots

Re: Snjallsímabyltingin.

Sent: Lau 30. Okt 2010 19:14
af razrosk
audiophile skrifaði:Ég hata iTunes, App stor.

Hata það líka... iTunes er totally stupid og ég reyni að nota það helst aldrei.. getur notað margt annað, t.d. winamp í það að synca ipod/phone. En ég elska vera með jailbreakaðan síma... þarf ekki að hanga í appstore XD