Síða 1 af 3

Spurning með harðan disk í tölvu

Sent: Fim 07. Okt 2010 20:49
af Fylustrumpur
ég er semsagt með þessa tölvu

http://www.elko.is/elko/product_detail/ ... oryid=2023

og mér langar að stækka harða diskinn í henni, en ég veit ekkert hvernig harðan disk maður á að kaupa og svoleiðis, ég var að pæla í þessum

http://www.att.is/product_info.php?cPat ... 5c879c2b54

virkar þessi í fartölvunni? og ef hann virkar þarf ég bara að taka hinn úr og setja þennan í og setja upp stýrikerfi? það væri gaman að vita þetta, og ef það er eitthvað meira að vita áður en ég geri þetta þá væri fínt að þið segið mér það :)

- Fýlustrumpur

Re: Spurning með harðan disk í tölvu

Sent: Fim 07. Okt 2010 21:00
af rapport
Ég mundi fá mér 7200 snúninga disk...

Og hugsanlega er verðmunurinn á 500 og 320 ekki mikill...

Re: Spurning með harðan disk í tölvu

Sent: Fim 07. Okt 2010 21:08
af Fylustrumpur
rapport skrifaði:Ég mundi fá mér 7200 snúninga disk...

Og hugsanlega er verðmunurinn á 500 og 320 ekki mikill...

er 7200 snúninga diskur mikið betra?

Re: Spurning með harðan disk í tölvu

Sent: Fim 07. Okt 2010 21:17
af Fylustrumpur
er þá ekki málið að kaupa þennan? :D

http://kisildalur.is/?p=2&id=1242

Re: Spurning með harðan disk í tölvu

Sent: Fim 07. Okt 2010 21:24
af AntiTrust
Ég verð reyndar að vera ósammála rapport, þetta er vél sem fókusar á að vera mobile, og með góða batterýendingu. 7200sn diskur gerir lítið fyrir þessa vél þar sem hardware-ið í kring er ekki það öflugt, nema drekka talsvert meira af rafhlöðunni vs 5400sn diskar.

Re: Spurning með harðan disk í tölvu

Sent: Fim 07. Okt 2010 21:29
af Fylustrumpur
AntiTrust skrifaði:Ég verð reyndar að vera ósammála rapport, þetta er vél sem fókusar á að vera mobile, og með góða batterýendingu. 7200sn diskur gerir lítið fyrir þessa vél þar sem hardware-ið í kring er ekki það öflugt, nema drekka talsvert meira af rafhlöðunni vs 5400sn diskar.

en gerir það ekkert meira?, ég er nebla bara alltaf með hana tengda í rafmagn

Re: Spurning með harðan disk í tölvu

Sent: Fim 07. Okt 2010 21:34
af AntiTrust
Fylustrumpur skrifaði:
AntiTrust skrifaði:Ég verð reyndar að vera ósammála rapport, þetta er vél sem fókusar á að vera mobile, og með góða batterýendingu. 7200sn diskur gerir lítið fyrir þessa vél þar sem hardware-ið í kring er ekki það öflugt, nema drekka talsvert meira af rafhlöðunni vs 5400sn diskar.

en gerir það ekkert meira?, ég er nebla bara alltaf með hana tengda í rafmagn

Hm, hvað meinaru? Munurinn á 5400sn og 7200sn disk er sá að 7200 er hraðari diskur en tekur sömuleiðis meira rafmagn.

Vona að þú sért ekki með batterý-ið alltaf í vélinni ef hún er alltaf í sambandi við rafmagn.

Re: Spurning með harðan disk í tölvu

Sent: Fim 07. Okt 2010 21:38
af Fylustrumpur
AntiTrust skrifaði:

nei, hef það ekki í :) en þetta svaraði spurninguni minni:)

en get ég bara tekið hinn úr og settt þennan í og skrifað stýrikerfi á hann til þess að hann virki? er ekkert meira við þetta?

Re: Spurning með harðan disk í tölvu

Sent: Fim 07. Okt 2010 21:45
af rapport
Þetta er rétt sem Antitrust er að segja, bæði með batterýið og diskinn.

Vélin er líklega ekki nógu öflug til að 5400 snúninga diskur takmarki hana = tilgangslaust aðvera kaupa dýrari disk sem gerir ekkert nema eyða meira rafmagni.

Svo má líka spara batterýið, hafa það með í töskunni en smella því bara öðru hvoru ef hún er alltaf í sambandi.

Re: Spurning með harðan disk í tölvu

Sent: Fim 07. Okt 2010 21:57
af Fylustrumpur
ok, mælið þið þá með að kaupa 5400 snúningadisk?

Re: Spurning með harðan disk í tölvu

Sent: Fim 07. Okt 2010 22:36
af Fylustrumpur
hvern á ég að kaupa?

http://www.kisildalur.is/?p=2&id=1343
eða
http://kisildalur.is/?p=2&id=1242

og síðan væri gott ef þið gætuð sagt mér hvort það er eitthvað meira en að tengja þennan við tolvunna og setja stýrikerfi upp eða hvort það væru uppfærslur og eitthvað vesen :knockedout

Re: Spurning með harðan disk í tölvu

Sent: Fim 07. Okt 2010 22:52
af IL2
Snúningshraðinn segir ekki allt. Fjöldi og stærð plattana skiptir líka máli.

Re: Spurning með harðan disk í tölvu

Sent: Fim 07. Okt 2010 22:58
af rapport
Ef þú átt orginal windows cd eða DVD þá er lítið annað en að setja hann í og installa...

Reyndar gott að taka backup af driverunum (getur sleppt því ef þú ert að nota windows 7).

Re: Spurning með harðan disk í tölvu

Sent: Fim 07. Okt 2010 22:59
af Fylustrumpur
IL2 skrifaði:Snúningshraðinn segir ekki allt. Fjöldi og stærð plattana skiptir líka máli.

er það svona eins og partition?

Re: Spurning með harðan disk í tölvu

Sent: Fim 07. Okt 2010 23:00
af Fylustrumpur
rapport skrifaði:Ef þú átt orginal windows cd eða DVD þá er lítið annað en að setja hann í og installa...

Reyndar gott að taka backup af driverunum (getur sleppt því ef þú ert að nota windows 7).

ok, cool :D

Re: Spurning með harðan disk í tölvu

Sent: Fim 07. Okt 2010 23:01
af Frost
http://tolvutaekni.is/product_info.php?cPath=24_39_116&products_id=1812

Skella sér á einn svona :sleezyjoe Langar ógeðslega mikið í einn svona!

Re: Spurning með harðan disk í tölvu

Sent: Fim 07. Okt 2010 23:03
af OverClocker
Þessi Seagate diskur er að nota næstum sama rafmagn og venjulegur 5400 diskur. Ekki spurning um að taka hann framyfir 5400.
Mjög gott verð á honum hjá Kísildal.

Re: Spurning með harðan disk í tölvu

Sent: Fim 07. Okt 2010 23:12
af Fylustrumpur
OverClocker skrifaði:Þessi Seagate diskur er að nota næstum sama rafmagn og venjulegur 5400 diskur. Ekki spurning um að taka hann framyfir 5400.
Mjög gott verð á honum hjá Kísildal.

jám, ég er að pæla svona meira í honum :)

Frost skrifaði:http://tolvutaekni.is/product_info.php?cPath=24_39_116&products_id=1812

Skella sér á einn svona :sleezyjoe Langar ógeðslega mikið í einn svona!

langar í! en ég á bara ekki pening :(

Re: Spurning með harðan disk í tölvu

Sent: Fös 08. Okt 2010 15:08
af Fylustrumpur
hmmm, ég er en þá ekki búinn að fatta hvaða disk ég á að fá mér.... hver ætti ég að fá? :knockedout

Re: Spurning með harðan disk í tölvu

Sent: Fös 08. Okt 2010 16:15
af zdndz
Fylustrumpur skrifaði:hvern á ég að kaupa?

http://www.kisildalur.is/?p=2&id=1343
eða
http://kisildalur.is/?p=2&id=1242

og síðan væri gott ef þið gætuð sagt mér hvort það er eitthvað meira en að tengja þennan við tolvunna og setja stýrikerfi upp eða hvort það væru uppfærslur og eitthvað vesen :knockedout

breytir ekki svo miklu fyrir þig hvort þú tekur 5400 eða 7200sn. en fyrst það munar 1.000 kalli myndi ég persónulega taka 7200sn.

Re: Spurning með harðan disk í tölvu

Sent: Fös 08. Okt 2010 17:16
af Fylustrumpur
zdndz skrifaði:
Fylustrumpur skrifaði:hvern á ég að kaupa?

http://www.kisildalur.is/?p=2&id=1343
eða
http://kisildalur.is/?p=2&id=1242

og síðan væri gott ef þið gætuð sagt mér hvort það er eitthvað meira en að tengja þennan við tolvunna og setja stýrikerfi upp eða hvort það væru uppfærslur og eitthvað vesen :knockedout

breytir ekki svo miklu fyrir þig hvort þú tekur 5400 eða 7200sn. en fyrst það munar 1.000 kalli myndi ég persónulega taka 7200sn.

já, ég held að ég tek hann :) :sleezyjoe

Re: Spurning með harðan disk í tölvu

Sent: Fös 08. Okt 2010 19:06
af Fylustrumpur
heyrðu ég tók eftir einu hjá mér 8-[

að ég er með eitthvað "ide" harðan disk

Mynd

þýðir það að ég get ekki notað þennan harðan disk? ég vona ekki [-o<

Re: Spurning með harðan disk í tölvu

Sent: Fös 08. Okt 2010 19:09
af BjarkiB
Fylustrumpur skrifaði:heyrðu ég tók eftir einu hjá mér 8-[

að ég er með eitthvað "ide" harðan disk

Mynd

þýðir það að ég get ekki notað þennan harðan disk? ég vona ekki [-o<

Ef móðurborðið styður bara IDE ættiru ekki að geta fengið þér Sata.
Finnst mjög ólíklegt að þú finnir nýjan IDE harðadisk útí búð, reyndu að finna eitthvern notaðan.

Leiðréttið mig ef ég er að fara með rangt mál

Re: Spurning með harðan disk í tölvu

Sent: Fös 08. Okt 2010 19:18
af Fylustrumpur
en ég fann á þessari síðu http://serverfault.com/questions/12025/ ... ard-drives að IDE er það sama og ATA og pata, er það rétt? það stendur allavegana í nafninu á harða diskinnum mínum ATA

Re: Spurning með harðan disk í tölvu

Sent: Fös 08. Okt 2010 19:36
af Olafst
IDE er það sama og PATA(Parallel ATA)
SATA er hinsvegar allt annað(Serial ATA)