Síða 1 af 1

Fartölvu pælingar

Sent: Fim 12. Ágú 2010 20:37
af Lunesta
ég er að leita mér að fartölvu sem er á milli 70 -110k eða svo og er að skoða notað og ónotað. Það væri frábært ef einhver gæti sýnt mér eitthvað sem ég hef ekki komið auga á ennþá.. legg fyrst og fremst áherslu á skjákort, örgjörva og minni og verður tölvan fyrst og fremst fyrir tölvu leiki... í mesta falli cod 4 eða mod warfare2 en það er í mesta falli. svo verður hún nátturulega notuð í skólan og svoleiðis líka..

með fyrirfram þökkum
Lunesta

Re: Fartölvu pælingar

Sent: Lau 14. Ágú 2010 14:22
af Lunesta
bump

Re: Fartölvu pælingar

Sent: Lau 14. Ágú 2010 21:06
af Oak
þetta eru miklar væntingar fyrir þennan pening held ég...

Re: Fartölvu pælingar

Sent: Lau 14. Ágú 2010 21:12
af Frost
Fyrir þennan pening færðu tölvu eins og ég er með og hún ræður við CS:S í lægstu stillingum í 9 fps. Ekki séns að þú færð tölvu sem ræður við þessa leiki fyrir þennan pening.

Re: Fartölvu pælingar

Sent: Lau 14. Ágú 2010 23:30
af Lunesta
k.. þá held ég að í mesta falli væri cod 2... það er ekkert vandarmál er það ?

Re: Fartölvu pælingar

Sent: Lau 14. Ágú 2010 23:52
af Halli13
Lunesta skrifaði:k.. þá held ég að í mesta falli væri cod 2... það er ekkert vandarmál er það ?


Fartölvan sem ég fékk í fermingagjöf fyrir meira en 3 árum er að keyra MW2 í öllum lægstu stillingum án þess að lagga neitt (kemur stundum smá en það er örsjaldan og aldrei meira en 5 sek bara í byrjun aldrei í miðjum leik) er samt frekar lengi að loada leikjunum allir komnir með 2-3 killl þegar ég loksins joina :? . Kostaði minnir mig 120.000 á sínum tíma.

Þanngi að þú ættir alveg að geta keyrt MW2 á vél fyrir 110.000.

Re: Fartölvu pælingar

Sent: Sun 15. Ágú 2010 11:45
af helgimann
Sæll vertu,

Ég er að selja vélina mína vegna þess að mér áskotnaðist stór leikjaborðvél og ætla að skipta minni út fyrir litla skólavél.

Vélin sem um ræðir er Asus vél sem ég keypti útí Svíþjóð í fyrrasumar (rétt um eins árs gömul) í http://www.siba.se (Siba er stór raftækjaverslun í Svíþjóð).

Eina sem er að vélinni er að músartakkinn á touchpadinu vinstra megin er orðinn minna næmur en hann var, maður þarf að ýta fastar en á hinn takkann. Hann virkar samt alveg og ég get aldrei eftir þessu því þetta venst. Annars er allt bara eins og nýtt miðað við 1 árs gamla tölvu.

Vélin er eins og ég sagði ASUS vél og helstu spekkar:
- 500gb 5400rpm harður diskur
- 4GB vinnsluminni DDR2 800Mhz
- 512 mb HD3470 skjákort
- 15,6" widescreen skjár (með gler-áferð)
- DVD spilari og skrifari
- Allt þetta helsta að sjálfsögðu, hátalarar, flýtiskipanir á lyklaborði, hleðslutæki og allt svona að sjálfsögðu

Ég er í vinnunni og er ekki með hana en hafðu samband ef þú vilt sjá myndir eða bara koma og kíkja á hana.
Ég tollskoðaði hana þegar ég kom með hana til landsins svo hún er alveg solid með tollgæslu límmiða á botninum (lendir ekki í veseni með hana að fara út) og ég á kvittunina og svona.

Verðhugmynd er u.þ.b. 100.000 kall


P.S. Skoðaði þessa til að fá verðhugmynd t.d. en hér er ASUS vél sem er svipuð en þó aðeins með 320gb hörðum disk og samnýttu skjákorti á 130.000 http://tolvulistinn.is/vara/19658

Re: Fartölvu pælingar

Sent: Mán 16. Ágú 2010 11:32
af Lunesta
líst alveg ágætlega á þessa.. en hvernig er örgjörvinn í henni og svo fæ ég útborgað í lok mánaðar svo við ættum alveg að vera kominn með öll svör þá..

Re: Fartölvu pælingar

Sent: Mán 16. Ágú 2010 14:05
af helgimann
Hún er með Intel Duo Core.
Man ekki hvort hún er 2 eða 2.2 ghz

skal láta þig fá product númer ...