Síða 1 af 1
Hvernig get ég kælt niður fartölvuna mína?
Sent: Mið 28. Júl 2010 01:18
af nessinn
Ég var að velta því fyrir mér hvernig ég færi að því að kæla niður fartölvuna mína.
Ég hef verið að spila leiki á henni eins og Bad Company 2 og Medal of Honor betuna og skjákortið verður skuggalega heitt og í eitt skiptið slökkti tölvan meira að segja á sér þegar ég var ekki nógu vakandi yfir að hætta að spila þegar hún var orðin heit.
Mig langar að vita hvort þetta sé einfaldlega bara tölvan sem ræður ekki við leikina eða hvort þetta geti verið eitthvað annað og hvernig ég gæti þá lagað það.
Ég hef heyrt að maður geti hreinsað ryk úr tölvunni sem getur hitað tölvuna frekar mikið upp og svo líka að kaupa kælipúða undir tölvuna. Ég hef prófað að hreinsa lítillega rykið en það hafði lítil sem engin áhrif á hitann.
Tölvan mín er Acer Aspire 5920G og spec'sið er eftirfarandi:
System Model: Aspire 5920G
Processor: Intel(R) Core(TM)2 Duo CPU T7300 @ 2.00GHz (2 CPUs), ~2.0GHz
Memory: 2048MB RAM
Available OS Memory: 2046MB RAM
Card name: NVIDIA GeForce 8600M GT
Display Memory: 1010 MB
Dedicated Memory: 243 MB
Shared Memory: 767 MB
Gaman væri að heyra tillögur að lausnum á þessum vanda mínum
Re: Hvernig get ég kælt niður fartölvuna mína?
Sent: Mið 28. Júl 2010 01:27
af Frost
Allt í lagi að prófa kælistand. Þessi tölva samt er engan vegin að höndla leikina nógu vel. Vinur minn átti svipaða tölvu og var að fá bluescreen í Cod4. Fara bara að safna fyrir borðtölvu, besta en engan vegin ódýrasta lausnin. Prófaðu kælistand fyrst samt, getur fengið ágætis kælistand hjá Tölvutækni á c.a. 6 þús.
Re: Hvernig get ég kælt niður fartölvuna mína?
Sent: Mið 28. Júl 2010 02:18
af nighthawk
nessinn skrifaði:Ég var að velta því fyrir mér hvernig ég færi að því að kæla niður fartölvuna mína.
Ég hef verið að spila leiki á henni eins og Bad Company 2 og Medal of Honor betuna og skjákortið verður skuggalega heitt og í eitt skiptið slökkti tölvan meira að segja á sér þegar ég var ekki nógu vakandi yfir að hætta að spila þegar hún var orðin heit.
Mig langar að vita hvort þetta sé einfaldlega bara tölvan sem ræður ekki við leikina eða hvort þetta geti verið eitthvað annað og hvernig ég gæti þá lagað það.
Ég hef heyrt að maður geti hreinsað ryk úr tölvunni sem getur hitað tölvuna frekar mikið upp og svo líka að kaupa kælipúða undir tölvuna. Ég hef prófað að hreinsa lítillega rykið en það hafði lítil sem engin áhrif á hitann.
Tölvan mín er Acer Aspire 5920G og spec'sið er eftirfarandi:
System Model: Aspire 5920G
Processor: Intel(R) Core(TM)2 Duo CPU T7300 @ 2.00GHz (2 CPUs), ~2.0GHz
Memory: 2048MB RAM
Available OS Memory: 2046MB RAM
Card name: NVIDIA GeForce 8600M GT
Display Memory: 1010 MB
Dedicated Memory: 243 MB
Shared Memory: 767 MB
Gaman væri að heyra tillögur að lausnum á þessum vanda mínum
Ef tölvan hefur aldrei verið rykhreinsuð síðan hún var keypt er líklegt að rykið hafi þjappast í ull og nánast lokað alveg fyrir,
þá þarf maður að opna hana og taka rykið og ég mæli með að setja nýtt kælikrem líka í leiðinni. Svo líka eru ferðatölvur
hannaðar til láta vifturnar koma eins seint í 100% og hægt er, það myndi gefa tölvunni kæliforskot að setja viftuna í 100%
áður en þú ferð í leikinn. Ég held reyndar að það séu ekki til 3rd party forrit til að stjórna viftunni í Aspire tölvum, myndi
tékka hvort það er til forrit á Acer síðunni. Náðu í nýjasta Nvidia driverinn ef þú ert ekki búinn að því, physx er orðið nokkuð
gott í að dreifa þunganum. Svo bara vera viss að tölvan nái að anda vel undir, þetta á allt að duga til að koma í veg fyrir ohitnun.
Re: Hvernig get ég kælt niður fartölvuna mína?
Sent: Mið 28. Júl 2010 18:28
af capteinninn
Tja tölvan mín ræður nokkuð auðveldlega við modern warfare 2.
Ég uppfæri nokkuð reglulega driverana fyrir skjákortið. Defragment-a tölvuna líka reglulega og passa ágætlega upp á hana.
Einu leikirnir sem ég hef spilað sem reyna svona mikið á tölvuna eru Bad Company 2 og Medal of Honor betan.
Er að spá að fara báðar leiðir og prófa fyrst að rykhreinsa hana. Hvar gæti ég látið gera það og setja nýtt kælikrem í hana?
Re: Hvernig get ég kælt niður fartölvuna mína?
Sent: Mið 28. Júl 2010 22:20
af chaplin
Rykhreinsaði gömlu IBM vélina mína einusinni, breytti ekki miklu enda ekkert rosalega mikið ryk í henni, skipti síðan um kælikrem og fór hitinn niður um 15°c +/- 3°c, annars er mun einfaldara að láta rykhreinsa, etv. full af ryki og ef það dugar ekki, að þá splæsa í kælistand. Skipta um kælikrem gæti etv. ekki breytt um neitt fyrir þig, svo ég mæli með að þú byrjir á fyrr nefndum aðferðum.
Re: Hvernig get ég kælt niður fartölvuna mína?
Sent: Mið 28. Júl 2010 22:32
af Julli
Re: Hvernig get ég kælt niður fartölvuna mína?
Sent: Mið 28. Júl 2010 22:33
af peer2peer
ég var einmitt að rífa Hp vél í sundur og rykhreinsa , full throttle hitinn lækkaði um tæpar 23 gráður , enda 3 ára gömul vél , sem hafði aldrei verið rykhreinsuð.
góð kæliplata er kannski í mesta lagi að gefa þér 3-5 gráður lækkun
Re: Hvernig get ég kælt niður fartölvuna mína?
Sent: Mið 28. Júl 2010 22:47
af Halli25
myndi skoða að nota eitthvað eins og t.d.
http://tl.is/vara/19970 þegar þú ert að spila leiki
Re: Hvernig get ég kælt niður fartölvuna mína?
Sent: Fim 05. Ágú 2010 01:11
af nessinn
Ég keypti loftsprey og tók lokið aftan af tölvunni og blés þangað til að ég hætti að sjá ryk koma úr henni, kom alveg fínt fiff fyrst en svo kom minna og minna.
Ég sé voðalega lítinn mun á hitanum. Nota SpeedFan til að skoða hitastigið. Ég er að gera nákvæmlega sömu hluti og áður en ég byrjaði, skoða netið í Chrome, horfa á The Wire í VLC og með SpeedFan í gangi til að sjá hitann.
Er ég að nota vitlaust forrit til að sjá hitann eða hreinsaði ég kannski ekki nógu vel?
Re: Hvernig get ég kælt niður fartölvuna mína?
Sent: Fim 05. Ágú 2010 01:33
af Frost
Notaðu frekar Hardware Monitor. Speedfan er að gefa frá sér ónákvæmar tölur.
Re: Hvernig get ég kælt niður fartölvuna mína?
Sent: Fim 05. Ágú 2010 06:00
af Carragher23
Hvad er þetta hardware monitor. Ekki default forrit í wondows 7 a.m.k.
Re: Hvernig get ég kælt niður fartölvuna mína?
Sent: Fim 05. Ágú 2010 09:21
af kubbur
held að fartölvustandur sé your best shot eftir að hafað látið rykhreinsa hana, og það er ekkert svaka sniðugt að blása með svona loftsprayum inní tölvuna, gætir auðveldlega eyðilaggt vifturnar
Re: Hvernig get ég kælt niður fartölvuna mína?
Sent: Fim 05. Ágú 2010 09:54
af ZoRzEr
Carragher23 skrifaði:Hvad er þetta hardware monitor. Ekki default forrit í wondows 7 a.m.k.
http://www.cpuid.com/softwares/hwmonitor.htmlEinfalt og gott forrit, með þeim betri til að fylgjast með hitastigi.
Re: Hvernig get ég kælt niður fartölvuna mína?
Sent: Fim 05. Ágú 2010 13:36
af nessinn
Mér er sagt að fartölvustandar geri voðalega lítið til að kæla tölvuna niður. Er það ekki alveg rétt ?
Ég á eftir að gera frekari prófanir með hitastigið með því að spila leiki sem reyna meira á skjákortið en enn sem komið er sýnist mér lítil breyting vera til staðar.
Þegar ég blés í tölvunni notaði ég óbólstraðan enda á q-tip til að halda viftunni kyrri þannig að mótórinn yrði ekki fyrir hnjaski
Náði í HWMonitor og ætla að nota það framvegis þar sem það er nákvæmara en SpeedFan og ég get séð hitastigið á mismunandi hlutum í tölvunni.
Re: Hvernig get ég kælt niður fartölvuna mína?
Sent: Fim 05. Ágú 2010 13:56
af zdndz
eitt á 4þ
http://isiminn.is/product.php?id_product=31þó ég hafi ekki hugmynd um hversu mikið gagn þetta gerir
Re: Hvernig get ég kælt niður fartölvuna mína?
Sent: Mið 11. Ágú 2010 22:26
af Cicero
Sæll,
ég keypti mér þessa kælimottu
http://www.computer.is/vorur/3338/ og hún þrælvirkar alveg. Tölvan hjá mér var byrjuð að ofhitna alveg svakalega og dó oftast þegar ég var búinn að keyra WoW o.fl. leiki lengur en í 1-2 tíma, core hitinn lækkaði um 10-15° og tölvan hefur ekki slökkt á sér síðan ég fékk mér mottuna...
Re: Hvernig get ég kælt niður fartölvuna mína?
Sent: Fim 12. Ágú 2010 00:35
af Black
Re: Hvernig get ég kælt niður fartölvuna mína?
Sent: Fim 12. Ágú 2010 00:52
af Hargo
Ég hef prófað svona kælimottu á gamla fartölvu sem ég átti og það virkaði ágætlega. Kælimottur eru engu að síður misgóðar eins og gefur að skilja. Ég á t.d. tvær, önnur er hljóðlát og kælir lítið. Hin er hávær en kælir alveg svakalega vel.
Ég tók hana einnig í sundur og skipti um kælikrem, það munaði einnig mjög miklu á hitastiginu eftir það.
Re: Hvernig get ég kælt niður fartölvuna mína?
Sent: Sun 15. Ágú 2010 18:21
af zdndz
Black skrifaði:
lol