Síða 1 af 1

Fartölvu á 100 þús max fyrir skóla

Sent: Mið 07. Júl 2010 16:33
af peer2peer
Sælir , hvaða vélar væru þið með í huga fyrir skólagöngu , ef budgetið er 100 þús kall ?
ég er sjálfur með Lenovo G550 í huga sem er á 99.990 kr á buy.is

vill ekki hafa tölvunna stærri en 15"6 og ekki minni en 13"3.

Endilega deilið með mér áliti ykkar

Re: Fartölvu á 100 þús max fyrir skóla

Sent: Mið 07. Júl 2010 17:04
af Halli25
http://tl.is/vara/19734 þessi er fýsileg kostur líka betri örgjörvi, 13.3 sem er snilld á ferðinni. Ekkert mál að stækka minnið í henni.

Persónulega myndi ég ekki fá mér stærri en 14" vél í skólann

Re: Fartölvu á 100 þús max fyrir skóla

Sent: Mið 07. Júl 2010 17:28
af rapport
T4400 er nánast 33% öflugri en T5870 skv. passmark.com

Báðar vélar eru ekkert spes og ef þú ætlar að fara eyða nokkrum árum í skóla þá er næsta víst að hvorug mun duga almennilega næstu þrjú árin.

p.s. afgreiðir buy.is sínar vélar með ábrenndu íslensku lyklaborði, ég þoli ekki límmiða á fartölvulyklaborðum?

Ég mundi reyna að kaupa notaða vel á ásættanlegu verði

Re: Fartölvu á 100 þús max fyrir skóla

Sent: Mið 07. Júl 2010 17:32
af Halli25
rapport skrifaði:p.s. afgreiðir buy.is sínar vélar með ábrenndu íslensku lyklaborði, ég þoli ekki límmiða á fartölvulyklaborðum?

HAHAHA... þarft að kaupa svo margar vélar til að fá ábrennda íslenska stafi... toshiba vélin er með dönsku layouti sem er það næsta sem kemst íslenska lyklaborðinu og með <|> takkanum og stórum enter takka.

Re: Fartölvu á 100 þús max fyrir skóla

Sent: Mið 07. Júl 2010 17:50
af rapport
faraldur skrifaði:
rapport skrifaði:p.s. afgreiðir buy.is sínar vélar með ábrenndu íslensku lyklaborði, ég þoli ekki límmiða á fartölvulyklaborðum?

HAHAHA... þarft að kaupa svo margar vélar til að fá ábrennda íslenska stafi... toshiba vélin er með dönsku layouti sem er það næsta sem kemst íslenska lyklaborðinu og með <|> takkanum og stórum enter takka.


Hvað ertu að bulla...

Ég hef keypt þó nokkrar vélar í gegnum tíðina og aldrei þurft að vera með límmiða, Mitac, Dell, Lenovo, Acer, Asus...

Allar með íslensku lyklaborði...

Er þetta ekki bara spurning um að fá eins og þú segir breska eða danska layoutið á lyklaborðin og svo skipta um takka?

Minnir að strákar sem ég þekki hafi fengið þetta gert við einhverjar 20 tölvur sem þeir fengu keyptar sem demo frá Kína í gegnum globalsources.com

Ef það er hægt að fá Kínverja til aðgera þetta við demo sendingu, þá getur þetta ekki verið mikið mál...