Síða 1 af 1
Nýr sími, blackberry málið?
Sent: Fim 06. Maí 2010 11:42
af Viktor
Sælir.
Gamli er að fara kaupa nýjan síma, verðbilið 40-60k. Hann langar að geta skoðað tölvupóstinn og geta skrifað hann.
Skoðaði Vefverslun Símans og sá þennan:
https://vefverslun.siminn.is/vorur/fars ... 520_black/Eitthvað sem þið mælið með?
Re: Nýr sími, blackberry málið?
Sent: Fim 06. Maí 2010 11:50
af vesley
Hef prufað þennan síma og finnst hann vera algjör snilld.
https://vefverslun.siminn.is/vorur/fars ... 5800_blue/ snertiskjárinn þæginlegur í notkun og getur stillt þannig að það sé lyklaborð á skjánum.
Re: Nýr sími, blackberry málið?
Sent: Fim 06. Maí 2010 12:23
af Oak
notaðan iPhone 2G eða 3G.
slær öllum öðrum við hvað varðar tölvupóst og svo margt annað.
Re: Nýr sími, blackberry málið?
Sent: Fim 06. Maí 2010 12:26
af Viktor
Hann ætlar ekki að kaupa sér notaðan
Re: Nýr sími, blackberry málið?
Sent: Fim 06. Maí 2010 12:46
af intenz
Nexus One!
Re: Nýr sími, blackberry málið?
Sent: Fim 06. Maí 2010 12:49
af vesley
intenz skrifaði:Nexus One!
Hlýtur að gera þér grein fyrir því að Nexus one er um 130 þúsund kall og budgetið hjá honum er 40-60 þúsund kall.
Re: Nýr sími, blackberry málið?
Sent: Fim 06. Maí 2010 13:18
af JohnnyX
Félagin minn notast við þennan hérna
https://vefverslun.siminn.is/shop.do?pID=10907 og notar hann mikið tölvupóst í símanum.
Re: Nýr sími, blackberry málið?
Sent: Fim 06. Maí 2010 13:23
af AntiTrust
Get mælt eindregið með þessum. Búinn að eiga yfir hundrað síma, og þessi er líklega sá gallalausasti sem ég hef átt og á enn. Þvílíkt value fyrir peninginn. Hraðvirkur, vel búinn, gott batterý, góður og mjög responsive snertiskjár, mikið af flottu fríu software til, standard símalayout sem og qwerty þegar símanum er hallað til hliðar.
Ég er alveg hræðilega pikkí á síma og ég á ennþá eftir að finna e-ð sem angrar mig við þennan. Tæki þennan allavega langtum framyfir 5800, þú færð WiFI og GPS í 5800. Ég persónulega nota WiFi óskaplega sjaldan þar sem 3.5G er orðið það hratt og ódýrt, og það er A-GPS í 5320.
Get hinsvegar ekki mælt með Blackberry nema þú ætlir að kaupa þér þjónustuna líka. Ef þú ert að leitast eftir sama platformi og sá sími get ég mælt með Nokia E71, aðeins dýrari reyndar en mjög góður sími, vel byggður, sturdy, sæmilega hraðvirkur og mikið hægt að customize-a.
Re: Nýr sími, blackberry málið?
Sent: Fim 06. Maí 2010 13:54
af sakaxxx
http://buy.is/product.php?id_product=990 ég var næstum því búinn að kaupa mér þennan en fann svo iphone 2g á sama verði og skellti mér á hann sé enganvegin eftir því
hef samt lesið mörg review um nokia 5230 og hann á að vera góður
Re: Nýr sími, blackberry málið?
Sent: Fim 06. Maí 2010 18:11
af Viktor
Hann pantaði 5230
Þakka svörin
Re: Nýr sími, blackberry málið?
Sent: Fim 06. Maí 2010 18:16
af intenz
vesley skrifaði:intenz skrifaði:Nexus One!
Hlýtur að gera þér grein fyrir því að Nexus one er um 130 þúsund kall og budgetið hjá honum er 40-60 þúsund kall.
Hehe núna já, ég las ekkert budgetið
Re: Nýr sími, blackberry málið?
Sent: Þri 11. Maí 2010 14:39
af gardar
Það sökkar endalaust mikið,
physical takkar > snertiskjár anyday!
Re: Nýr sími, blackberry málið?
Sent: Þri 11. Maí 2010 15:13
af AntiTrust
gardar skrifaði:Það sökkar endalaust mikið,
physical takkar > snertiskjár anyday!
Ég hef alltaf verið sammála þessu þangað til ég eignaðist 5230 (Sami sími, minni fítusar en 5800). Ekkert lítið gott qwerty lyklaborðið á skjánum.
Re: Nýr sími, blackberry málið?
Sent: Þri 11. Maí 2010 15:19
af bolti
Myndi eyða aðeins meira og fá mér HTC Desire eða HTC Legend hjá
http://www.buy.is var að versla svoleiðis. Fékk síman 2 dögum seinna og þessi sími er það svalasta sem ég hef séð á æfini....
Re: Nýr sími, blackberry málið?
Sent: Þri 11. Maí 2010 15:22
af Hargo
Ég er einmitt að leita mér að nýjum gemsa. Er orðinn spenntur fyrir Nokia 5230. Mun þá alveg pottþétt kaupa hann af buy.is, mun ódýrari en hjá bæði Elko og Símanum.
Fyrst að Antitrust gefur honum góð meðmæli þá ætti nú að vera hægt að treysta því. Hann er einnig smekksmaður á fartölvur veit ég
Re: Nýr sími, blackberry málið?
Sent: Þri 11. Maí 2010 15:45
af Viktor
bolti skrifaði:Myndi eyða aðeins meira og fá mér HTC Desire eða HTC Legend hjá
http://www.buy.is var að versla svoleiðis. Fékk síman 2 dögum seinna og þessi sími er það svalasta sem ég hef séð á æfini....
Aðeins meira? HTC Legend kostar 2-3x meira. Frekar pirrandi svona comment þegar maður er búinn að nefna budget.
5230 er að reynast mjög vel, qwerty lyklaborðið er unaður.
Re: Nýr sími, blackberry málið?
Sent: Þri 11. Maí 2010 19:09
af bolti
Sallarólegur skrifaði:bolti skrifaði:Myndi eyða aðeins meira og fá mér HTC Desire eða HTC Legend hjá
http://www.buy.is var að versla svoleiðis. Fékk síman 2 dögum seinna og þessi sími er það svalasta sem ég hef séð á æfini....
Aðeins meira? HTC Legend kostar 2-3x meira. Frekar pirrandi svona comment þegar maður er búinn að nefna budget.
5230 er að reynast mjög vel, qwerty lyklaborðið er unaður.
Sorry, ætlaði nú ekki að pirra háttvirtan
Er bara búinn að vera að aðstoða fólk síðastliðnar vikur með einhverja Nokia síma og mér fynnst þeir einu orði sagt DRASL
Símarnir sjálfir eru mjög flottir en stýrikerfið í þessu er orðið algert rugl.
Ég myndi mikið frekar skoða LG Android síman sem Síminn er að selja, Huawei Android símann sem Síminn er líka að selja og fleiri Android, BADA, Windows Mobile eða iPhone síma.
Allavega ef þú ert að fá þér smartphone á annað borð.
Re: Nýr sími, blackberry málið?
Sent: Þri 18. Maí 2010 23:47
af Hargo
Nennti ekki að búa til nýjan þráð.
Ég skellti mér líka á Nokia 5230 eftir að hafa lesið þessa umræðu og kynnt mér kosti símans. Sé ekki eftir því, mjög ánægður með símann. Finnst ég vera að fá mikið fyrir peninginn allavega. Eflaust vel hægt að fá sér betri síma á meiri pening eins og alltaf, en fyrir 30þús er þetta alveg málið. Nú er maður bara að prófa sig áfram, downloada sniðugum forritum og fleiru skemmtilegu. Eitthvað sérstakt sem þið mælið með?
Antitrust skrifaði:Ég er alveg hræðilega pikkí á síma og ég á ennþá eftir að finna e-ð sem angrar mig við þennan. Tæki þennan allavega langtum framyfir 5800, þú færð WiFI og GPS í 5800. Ég persónulega nota WiFi óskaplega sjaldan þar sem 3.5G er orðið það hratt og ódýrt, og það er A-GPS í 5320.
Hver er munurinn á GPS og A-GPS ?
Annars átti ég fremur hráan 3G síma fyrir sem var farinn að klikka, keyptur þegar 3G var svona nýlega byrjað og sá sími var fremur ódýr á þeim tíma (um 20k). Þegar ég surfaði netið í honum var það svakalega lengi að loadast. Í Nokia 5230 er þetta allt annað líf, vissi ekki að það væri svona mikill munur á hraða.
Re: Nýr sími, blackberry málið?
Sent: Mið 19. Maí 2010 01:08
af kubbur
n97 mini, aðeins fyrir ofan budgetið en svoo þess virði
Re: Nýr sími, blackberry málið?
Sent: Mið 19. Maí 2010 02:06
af vesley
kubbur skrifaði:n97 mini, aðeins fyrir ofan budgetið en svoo þess virði
Hann er búinn að kaupa síma og það fyrir um 2 vikum..
Re: Nýr sími, blackberry málið?
Sent: Mið 19. Maí 2010 10:35
af corflame
Nokia 5230, hrikalega mikill sími fyrir peninginn og venst mjög vel
Re: Nýr sími, blackberry málið?
Sent: Mið 19. Maí 2010 13:28
af kubbur
vesley skrifaði:kubbur skrifaði:n97 mini, aðeins fyrir ofan budgetið en svoo þess virði
Hann er búinn að kaupa síma og það fyrir um 2 vikum..
já ég veit, langaði samt að koma eþssu að ^^