Síða 1 af 1
Hvaða fartölvu mælið þið með?
Sent: Lau 24. Apr 2010 16:22
af magnus12
Ég er að fara að kaupa mér fartölvu, en ég hef ekki hugmynd um hvaða tegund ég ætti að kaupa. Ég er að spá í að eyða svona 100-150þ. Ég er að leita að endingargóðri og þægilegri tölvu frá búð sem veitir góða þjónustu ef hún bilar. Ég mun helst nota hana í netráp og til að horfa á kvikmyndir og það væri fínt ef hún gæti keyrt photoshop og sambærileg forrit auðveldlega. Ég mun ekki nota hana í að spila tölvuleiki. Ég er mest að spá í tölvu með 15 tommu skjá, en 17 kemur líka til greina.
Endilega látið mig vita ef þið vitið um einhverja góða tölvu sem ég ætti að kaupa.
Re: Hvaða fartölvu mælið þið með?
Sent: Lau 24. Apr 2010 17:48
af AntiTrust
1. IBM/Lenevo
2. IBM/Lenevo
3. IBM/Lenevo
4. Dell
5. HP
Hvað sem þú gerir, ekki fá þér 17" vél. Þekki ósköp fáa sem stórsjá ekki eftir slíkum kaupum, enda er 17" fartölva varla að standa undir nafni.
Re: Hvaða fartölvu mælið þið með?
Sent: Lau 24. Apr 2010 17:58
af sakaxxx
ég segi ibm ef þú villt gæði
Re: Hvaða fartölvu mælið þið með?
Sent: Lau 24. Apr 2010 19:28
af Gullisig
Asus
Re: Hvaða fartölvu mælið þið með?
Sent: Lau 24. Apr 2010 19:37
af chaplin
1. IBM
2. Asus
3. Apple
Re: Hvaða fartölvu mælið þið með?
Sent: Lau 24. Apr 2010 20:33
af mattiisak
IBM og IBM og svo IBM og asus
Re: Hvaða fartölvu mælið þið með?
Sent: Lau 24. Apr 2010 21:58
af peer2peer
Asus eða Dell !!
Antitrust : Hp are you serious ?
Re: Hvaða fartölvu mælið þið með?
Sent: Lau 24. Apr 2010 22:15
af magnus12
Takk fyrir svörin. Nú sé ég að margir nefna IBM. Hvar mælið þið með að kaupa IBM tölvur? Er Nýherji eina búðin sem selur IBM?
Re: Hvaða fartölvu mælið þið með?
Sent: Lau 24. Apr 2010 22:26
af AntiTrust
peturthorra skrifaði:Asus eða Dell !!
Antitrust : Hp are you serious ?
Já, why? Afþví að ein og ein consumer vél hefur sett HP í 25% bilanatíðniflokkinn? Hefuru virkilega skoðað hvað það er lítill munur prósentulega á bestu og verstu framleiðendum reliability vice?
Það munar 10% á bestu og verstu, af þeim stærstu. 10% er ekki nóg til að fæla fólk frá framleiðanda sem hefur gert afbragðsvélar í fleiri fleiri ár. Consumer vélarnar sem voru framleiddar 2007-2009 hafa ekki verið að koma vel út, Elitebook vélarnar hafa hinvsegar komið ofsalega vel út.
Re: Hvaða fartölvu mælið þið með?
Sent: Lau 24. Apr 2010 22:27
af AntiTrust
magnus12 skrifaði:Takk fyrir svörin. Nú sé ég að margir nefna IBM. Hvar mælið þið með að kaupa IBM tölvur? Er Nýherji eina búðin sem selur IBM?
Nei, ýmsar búðir með IBM, en Nýherji auðvitað með mesta úrvalið. Sp. um að athuga hvað Buy.is getur gert f. þig.
Re: Hvaða fartölvu mælið þið með?
Sent: Lau 24. Apr 2010 22:29
af Hj0llz
IBM er the way 2 go ef þú ert að leita að stöðuleika
Re: Hvaða fartölvu mælið þið með?
Sent: Lau 24. Apr 2010 22:32
af Hj0llz
og ég er sammála Antitrust, fór sjálfur í 17" í denn og ekkert nema leiðindi
Re: Hvaða fartölvu mælið þið með?
Sent: Lau 24. Apr 2010 22:34
af Hargo
Buy.is eru líka með einhverjar Lenovo vélar til sölu.
Get vottað fyrir 17" mistök sjálfur. Átti einu sinni 17" hlunk sem ég varð fljótt þreyttur á.
Re: Hvaða fartölvu mælið þið með?
Sent: Sun 25. Apr 2010 05:57
af Major Bummer
1. Acer
2. IBM/Lenovo
3. HP
Re: Hvaða fartölvu mælið þið með?
Sent: Sun 25. Apr 2010 11:45
af einsii
Hargo skrifaði:Buy.is eru líka með einhverjar Lenovo vélar til sölu.
Get vottað fyrir 17" mistök sjálfur. Átti einu sinni 17" hlunk sem ég varð fljótt þreyttur á.
Færð þér 17" apple.. þær eru ekki hlunkar samanborið við 15-16" PC.
Annars er rýmingarsala hjá Epli.is, hægt að gera fín kaup þar núna.
Re: Hvaða fartölvu mælið þið með?
Sent: Sun 25. Apr 2010 11:59
af Hargo
17" apple? Macbook pro þá? Kostar "bara" 459þús - var á tilboði á 350þús en er uppseld hjá epli.is
Re: Hvaða fartölvu mælið þið með?
Sent: Sun 25. Apr 2010 12:19
af biturk
einsii skrifaði:Hargo skrifaði:Buy.is eru líka með einhverjar Lenovo vélar til sölu.
Get vottað fyrir 17" mistök sjálfur. Átti einu sinni 17" hlunk sem ég varð fljótt þreyttur á.
Færð þér 17" apple.. þær eru ekki hlunkar samanborið við 15-16" PC.
Annars er rýmingarsala hjá Epli.is, hægt að gera fín kaup þar núna.
hvernig er það, notar apple einhverjar aðrar tommur þá eða??
annars er það bara
ibm\lenovo
asus
hp
acer er ekkert nema bilun og vandræði
dell er ekkert nema rusl þar til þú ert kominn upp í geðsjúkann verðflokk
packard dell eru bara lala, fynnst persónulega þær ljótar og einhvern veginn leiðinlegt að vinna á þær
en lenovo hefur það fram yfir allar tölvur að hafa snípinn í lyklaborðinu sem að er að mínu viti eina stjórntæki á fartölu sem hægt er að nota, ég hata og fyrlít touchpad, ekkert smá ömurlegt að nota það helvíti
Re: Hvaða fartölvu mælið þið með?
Sent: Sun 25. Apr 2010 13:07
af GullMoli
Hmm, líst fólki ekkert á Toshiba vélarnar? Ég er sjálfur með eina sem fer að fara verða 2 ára, aldrei lent í neinu veseni og virkilega góð vél í alla staði.
Re: Hvaða fartölvu mælið þið með?
Sent: Sun 25. Apr 2010 13:28
af ManiO
Ferðatölvur almennt bila mjög mikið. Sú vél sem var með bestu endinguna sem ég hef séð er 17" G4 Powerbook.
Mæli með að halda sér frá Dell. Lenovo er fínt, en diskarnir voru slappir fyrir nokkrum árum (2 diskar farnir á 2 tölvum, keyptar með árs millibili, tveir mismunandi notendur). Þekki ekki fartölvur Asus, Acer, HP og Toshiba.
Re: Hvaða fartölvu mælið þið með?
Sent: Sun 25. Apr 2010 14:18
af CendenZ
ManiO skrifaði:Ferðatölvur almennt bila mjög mikið. Sú vél sem var með bestu endinguna sem ég hef séð er 17" G4 Powerbook.
Mæli með að halda sér frá Dell. Lenovo er fínt, en diskarnir voru slappir fyrir nokkrum árum (2 diskar farnir á 2 tölvum, keyptar með árs millibili, tveir mismunandi notendur). Þekki ekki fartölvur Asus, Acer, HP og Toshiba.
What
Ég á Dell inspiron 9300, 17' Wuxga skjár (osom!) og hún hefur ekki bilað hjá mér. Ég reyndar setti í hana stærri HD og meira minni, en otherwise er það frábær tölva. Hún er 5 ára!
Ég mæli með Dell og Lenovo, maður á ekki að forðast farðtölvur því að hörðu diskarnir í þeim hafa bad rep.
Re: Hvaða fartölvu mælið þið með?
Sent: Sun 25. Apr 2010 17:52
af magnus12
Jæja, ég er búinn að skoða þetta svolítið og mér finnst IBM tölvurnar heldur dýrar. Ég er hinsvegar búinn að finna nokkrar á buy.is sem mér lýst vel á en ég get ekki valið á milli.
http://buy.is/product.php?id_product=960http://buy.is/product.php?id_product=1331http://buy.is/product.php?id_product=1330http://buy.is/product.php?id_product=735Af þessum þá lýst mér eiginlega best á ASUS K50IJ-H1 (linkur nr. 2). En ég er með eina spurningu varðandi örgjörvana. Er mikill munur á þeim, er t.d. Intel Core 2 duo örgjörvinn mun betri en Intel Pentium T4400 eða skiptir þetta engu máli?
Takk fyrir öll svörin.
Re: Hvaða fartölvu mælið þið með?
Sent: Sun 25. Apr 2010 20:42
af biturk
borgar fyrir mikið meira og betri gæði hjá þeim í lenovo
skrepptu í eh búð sem selur lenovo á staðnum og kynntu þér td rauða snípinn og prófaðu soldið, þú munt aldrei snúa aftur þegar þú áttar þig á því hvað hann er góður
einnig eru þær laaaaaangt sterkustu tölvurnar uppá högg aðgera, finnur ekki betri vörur í það.
Re: Hvaða fartölvu mælið þið með?
Sent: Sun 25. Apr 2010 20:50
af AntiTrust
biturk skrifaði:einnig eru þær laaaaaangt sterkustu tölvurnar uppá högg aðgera, finnur ekki betri vörur í það.
Jebb, Active Protection Systems á HDD, rollcage og flr. búnaður gerir þær hrikalega sterkar. Þær eru því miður ekki eins góðar í dag og þær voru þegar IBM réð völdum, en eru ekki beint illa byggðar f. vikið.
Mæli með þessari grein hérna, gott review um G550.
http://www.notebookreview.com/default.a ... enovo+g550Hef handleikið nokkrar slíkar sjálfur og leist mjög vel á - þótt að skjástærð sem og overall stærð sé ekki minn tebolli.
Re: Hvaða fartölvu mælið þið með?
Sent: Mán 26. Apr 2010 22:38
af einsii
biturk skrifaði:einsii skrifaði:Hargo skrifaði:Buy.is eru líka með einhverjar Lenovo vélar til sölu.
Get vottað fyrir 17" mistök sjálfur. Átti einu sinni 17" hlunk sem ég varð fljótt þreyttur á.
Færð þér 17" apple.. þær eru ekki hlunkar samanborið við 15-16" PC.
Annars er rýmingarsala hjá Epli.is, hægt að gera fín kaup þar núna.
hvernig er það, notar apple einhverjar aðrar tommur þá eða??
Eru til margar gerðir af tommum ?
En þar sem ég hef notað 16" Dell bakpoka undir vélina hjá mér með góðum árangri ákvað ég að bera tvær vélar saman. Tók myndir fyrir þá sem hata Apple of mikið til að trúa
Þið afsakið drasl og lélega myndvinnslu, Var ekkert að setja mig í stellingar fyrir þetta, sópaði bara frá mér á vinnuborðinu hjá konuni.
Þetta er semsagt 15,4" Latitude VS 17" Unibody