Síða 1 af 1

rykhreinsa fartölvu

Sent: Sun 03. Jan 2010 23:39
af tomas52
ég var að spá hvort tölvuverslanir taka þetta ekki að sér? hver er ódýrust? :)

Re: rykhreinsa fartölvu

Sent: Mán 04. Jan 2010 18:27
af tomas52
Hjálp takk :)

Re: rykhreinsa fartölvu

Sent: Mán 04. Jan 2010 18:33
af Glazier
Talaðu við þá í Kísildal ;)

Re: rykhreinsa fartölvu

Sent: Mán 04. Jan 2010 18:34
af Elmar
ekkert mál að gera þetta sjálfur :)

Re: rykhreinsa fartölvu

Sent: Þri 05. Jan 2010 17:43
af tomas52
well það endaði ekki vel að gera þetta sjálfur :(

Re: rykhreinsa fartölvu

Sent: Þri 05. Jan 2010 17:47
af AntiTrust
Elmar skrifaði:ekkert mál að gera þetta sjálfur :)


Það er nú ekki alveg rétt, oft þarf að taka tölvuna gjörsamlega í sundur til að komast að viftunni. Þegar það er kominn ágætis rykveggur fyrir framan útblástursopið og í viftuna sjálfa dugar ekkert að blása bara með háþrýstilofti innum raufarnar.

Oft samt sem áður sem það er skrúfanleg loka beint f. ofan viftuna sem hægt er að komast auðveldlega í.

Re: rykhreinsa fartölvu

Sent: Þri 05. Jan 2010 18:44
af biturk
acer aspire 5100, þarftu að taka eitt lok af að neðan með minnir mig 5 skrúfum. þá kemsu að viftunni og hún er fest með tveim eða þrem skrúfum.

ibm thinkpad r51, þar þarftu að taka lyklaborðið upp og panelið í kringum það, þá kemstu að viftu og þar eru tvær skrúfur sem festa viftu.

þetta er mjög misjafnlega mikið vesen.

ps get tekið að mér að rykhreinsa tölvur fyrir lítið á akureyri!

Re: rykhreinsa fartölvu

Sent: Þri 05. Jan 2010 23:16
af tomas52
þetta er hp pavilion dv9410 us og ég er búinn að rífa hana alla í sundur nema ég komst ekki alveg að viftunni svo ég treysti mér ekki lengra svo ég mundi ekki brjóta neitt svo ég setti hana aftur saman.. en ég er í mosó svo ég finn mér eitthvað gott hér á höfuðborgarsvæðinu ;)

Re: rykhreinsa fartölvu

Sent: Mið 06. Jan 2010 00:15
af stingers
tomas52 skrifaði:þetta er hp pavilion dv9410 us og ég er búinn að rífa hana alla í sundur nema ég komst ekki alveg að viftunni svo ég treysti mér ekki lengra svo ég mundi ekki brjóta neitt svo ég setti hana aftur saman.. en ég er í mosó svo ég finn mér eitthvað gott hér á höfuðborgarsvæðinu ;)



Sæll,


Herðu eg get gerð það á 4.þuss og skila á sama degi..
Er i rvk. :8)...


Simi; 773 6737

Endilega svo kiktu á þetta link : viewtopic.php?f=13&t=26840

Re: rykhreinsa fartölvu

Sent: Mið 06. Jan 2010 00:18
af AntiTrust
stingers skrifaði:

Sæll,


Herðu eg get gerð það á 4.þuss og skila á sama degi..
Er i rvk. :8)...


Simi; 773 6737

Endilega svo kiktu á þetta link : viewtopic.php?f=13&t=26840


Hei numnuts! Hvernig væri að þú tækir þig saman í andlitinu og drattaðist til þess að hætta að nota gamla auglýsingu frá mér útum allt.

Re: rykhreinsa fartölvu

Sent: Mið 06. Jan 2010 00:29
af tolli60
ég hef reynt að skifta um viftu í hp pavillion 9000 series það er svo sannarlega meir en að segja það.og er ég búin að taka þær nokkrar í gegn,fáðu ábyrgan aðila í þetta

Re: rykhreinsa fartölvu

Sent: Fim 07. Jan 2010 19:10
af tomas52
takk fyrir ágætis svör en ég hafði planað að rúlla uppí kísildal á morgun ;)