Síða 1 af 1
Kemst ekki í lappann.
Sent: Þri 03. Nóv 2009 13:09
af vignir81
Komið sæl.
Fyrir svona ári síðan formattaði ég lappann hjá konunni sem er orðinn frekar gamall. Svo kannski mánuði eftir það keypti hún sér nýjan. Svo núna um daginn ætlaði ég ná í myndir af gamla lappanum en komst ekki inní hann, vegna þess að ég hafði greinilega sett pw inná lappann, sem ég man náttúrlega ekki
Ég er þokkalega vel að mér í tölvum en ekkert meira, er einhver leið fyrir mig að komast bakdyramegin inn eða amk ná myndunum út? Allar uppástungur vel þegnar.
Re: Kemst ekki í lappann.
Sent: Þri 03. Nóv 2009 13:27
af Legolas
best er að taka HD úr töllunni og setja í flakkara og vollahhh..
Re: Kemst ekki í lappann.
Sent: Þri 03. Nóv 2009 13:41
af vignir81
Jah, ætla að reyna að komast hjá því að rústa fartölvunni
Er akkúrar núna að spá í að dl ophcrack. Er eitthvað vit í því?
Re: Kemst ekki í lappann.
Sent: Þri 03. Nóv 2009 13:47
af Glazier
Ég lennti í þessu (á XP)
og ég gat loggað mig inná Administrator vegna þess að það var ekkert passw. á honum svo fór ég þangað og breytti pw. á aðganginum mínum og loggaði mig inn
man ekki mjög vel hvernig þetta var :/
Re: Kemst ekki í lappann.
Sent: Þri 03. Nóv 2009 13:50
af vignir81
Já ég ætlaði að gera það líka. En það virkar ekki. Búinn að prófa að skrifa Owner og ekkert password, virkar ekki heldur
Verð greinilega að fara einhvern fjallaveg að þessu !!
Re: Kemst ekki í lappann.
Sent: Þri 03. Nóv 2009 13:56
af Gothiatek
Fyrsta hit á Google, ertu búinn að prófa ræsa í Safe mode og komast í user accountana þannig.
Re: Kemst ekki í lappann.
Sent: Þri 03. Nóv 2009 14:05
af vignir81
Eini munurinn hjá mér á Safe Mode og hinu er að í safe mode koma báðir accountarnir, "Administrator" og "Hinn" en ég þarf að ýta á ctrl + alt + del til að fá upp gamla nt dæmið þarna. Gallinn er alltaf sá að ég man ekki pw !
Re: Kemst ekki í lappann.
Sent: Þri 03. Nóv 2009 14:13
af viddi
vignir81 skrifaði:Jah, ætla að reyna að komast hjá því að rústa fartölvunni
Þú rústar nú ekki tölvunni með því að taka hdd úr, losar bara 1 til 2 skrúfur og tekur hann úr
Re: Kemst ekki í lappann.
Sent: Þri 03. Nóv 2009 14:16
af JohnnyX
farðu bara á google og findu hvernig út hvernig á að losa harða diskinn án vandræða
Re: Kemst ekki í lappann.
Sent: Þri 03. Nóv 2009 14:27
af vignir81
Fann út úr þessu. Var nú ekki flóknara en "123"
Var búinn að prófa 1111, 1234, 2222, 3333, 4444, 4321 etc
Mikil Hamingja
Re: Kemst ekki í lappann.
Sent: Þri 03. Nóv 2009 18:27
af SteiniP
Afhverju var enginn búinn að stinga upp á því að boota upp af live cd?
Gaman að þessu
Gott að þetta er leyst samt.