Síða 1 af 1

Viftan hætt að snúast !!

Sent: Fim 01. Okt 2009 17:16
af doddii
herðu ég var semsagt að fatta það að viftan er hætt að snúast ! ég ryksugaði hana í gær afþvi það heyyrðist svo fáranlega hátt í henni.. en ég tók ekki neitt í sundur sko.. hvernig get ég látið viftuna byrja að virka aftur ??

Re: Viftan hætt að snúast !!

Sent: Fim 01. Okt 2009 17:19
af gardar
Datt plöggið á viftunni úr sambandi? Ætti ekki að hafa gerst, en gæti hafa sogast út þegar þú ryksugaðir.

Mig grunar eitthvað sambandsleysi, annaðhvort í tenginu eða snúrunni í viftuna.

Annars er það bara að fara og versla nýja viftu.

Re: Viftan hætt að snúast !!

Sent: Fim 01. Okt 2009 17:20
af doddii
þetta er samt svona vifta fyrir fartölvu .. hvað kostar það btw. sirka mikið ? og er mikið mál að skipta um eða þarf ég að láta einhvern pro gera það fyrir mig ?

Re: Viftan hætt að snúast !!

Sent: Fim 01. Okt 2009 17:25
af AntiTrust
Hvernig fartölva?

Ef þú kemst í viftuna í gegnum skrúfanlegt spjald undir vélinni ættiru að geta þetta sjálfur, en ef þú þarft að rífa vélina í spað eins og þarf mjög oft til að komast að viftunni þá myndi ég mæla með vönum manni í þetta.

Annars eru vifturnar oftast ódýrar 3-6þús.

Re: Viftan hætt að snúast !!

Sent: Fim 01. Okt 2009 17:50
af vesley
getur verið að legan hafi skemmt þegar þú ryksugaðir tölvuna. s.s. viftan snúist of hratt áfram/afturábak

Re: Viftan hætt að snúast !!

Sent: Fim 01. Okt 2009 21:59
af Taxi
vesley skrifaði:getur verið að legan hafi skemmt þegar þú ryksugaðir tölvuna. s.s. viftan snúist of hratt áfram/afturábak

Ég veit til þess að það hefur gerst, mér finnst þrýstiloft betra í svona vinnu.

Re: Viftan hætt að snúast !!

Sent: Fim 01. Okt 2009 22:17
af vesley
jafnvel láta para eyrnapinna eða tannstöngul á milli þar sem viftan er svo hún snýst ekki.

og það er ráðlagt að nota ekki ryksugu þar sem það gæti myndast stöðurafmagn við það .

Re: Viftan hætt að snúast !!

Sent: Þri 06. Okt 2009 21:58
af BjarniTS
Packard Bell Easynote hjá mér.
Lenti í þessu , tók viftuna úr og skoðaði hana vel , tengdi aðra 5 volta við , hún snérist en var ekki með réttum skrúfgang til að ég gæti notað hana.
Ný vifta í þessa umræddu Easynote tölvu kostar 2500 kall.
Skrúfaði þetta sjálfur í.

Re: Viftan hætt að snúast !!

Sent: Mið 07. Okt 2009 00:18
af Danni V8
BjarniTS skrifaði:Packard Bell Easynote hjá mér.
Lenti í þessu , tók viftuna úr og skoðaði hana vel , tengdi aðra 5 volta við , hún snérist en var ekki með réttum skrúfgang til að ég gæti notað hana.
Ný vifta í þessa umræddu Easynote tölvu kostar 2500 kall.
Skrúfaði þetta sjálfur í.

Fékk einmitt til mín fyrr á þessu ári Easynote tölvu sem að viftan hafði hætt að virka. Eigandinn enginn tölvukall og tók ekkert eftir þessu fyrr en móðurborðið grillaðist. Voru síðan 10 dagar eftir af 2 ára ábyrgðinni þegar hann fór með hana og lét skipta um móðurborðið :)