Battery líftími Toshiba Satellite P100-208
Sent: Þri 28. Júl 2009 10:02
Nú fer að styttast í að skólarnir byrji aftur og ég þarf án efa að fjárfesta í nýju battery fyrir fartölvuhlunkinn minn. Það verður þá þriðja batteryið fyrir þessa tölvu...
Þetta er Toshiba Satellite P100-208 17" fartölva. Skiljanlega hefur battery líftíminn aldrei verið góður (enda stór fartölva) en ég var kannski að ná svona um einum og hálfum tíma á fullri hleðslu til að byrja með. Þá var ég með brightnessið á skjánum í lágmarki. Svo get ég stillt í bios hvort viftan eigi að hámarka performance eða vera eins silent og hægt er.
Ég er ávallt með tölvuna í hleðslu og tek þá batteryið alltaf úr ef það er fullhlaðið. Það er cirka ár síðan ég keypti mér nýtt battery síðast og ég var mjög samviskusamur að passa upp á það. Hinsvegar liðu oft langir tímar á milli þess sem ég setti batteryið aftur í tölvuna, oft 2 vikur eða meira. Þá var það bara fullhlaðið ofan í skúffu. Ég hafði ekki notað það neitt í sumar og ákvað að setja það í um daginn, þá kláraðist það bara á 10 mín. Ég fullhlóð það aftur og það var sama sagan, klárast alltaf bara strax. Þetta er battery sem ég pantaði af eBay.
Batteryið sem fylgdi upprunalega með tölvunni er 4000mAh. Batteryið sem ég keypti sem replacement var 4400mAh sem þýðir þá væntanlega bara að það getur geymt aðeins meiri hleðslu, eða hvað? Núna er ég að skoða battery replacement sem er 6600mAh 9 cells.
Núna langar mig að fá einhver góð ráð hvernig ég eigi að láta þetta battery endast sem lengst. Ég nota fartölvuna mjög mikið enda er ég ekki með borðtölvu. En eins og ég sagði þá læt ég batteryið aldrei hanga í tölvunni þegar það er fullhlaðið, tek það alltaf úr og geymi það þannig. Er vitleysa að vera að kaupa svona battery replacements af eBay? Á maður frekar að reyna að kaupa þetta beint af Toshiba? Ég geri mér alveg grein fyrir að ég mun aldrei ná meira en einum og hálfum tíma í líftíma á fullri hleðslu...en ég vil fá meiri líftíma en nokkra mánuði úr batteryinu sjálfu.