Síða 1 af 1

Vantar leikjafartölvu

Sent: Fim 04. Jún 2009 18:20
af tommipalma
Ég var að velta því fyrir mér hvort einhver gæti bent mér á góða leikjafartölvu á bilinu 150k-190k. Væri rosalega ánægður ef einhver myndi commenta.

Re: Vantar leikjafartölvu

Sent: Fim 04. Jún 2009 19:24
af Fluffyrabbit
hvaða leiki ertu þá að hugsa um að geta spilað ?

Re: Vantar leikjafartölvu

Sent: Fim 04. Jún 2009 20:19
af tommipalma
T.d world of warcraft og cs.

Re: Vantar leikjafartölvu

Sent: Fim 04. Jún 2009 22:03
af Bioeight
Toshiba 138 þúsund (http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=4664)
Toshiba 140 þúsund (http://www.elko.is/elko/product_detail/ ... oryid=1756)
TOSHIBA Satellite A350 á 160 þúsund -(http://www.elko.is/elko/product_detail/ ... 5013I#elko)

Besta skjástýringin sem ég hef séð á Íslandi á fartölvum á einhverju viðráðanlegu verði er ATi HD 3650, sem allar þessar vélar eru með, ef þú vilt eitthvað betra þá eru Tölvulistinn með Toshiba Qosmio vél á 280 þúsund og Acer Blue vél sem hægt er að sérpanta á 250 þúsund. Ég er hinsvegar ekki hrifinn af svo háu verði og það passar ekki inn í þitt verðbil heldur, Acer sömuleiðis er langt frá því að vera uppáhaldsmerkið mitt.

Mæli með þessari neðstu vegna þess að skjárinn á henni er miklu betri heldur en á hinum tveimur fyrir ofan, en annars er nánast enginn munur á þeim þannig að ef þú sættir þig við verri skjá þá geturðu sparað þér 20 þúsund.

Ég er akkurrat að leita að leikjafartölvu og fylgist reglulega með þessu, ef ég ætti pening núna myndi ég kaupa mér Toshiba A350 vélina í Elko. Til að fá öflugri skjástýringu þarftu að finna þér vél með Geforce 9500 eða 9600 og ofar, Geforce 105M og 120M duga ekki. ATi HD3470 er heldur ekkert rosalega öflugt. En flestar vélar sem ég hef séð með einhverjar ágætar skjástýringar hafa verið með lélega örgjörva... komið nóg í bili

Re: Vantar leikjafartölvu

Sent: Fim 04. Jún 2009 22:30
af tommipalma
Takk kærlega