Síða 1 af 1
lélegt batterí á hp dv 6000
Sent: Fös 08. Maí 2009 21:13
af palmi6400
ég er með hp dv 6000 og batteríið dugar bara í ca 40 min veit eitthver hvort það er hægt að laga það?
Re: lélegt batterí á hp dv 6000
Sent: Fös 08. Maí 2009 21:39
af KermitTheFrog
Þú getur opnað það og skipt up cellur en það getur verið hættulegt.
Besti kosturinn væri að kaupa nýtt af ebay orsom. Gerði það þegar batteríið í mínum Pavilion dv1599EA fór að vera með leiðindi
Re: lélegt batterí á hp dv 6000
Sent: Fös 08. Maí 2009 22:04
af palmi6400
já okey en ég fæ mér bara nýan lappa eftir sumarið hann er líka orðin svo lélegur
Re: lélegt batterí á hp dv 6000
Sent: Fös 08. Maí 2009 22:25
af KermitTheFrog
Annars eru til leiðir til þess að hægja á batteríiseyðinu (erfitt að koma orðum að þessu)
Viskubrunnur Tölvuvirkni skrifaði: * Endurhlaðið rafhlöðurnar þegar þær eru sem næst tómar og hættið ekki hleðslu fyrr en fullri hleðslu er náð.
* Hafið rafhlöðurnar ávallt í vélinni þótt hún sé tengd við rafmagn.
* Ef tölvan er ekki í notkun í tvær vikur eða lengur þá þarf að fjarlægja rafhlöðurnar úr vélinni.
* Þegar rafhlöður eru geymdar utan vélarinnar verður að gæta þess að pólar rafhlöðunar snerti ekki málm eða aðra leiðandi hluti. Geymsluhiti má ekki fara yfir 60° og endurhlaða þarf rafhlöðurnar innan 6 mánaða.
* Athugið að rafhlöður eru rekstrarvara og fer ending þeirra eftir tæknieiginleikum auk meðferðar sbr. að ofan.
Tekið af:
http://www.tolvuvirkni.is/ip.php?inc=vi ... 0at%F6lvur
Re: lélegt batterí á hp dv 6000
Sent: Fös 08. Maí 2009 23:09
af jonsig
Já það er ekki hægt að laga lithium ef þetta er þannig , þær eru ónýtuar á slaginu 3 árum og þær koma úr verksmiðjunni
Re: lélegt batterí á hp dv 6000
Sent: Fös 08. Maí 2009 23:31
af KermitTheFrog
jonsig skrifaði:Já það er ekki hægt að laga lithium ef þetta er þannig , þær eru ónýtuar á slaginu 3 árum og þær koma úr verksmiðjunni
En þú getur repalce-að cellurnar ef þú veist hvað þú syngur
Re: lélegt batterí á hp dv 6000
Sent: Lau 09. Maí 2009 02:41
af jonsig
já ,, just in case ef honum dytti í hug að skjóta inná cellurnar eða nota afhleðslu process til að reyna að laga þær