Síða 1 af 1

hver er besti framleiðandinn

Sent: Þri 12. Ágú 2008 14:08
af egglumber
nú þegar maður er að pæla í fartölfukaupum þarf maður að sjálfsögðu að vita "hverjir eru bestir"
ég er ekki að spurja að því hvaða einstaka fartölfa er best heldur er ég að pæla hvaða vörumerki er að skila bestum afköstum,

endilega segið ykkar reinslu á fartölfuframleiðandanum sem þið eruð að mæla með en ekki bara nefna nöfn (þótt það sé í lagi ef þið nennið ekki að skrifa)

ást og friður - egglumber kveður (rímar næstumþví)

Re: hver er besti framleiðandinn

Sent: Þri 12. Ágú 2008 14:23
af KermitTheFrog
ég hef fína reynslu af HP tölvum

Re: hver er besti framleiðandinn

Sent: Þri 12. Ágú 2008 14:28
af Halli25
búinn að eiga mína Acer fartölvu í 3 ár og hún hefur ekki slegið fail púst ennþá, fyrir utan þegar konan skilldi hana eftir útí bíl í brunagaddi og kveikti á henni kaldri. Dugði að skipta um lyklaborð og hún er ennþá á fullu.. spila wow á henni án teljandi vandræða :)

Re: hver er besti framleiðandinn

Sent: Þri 12. Ágú 2008 15:00
af sigurbrjann
kúl að vera orðinn það gamall að eiga konu,, og ennþá spila world of warcraft

Re: hver er besti framleiðandinn

Sent: Þri 12. Ágú 2008 15:50
af Halli25
sigurbrjann skrifaði:kúl að vera orðinn það gamall að eiga konu,, og ennþá spila world of warcraft

ég telst nú ungur miðað við marga sem eru að spila með mér í wow :shock:

Re: hver er besti framleiðandinn

Sent: Þri 12. Ágú 2008 17:41
af sigurbrjann
jæja til hamingju

Re: hver er besti framleiðandinn

Sent: Þri 12. Ágú 2008 20:14
af egglumber
sigurbrjann skrifaði:kúl að vera orðinn það gamall að eiga konu,, og ennþá spila world of warcraft

vá hvað þú ert á vitlausum stað til að vera að segja þetta

Re: hver er besti framleiðandinn

Sent: Þri 12. Ágú 2008 20:24
af Joi_gudni
HP er málið.. :)

Re: hver er besti framleiðandinn

Sent: Þri 12. Ágú 2008 21:19
af TechHead
Af öllum þeim fartölvum sem ég hef þuklað á yfir ævina þá hefur alltaf eitt merki borið af í gæðum þegar það kemur að B.O.M, internal layout og styrkleika, það eru Lenevo Thinkpad vélarnar.

Einnig hefur reynsla mín af ASUS fartölvum alltaf verið ánægjuleg og allar þær vélar sem við erum að selja frá þeim núna þykja mér bera af í gæðum og styrkleika fram yfir t.d. Acer, PackardBell, Dell Inspirion og HP Pavillion.

Það sem ég myndi forðast eins og heitann eldinn miðað við persónulega reynslu sem og reynslu sem tæknimaður er:
Acer "Extensa"
Gateway
Fujitsu Siemens "Amilo"
Medion

mín 2 cent :)

Re: hver er besti framleiðandinn

Sent: Mið 13. Ágú 2008 00:16
af dabb
IBM/Lenovo Thinkpad

Re: hver er besti framleiðandinn

Sent: Mið 13. Ágú 2008 00:33
af sigurbrjann
egglumber skrifaði:
sigurbrjann skrifaði:kúl að vera orðinn það gamall að eiga konu,, og ennþá spila world of warcraft

vá hvað þú ert á vitlausum stað til að vera að segja þetta


orð

að mínu mati er hp mjög gott