Síða 1 af 1
asus eee málið?
Sent: Mán 03. Mar 2008 20:30
af egglumber
ég er að pæla í að kaupa mér eina svona virkilega litla fartölvu sem ég mundi þá nota í fátt annað en skólamál, var bara að pæla hvort einhver hefði reinslu á þessum asus eee pc fartölfum.
þar sem þær eru að mínu mati mjög hentugar, ég myndi sennilega bara vera með eithvert stórt sd kort inní líka
p.s. veit einhver hvort það sé hægt að kaupa auka battery fyrir þessar tölfur?
linkur á tölvuna =
http://www.tolvuvirkni.is/ip.php?inc=vi ... ASUS_EEE4G
Sent: Mán 03. Mar 2008 20:43
af HR
Tölvutek er á biðpöntun eftir helling af aukahlutum í þessar vélar.
Á henni eru meðal annars auka batterí, samlitar mýs og margt fleira.
Þannig að auka batterí eru á leiðinni, en ekki ennþá komin í endursölu eftir minni bestu vitund.
Sent: Mán 03. Mar 2008 21:39
af Selurinn
Ég er að nota svona tölvu í skólanum.
Æðislegt, raflhlöðuendingin er svo sjúklega mikil.
Sent: Mán 03. Mar 2008 22:51
af Yank
Þetta er cool græja, en ertu búinn að átta þig á því hversu lítið þetta er?
Ég gæti aldrei glósað á þetta lyklaborð þótt sé með litlar hendur. .
Svo er þessi 7" skjár ekkert til að hrópa húrra fyrir enda fáanlegur í flestum ferða DVD spilurum.
Svona sem græja til þess að ferðast með, horfa á myndir í flugvélum, skoða netið, skoða tölvupóst og slíkt á ferðinni er þetta frábær græja og ferðafélagi.
Fyrir alla almenna laptop notkun eru til betri vélar.
Sent: Þri 04. Mar 2008 08:17
af eigill3000
Vá það liggur við að ég komi þesari tölvu í úlpuvasan minn!
Þetta er geggjað töff græja...
Sent: Fim 06. Mar 2008 10:52
af IL2
Sent: Fim 06. Mar 2008 13:37
af IL2
Sent: Fim 06. Mar 2008 13:46
af zedro
Nei þetta gat er ekki að gera sig
Eee er klárlega flottari.
Sent: Fim 06. Mar 2008 15:05
af IL2
Já, en spekkarnir eru frábærir á þessari. Annars er fullt af flottum UMPC á þessari síðu.
P.s. Fór og las test á hana. Er kanski ekki alveg að gera sig "real live"
Sent: Fim 06. Mar 2008 20:16
af Ic4ruz
Sent: Fös 07. Mar 2008 22:16
af egglumber
IL2 skrifaði:Já, en spekkarnir eru frábærir á þessari. Annars er fullt af flottum UMPC á þessari síðu.
P.s. Fór og las test á hana. Er kanski ekki alveg að gera sig "real live"
ertu þá ða tala um asus eee eða ertu að tala um þessa sem þú linkaðir á?
Sent: Fös 07. Mar 2008 22:44
af IL2
Þessa sem ég linkaði á.
Sent: Þri 11. Mar 2008 11:42
af Dr3dinn
Veistu mér lýst mjög vel hjá þér að spá í svona kaupum þar sem ég
er einnig að spá í svona kaupum fyrir háskólann í vetur
Endilega ef einhverjir fleiri eiga svona, deilið með okkur.
Ég er frekar hræddur við ef ég fæ mér einhver ofur lappa að meiri einbeiting fari að fikta í lappanum en að fylgjast með náminu
Og drengir sem vinnið í tölvubúðum hvar er ódýrast að fá sér svona og hvers vegna hvaða týpu, endilega auglýsið ykkur núna því ég er mjög heitur fyrir svona vél
(og margir að mér sýnist)
Sent: Þri 11. Mar 2008 14:54
af dezeGno
Þessi vel er snild, fekk mer svona hja max, voru með tilboð a Asus EEE 4G 702 modelinu og þetta er algjör snild, þarft bara að venjast lyklaborðinu. Ætla mér að versla 2GB minni í hana og setja upp xp, finnst líka geðveikt að hún geti keyrt annan skjá í allt að 1680x1020(vona að ég sé ekki að fara með rangt mál með þetta). Reyndar er einn galli, og það er að með íslensku lyklaborðs þýðingarskránni frá iod.is þá vantar takkan fyrir kommuna yfir íslensku stafina.
Sent: Þri 18. Mar 2008 22:20
af idle
þessar vélar eru frekar sniðugar,
en persónulega er ég ekki að fíla þetta custom stýrikerfi á þeim þar sem það hefur takmarkað notagildi,
málið er bara að moka upp xp á þessu og þá er þetta alveg málið,
líka hægt að "custom" útgáfu af xp sem er einhver 400 meg uppsett, og þá er nóg pláss eftir á upprunalega 2 gíga kortinu
Sent: Þri 18. Mar 2008 22:57
af Zaphod
Sent: Þri 18. Mar 2008 23:38
af Daz
idle skrifaði:þessar vélar eru frekar sniðugar,
en persónulega er ég ekki að fíla þetta custom stýrikerfi á þeim þar sem það hefur takmarkað notagildi,
málið er bara að moka upp xp á þessu og þá er þetta alveg málið,
líka hægt að "custom" útgáfu af xp sem er einhver 400 meg uppsett, og þá er nóg pláss eftir á upprunalega 2 gíga kortinu
Svona af forvitni, er eitthvað sérstakt í þessu "custom" (linux) stýrikerfi sem þú getur ekki gert sem þú getur gert í XP. Eitthvað sem skiptir máli það er að segja.