Síða 1 af 1

Val milli Microsoft Zune 80gb og Ipod classic 80gb

Sent: Mán 25. Feb 2008 03:52
af Son of a silly person
Ég er að leita mér að spilara/video og hef skorið valið milli þessa tveggja. Ég hef verið læstur á youtube að horfa á myndbönd þar sem er verið að bera þá saman. Og mér persónulega lýst betur á Zune. En hvað finnst ykkur. Og hvar fær maður Zune á íslandi? Hefur einhver reynslusögu til að segja frá.

Ein spurning: Ég ætla mér að nota þetta í bílnum. Þá spyr ég virkar þetta eins og ipod. Það eru spilara á markaðinum sem eru made for ipod (Alpine). Ég hef ekki fundið svar við þessu hvorki á heimasíðu Alpine né youtube. Þá meina ég tengja spilaran við spilaran í bílnum.

Sent: Mán 25. Feb 2008 09:30
af Halli25
eini kosturinn við iPod er hve margir styðja iPod með spilurum, ef þú átt nýlegan bíl þá er líklegt að það sé jack tengi í honum, er í mínum Skoda alla vega :)

Sent: Mán 25. Feb 2008 11:30
af elfmund
ég myndi gleyma Zune.... það er verið að finna upp hjólið þar....

ég myndi skoða iPod Classic og ekki hika

Sent: Mán 25. Feb 2008 11:48
af HR
faraldur skrifaði:eini kosturinn við iPod er hve margir styðja iPod með spilurum, ef þú átt nýlegan bíl þá er líklegt að það sé jack tengi í honum, er í mínum Skoda alla vega :)


Haha, það er nú líka Jack tengi á Zune ;)

Sent: Mán 25. Feb 2008 13:06
af Blackened
Ég á Zune.. og ég elska hann!

miklu betri en iPod ;) ;)

Held að hann fáist samt bara í USA

það er viss kostur að það er útvarp í honum.. og wireless sync og þessháttar

Sent: Mán 25. Feb 2008 16:28
af Halli25
Lingurinn skrifaði:
faraldur skrifaði:eini kosturinn við iPod er hve margir styðja iPod með spilurum, ef þú átt nýlegan bíl þá er líklegt að það sé jack tengi í honum, er í mínum Skoda alla vega :)


Haha, það er nú líka Jack tengi á Zune ;)

en hve mörg hátalarakerfi finnurðu sem er sérbyggð fyrir zune vs iPod?

veit vel að jack tengi er á öllum þessum mp3 spilurum en þú þarft vöggu til að hlaða þá eða lenda ekki í því að verða rafmagnslaus um leið og þú ert að spila. Fyrir iPod er hægt að fá endalaust af þessum hlutum meðan aðrir framleiðendur hafa ekki tærnar nálægt þar sem iPodin er með hælinn.

Sent: Mán 25. Feb 2008 16:41
af Dagur
null vote.


Annars veit ég ekki hvað þú gætir keypt sem þriðja kost.

Sent: Mán 25. Feb 2008 16:43
af ÓmarSmith
já og desent hljómgæði úr Ipod vöggu kosta líka fáránlegar upphæðir ;)


Myndi skoða allt annað en iPoop fyrst.

Sent: Mán 25. Feb 2008 17:16
af Halli25
ÓmarSmith skrifaði:já og desent hljómgæði úr Ipod vöggu kosta líka fáránlegar upphæðir ;)


Myndi skoða allt annað en iPoop fyrst.

Búinn að skoða Logitech Pure-Fi Anywhere?
Myndi prófa að skokka í Max og skoða þau, ágæti hljómur fyrir 19K og þú getur gengið um og blastað í 10 tíma án rafmagns :)

Sent: Mán 25. Feb 2008 18:47
af HaftorS
Zen spilararnir frá Creative hafa líka verið að reynast mjög vel :)

http://creative.com/products/mp3/

Sent: Mán 25. Feb 2008 21:05
af Son of a silly person
Já ég hef verið að skoða þetta aðeins betur, hef sammt ekkert verslað enn.

Ég er að fara að skipta um allt í bílnum. Spilara, hátalara, magnara og keilu.

Spilari : http://www.nesradio.is/?vara=84

Hátalarar: http://www.nesradio.is/?vara=9 2x

Magnari: http://www.nesradio.is/?vara=36

Keila: http://www.nesradio.is/?vara=50

Súrt sammt að Zune fáist ekki á íslandi. Ég hef spurningu.

Ég hef heyrt orðróm að ipod spili ekki wma ?

Kv. Ragnar

Sent: Mán 25. Feb 2008 21:35
af HaftorS
satt, einungis mp3.

ef þú ætlar að adda wma file-um á ipodinn þarf itunes alltaf að converta það yfir í mp3 fyrst. reyndar tekur það engan svakalegan tíma miðað við aðra convertera sem ég hef prófað en engu að síður svoldið bögg.

Sent: Þri 26. Feb 2008 06:07
af ManiO
HaftorS skrifaði:satt, einungis mp3.


Filthy lies, iPod spilar líka AAC ;)

Sent: Þri 26. Feb 2008 13:20
af HaftorS
4x0n skrifaði:
HaftorS skrifaði:satt, einungis mp3.


Filthy lies, iPod spilar líka AAC ;)


er það?

jæja, alltaf lærir maður eitthvað nýtt :). samt sem áður, frekar fátæklegt úrval af codecum sem hann spilar :/

Sent: Þri 26. Feb 2008 22:52
af Son of a silly person
http://www.sm.is/index.php?sida=vara&vara=VIEW16GB Sandisk Sansa 16gb Mér finnst þessi smart. Endilega ef fólk hefur einhverjar reynslusögur af mp3 spilurum þá endilega tjá sig. Kostir, gallar, hvað er svalt.

Það munar 3.000kr á þessum sandisk og 80gb ipod. En sandisk spilar nánast öll fromat og mér finnst líta betur út. Hvað finnst ykkur? Ég játa það að lagasafn mitt er bara 4gb þannig ég hef eiginlega ekkert að gera við meira en svona 16gb. fyrir allt nokkur video, tónlist og myndir. Svo ætla ég að nálgast upplýsingar hvort þessi spilari vikir við http://www.nesradio.is/?vara=84 Held sammt að sé þá í gegnum rca out og í microphone jack.

Sent: Þri 26. Feb 2008 23:07
af Gúrú
Ef að zune spilar öll vidjó formöttin myndi ég velja hann vegna þess að þetta video ipod convertor drasl er pirrandi lengi að gerast.


Con vs (whatever its name is) :)

Sent: Þri 26. Feb 2008 23:24
af Dári
HaftorS skrifaði:satt, einungis mp3.

ef þú ætlar að adda wma file-um á ipodinn þarf itunes alltaf að converta það yfir í mp3 fyrst. reyndar tekur það engan svakalegan tíma miðað við aðra convertera sem ég hef prófað en engu að síður svoldið bögg.


Ef þú ert með alla tónlistina þína á wma þá áttu það skilið að fá þér creative zune hehe.

iPod ftw!

Sent: Mið 27. Feb 2008 00:17
af Blackened
Dári skrifaði:
HaftorS skrifaði:satt, einungis mp3.

ef þú ætlar að adda wma file-um á ipodinn þarf itunes alltaf að converta það yfir í mp3 fyrst. reyndar tekur það engan svakalegan tíma miðað við aðra convertera sem ég hef prófað en engu að síður svoldið bögg.


Ef þú ert með alla tónlistina þína á wma þá áttu það skilið að fá þér creative zune hehe.

iPod ftw!


Mækrósoft Zune..

Og hann er yndislegur!.. miklu skemmtilegra að "browsa" hann heldur en iPod finnst mér.. og gott ef það er ekki stærri skjár fyrir videoglápið líka

ooog wireless sync í gegnum WiFi.. reyndar eini kosturinn að maður getur hlaðið tónlist inná hann þó að hann sé útí bíl.. en getur komið sér vel :D

Og síðan er plús við Zune vs. iPod að það er FM útvarp.. sem getur verið ágætis kostur líka

Hann reyndar spilar bara .wmv og .mp4 en með fairly simple "hakki" þá er hægt að spila avi í honum líka, Og svo spilar hann auðvitað mp3 og wma

En ókosturinn er að hann fæst bara í USA (held ég öruglega) og hann hefur ekki allt þetta support við allt sem iPod hefur.. því miður

Edit:
Mæli með því að menn tékki á http://www.zunescene.com/
Þeir eru með puttan á púlsinum um allt sem er að gerast í Zune heiminum og eru með einhverja sambanburði á ipod vs. zune ofl

Sent: Mið 27. Feb 2008 00:27
af Son of a silly person
Ég er alltaf að hallast meira og meira að ipod. Vegna þess að þetta blessaða bílagræjudrasl vill ekkert annað. Var að rabba við félaga minn í sima og hann er með alpine spilara og sandisk. Tengdan gegnum Rca. Endalaus vandamál.

Nú kem ég með spurningu. Fylgir converter ipod? Hluti af mínu safni er wma rest mp3 og ég get ekki breytt wma með dbpoweramp vegna þess að ég rippaði það af geisladisk.

Svo er það verðið. Mér finnst 25.000kr svolíti mikið fyrir 8gb http://www.sm.is/index.php?sida=vara&vara=MA980 kannski er þetta ekkert rosalegt verð miðað við hvað maður fær í litlum pakka.

Sent: Mið 27. Feb 2008 07:25
af GuðjónR
Son of a silly person skrifaði:Svo er það verðið. Mér finnst 25.000kr svolíti mikið fyrir 8gb http://www.sm.is/index.php?sida=vara&vara=MA980 kannski er þetta ekkert rosalegt verð miðað við hvað maður fær í litlum pakka.

hahahaha þetta er bara grín!!
Þar sem ég var í USA kostaði þetta eftirfarandi:

30GB = $150 ~ 9.750.-
80GB = $250 ~ 16.250.-
160GB = $350 ~ 22.750.-

Ég var mikið að spá í að kaupa einn eða tvo 80GB bara upp á fönnið til að selja hérna með 50% afsl.(af ísl. verðinu) en samt að græða helling...
Hálf sé eftir því að hafa ekki gert það.

Sent: Mið 27. Feb 2008 09:29
af Halli25
GuðjónR skrifaði:
Son of a silly person skrifaði:Svo er það verðið. Mér finnst 25.000kr svolíti mikið fyrir 8gb http://www.sm.is/index.php?sida=vara&vara=MA980 kannski er þetta ekkert rosalegt verð miðað við hvað maður fær í litlum pakka.

hahahaha þetta er bara grín!!
Þar sem ég var í USA kostaði þetta eftirfarandi:

30GB = $150 ~ 9.750.-
80GB = $250 ~ 16.250.-
160GB = $350 ~ 22.750.-

Ég var mikið að spá í að kaupa einn eða tvo 80GB bara upp á fönnið til að selja hérna með 50% afsl.(af ísl. verðinu) en samt að græða helling...
Hálf sé eftir því að hafa ekki gert það.

þetta er gamanið við að búa á íslandi og með okkar ofurtolla á munaðarvörum... 35% tollar og gjöld og ofaná það bætist við vsk. GG :)