Síða 1 af 1
Hvaða fartölvu?
Sent: Fim 29. Nóv 2007 13:28
af appel
Er að kaupa fartölvu, má vera dýr.
Hvað mæliði með?
Er Dell Precision M90 málið?
Meginkröfur: Stór skjár og 1920x1200 upplausn.
Sent: Fim 29. Nóv 2007 13:54
af GuðjónR
Hvað kostar hún?
Annars þá gaf ég konunni Dell Inspiron 500m í afmælisgjöf árið 2003. Þá kostaði hún um180k.
Ágæt tölva, allaveganna hefur hún verið ánægð með hana. Eina sem hún myndi vilja öðruvísi í dag væri stærri skjár.
Það er samt smá böggur í henni, önnur festingin sem festir skjáinn við kassann er brotin/sprungin, spurning hvort það sé hægt að laga það og þá hvort það myndi borga sig.
Bara pæling...en Dell tölvur hljóta að vera góðar, annars hefði SG1 hópurinn ekki tekið þær með sér til Atlantis...
Sent: Fim 29. Nóv 2007 14:28
af Xyron
GuðjónR skrifaði:Bara pæling...en Dell tölvur hljóta að vera góðar, annars hefði SG1 hópurinn ekki tekið þær með sér til Atlantis...
Amen to that, bestu rök nokkurntímann
Sent: Fim 29. Nóv 2007 14:53
af appel
Mér sýnist þessi Precision vera það eina sem er vit í:
Þitt verð: 317.475 kr. (255.000 kr. án VSK)
Sent: Fim 29. Nóv 2007 15:01
af GuðjónR
Xyron skrifaði:GuðjónR skrifaði:Bara pæling...en Dell tölvur hljóta að vera góðar, annars hefði SG1 hópurinn ekki tekið þær með sér til Atlantis...
Amen to that, bestu rök nokkurntímann
lol gleymdi
merkinu góða
p.s. 317k !!!! HOLY !!! link ??
Sent: Fim 29. Nóv 2007 16:00
af appel
Sent: Fim 29. Nóv 2007 17:04
af GuðjónR
Hún er tæp 4kg!
Og verðið er svakalegt....ég er viss um að þú getur fundið sambærileg gæði einhversstaðar á lægra verði...
Bara að eyða öðrum 50klst. í rannsókn....
Sent: Fim 29. Nóv 2007 17:30
af ManiO
Hef grun um að allt verði örsmátt á 17" skjá með 1920x1200 í upplausn. Er með 24" skjá með þessari upplausn og sumt er of lítið fyrir minn smekk.
Sent: Fim 29. Nóv 2007 18:59
af appel
Letur sem þarf að lesa er alltaf hægt að stækka, t.d. forritunarkóði og texti í browser. Ég vil fá pláss fyrir alla gluggana. En það er rétt hjá þér, sennilega verður texti doldið smár, en maður les hvort sem er ekki allt. Annars hlýtur Dell að hafa áttað sig á því að þeir letrið þyrfti að vera læsilegt, þannig að ég held að 17" sé ok.
Sent: Fim 29. Nóv 2007 19:04
af hsm
4x0n skrifaði:Hef grun um að allt verði örsmátt á 17" skjá með 1920x1200 í upplausn. Er með 24" skjá með þessari upplausn og sumt er of lítið fyrir minn smekk.
Ég er með 1680x1050 á 15.4 í fartölvunni minni og gæti ekki hugsað mér að hafa upplausnina minni en þessi vél er um 18% meiri upplausn miðað við skjástærð
Gæti verið svolítið lítið, en ef sjónin er í lagi þá ætti þetta að vera í lagi.
Sent: Fim 29. Nóv 2007 19:30
af ManiO
Ég er nú með fullkomna sjón, en að lesa svona litla stafi er pain til lengdar.