Síða 1 af 1

Skjár á Acer fartölvu?

Sent: Þri 20. Nóv 2007 23:42
af Daði29
Mér líst mjög vel á þessa Acer Aspire 5920G fartölvu. http://www.att.is/product_info.php?cPath=44_61&products_id=2452 En ég var að spá í skjánum á henni, 15,4" með 1280x800dpi, er þetta ekki frekar lítil upplausn. Líst vel á alla vélina, og ekki að skemma að hún kostar 120.000 kr. en það er bara skjárinn sem ég er að pæla í...

Re: Skjár á Acer fartölvu?

Sent: Mið 21. Nóv 2007 12:53
af Halli25
Daði29 skrifaði:Mér líst mjög vel á þessa Acer Aspire 5920G fartölvu. http://www.att.is/product_info.php?cPath=44_61&products_id=2452 En ég var að spá í skjánum á henni, 15,4" með 1280x800dpi, er þetta ekki frekar lítil upplausn. Líst vel á alla vélina, og ekki að skemma að hún kostar 120.000 kr. en það er bara skjárinn sem ég er að pæla í...


viltu fartölvu eða færanlegt desktop?

færð þér bara skjá til að tengja hana við heima ef þú ert að spá í leiki eða vinnu heimavið.

Sent: Mið 21. Nóv 2007 14:03
af Daði29
ég vil hafa þetta sem fartölvu... ég er ekkert að spá í að tengja hana við neinn skjá eða þannig, bara tjékka hvort þessi upplausn í skjánum á tölvunni sé nógu góð t.d. við það að spila leiki og horfa á dvd myndir eða bara nota hana yfirleitt í flest allt. Er þetta eitthvað sem er að angra ykkur sem eigið þessa vél??

Sent: Mið 21. Nóv 2007 14:18
af Minuz1
Daði29 skrifaði:ég vil hafa þetta sem fartölvu... ég er ekkert að spá í að tengja hana við neinn skjá eða þannig, bara tjékka hvort þessi upplausn í skjánum á tölvunni sé nógu góð t.d. við það að spila leiki og horfa á dvd myndir eða bara nota hana yfirleitt í flest allt. Er þetta eitthvað sem er að angra ykkur sem eigið þessa vél??


Ég er eiginlega sammála faraldri....

15.4" er alveg bærilegur skjár, ég persónulega myndi aldrei vilja stærri skjá á fartölvu þar sem það telur í þyngd, batterínotkun og talsvert mikið í peningum.

Ef þú ert er biðja um leikjatölvu sem keyrir alla nýjustu leikina í gæðum sambærilegum við 120 þús desktop þá skaltu vera tilbúinn að punga út 200+ þús.

Sent: Mið 21. Nóv 2007 15:48
af ÓmarSmith
1280x800 er flott upplausn.

ekkert að kvarta yfir því á Laptop.

ég spilaði t.d Crysis í þessari upplausn á 22" skjá. Ljómandi fínt þó það hafi ekki verið Native.

Sent: Mið 21. Nóv 2007 16:40
af GuðjónR
ÓmarSmith skrifaði:1280x800 er flott upplausn.
ég spilaði t.d Crysis í þessari upplausn á 22" skjá.

MONT!

Sent: Lau 01. Des 2007 01:07
af Daði29
Heyrðu, ég var líka að spá,
Ég get fengið þessa Acer 5920G tölvu með 2.0 GHz örgjörva, 160GB hörðum disk og 256MB Geforce Go 8600GT skjákorti á 120.000 þús.

Svo get ég líka fengið sömu tölvu með 2.2 GHz örgjörva, 250GB hörðum disk og 512MB Geforce Go 8600GT skjákorti á 145.000 þús.

Hvar er ég að gera betri kaup, þessi eftri á 120 eða þessi neðri með aðeins betri spekkum á 145?

Sent: Lau 01. Des 2007 11:08
af IL2
Taka þessi neðri á þess að hika. Getur horft á það þannig að ef þú vildir uppfæra HD þá kostar hann stakur um 15.000 og svo stærra skjákort.