Síða 1 af 1
Kaup frá amazon
Sent: Þri 28. Ágú 2007 20:05
af Ic4ruz
Hæ,
eg er að spá i að kaupa mér fartölvu frá amazon.co.uk
(þessa herna)
http://www.amazon.com/Presario-F572US-N ... B000RNG3I8
eða
http://www.amazon.co.uk/Samsung-R20-Wir ... 430&sr=1-6
enn senda þeir fartölvur til islands?
hvernig er með tollin og tax og allt það?
á þetta eftir að taka alla mjög langann tima?
kostar að senda þetta kannski mjög mikið?
ætti maður kannski að panta frekar hjá amazon.com?
hefur einhver hér pantað fartölvu frá annaðhvort amazon.usa eða amazon.co.uk, eða bara einhverri annari tölvubúð i útlöndum?(fartölvu)
Sent: Þri 28. Ágú 2007 20:59
af Veit Ekki
Þeir senda víst ekki raftæki frá amazon í Bretlandi til Íslands. A.m.k. ekki síðast þegar ég vissi.
Sent: Þri 28. Ágú 2007 22:45
af Ic4ruz
enn hvað með amazon.com?
hvað með tollin og allt það(allavega það er hægt að velja Iceland i listanum hjá Amazon.usa) enn er samt ekki viss um hvort það gildir lika um fartölvur
Sent: Þri 28. Ágú 2007 23:07
af Daz
Þá er alltaf hægt að láta senda á shopusa.is
Eða bara sjá hvað þeir smyrja miklu ofan á og skella sér í helgarferð til bandaríkjana og reyna að svíka tollinn.
Talandi um það, hefur einhver reynt að koma tölvu/fartölvu í gegnum tollinn á þeim forsendum að hver íhlutur kosti minna en 23 þúsund?
Sent: Mið 29. Ágú 2007 00:38
af Ic4ruz
enn segjum að eg myndi kaupa mer fartölvu frá amazon.com og láta senda það á island, mundi tollurinn fara eitthvað að stoppa og checka á þetta eða?
Tollur
Sent: Mið 29. Ágú 2007 01:40
af Gets
Ekki spurning, tollurinn skoðar allt sem kemur inn í landið.
Ergilegast finnst mér þó þegar ég lendi á tollurum sem kunna ekki á tollalöginn, ég er búinn að kaupa HELLING af allskonar dóti bæði frá UK og USA og sem dæmi þá er enginn tollur á köfunardóti nema gallanum en hann flokkast undir fatnað og lendir því í tollaflokkun.
Margsinnis hef ég þurft að rífast í þeim og SÝNA þeim tolla reglugerðina til staðfestingar því að þeir séu ekki í rétti til að tolla vöru sem ég er að flytja inn.
Þetta eru bara menn og eins og allstaðar eru sumir sem kunna bara ekki að vinna vinnuna sína.
Re: Tollur
Sent: Mið 29. Ágú 2007 09:09
af Daz
Gets skrifaði:Ekki spurning, tollurinn skoðar allt sem kemur inn í landið.
Ergilegast finnst mér þó þegar ég lendi á tollurum sem kunna ekki á tollalöginn, ég er búinn að kaupa HELLING af allskonar dóti bæði frá UK og USA og sem dæmi þá er enginn tollur á köfunardóti nema gallanum en hann flokkast undir fatnað og lendir því í tollaflokkun.
Margsinnis hef ég þurft að rífast í þeim og SÝNA þeim tolla reglugerðina til staðfestingar því að þeir séu ekki í rétti til að tolla vöru sem ég er að flytja inn.
Þetta eru bara menn og eins og allstaðar eru sumir sem kunna bara ekki að vinna vinnuna sína.
Þeir gera náttúrulega ráð fyrir að þú sért að reyna að koma einhverju "ólöglega" til landsins, leiðinda hugsunarháttur. "Allir sekir þar til sakleysi er sannað".
Sent: Mið 29. Ágú 2007 10:24
af JReykdal
Shipping: Currently, item can be shipped only within the U.S.
Sent: Mið 29. Ágú 2007 18:20
af Ic4ruz
ætli eg nota þá ekki shopusa.is (þeir setja cirka 20.000 fyrir sina þjónustu, það er að segja flutningur tollur og allt það) enn annars ef eg finn fartölvu sem mig langar og þeir shippa worldwide hvað ætli þá að eg þurfi að borga tollinum mikið?(fyrir fartölvu)
Sent: Fim 30. Ágú 2007 10:37
af JReykdal
svo gerirðu þér grein fyrir að þú ert í raun að fyrirgera ábyrgð á græjunni og að lyklaborðið er öðruvísi en við erum vön.
Sent: Fim 30. Ágú 2007 16:59
af Ic4ruz
Já ég geri það "JRreykdal"
Sent: Fim 30. Ágú 2007 17:01
af Daz
Það er alveg hægt að fá nýjar fartölvur í kringum 50 þúsund hérna heima ef þú vilt bara eitthvað ódýrt. t.d. í elko.
Sent: Fös 31. Ágú 2007 17:28
af Ic4ruz
Daz, já eg var eimmit að spá i það, eg er með mjög góða borðtölvu og svo kaupir maður bara einhverja ódyra fyrir skólan, var að spá i 50.000 KR acer sem elko er að selja.
Sent: Fös 31. Ágú 2007 19:49
af Daz
raptuss skrifaði:Daz, já eg var eimmit að spá i það, eg er með mjög góða borðtölvu og svo kaupir maður bara einhverja ódyra fyrir skólan, var að spá i 50.000 KR acer sem elko er að selja.
Ég er einmitt að skoða fartölvur fyrir einn félaga minn og var einmitt að skoða upplýsingar um hana á netinu. Virðist fá sæmilega umfjöllun nema mjög léleg batterísending (undir 2 tímar jafnvel).
Sent: Fös 31. Ágú 2007 23:58
af Ic4ruz