Síða 1 af 1

Ný fartölva.

Sent: Fim 15. Mar 2007 06:25
af kjarnorkudori
Nú þarf pabbi minn á nýrri fartölvu að halda og bað mig um að finna eitthvað gott handa sér.

Hann spilar enga leiki, en vill hafa mjög hraða vinnslu á öllu sem hann gerir.
Hann er ekkert að pæla í verði á vél en kannski praktíst að hafa það undir 250 fyrst hann notar hana ekki neitt í leiki eða flókna vinnslu.

Einhverjar tillögur?

Sent: Fim 15. Mar 2007 14:16
af zedro
Aðal spurningin hvað ætlar kauði að nota vélina í?
Vill hann mjög hraða vinnslu í word og excel?

Ef þetta er vél sem á bara að ráða við bókhald og fl.
þá gætiru sloppið með tölvu undir 100k :P

Sent: Sun 18. Mar 2007 06:51
af kjarnorkudori
Hann notar þetta aðallega fyrir venjulega skrifstofuvinnslu.
Kemur fyrir að hann downloadi, og þurfi að keyra reikninga í excel.
Hann vill ekki vél sem getur rétt svo séð um þessa vinnslu, heldur vill hann geta gert næstum hvað sem er á vélinni.

(efast líka um að 100þús + eða - skipti öllu máli, kannski halda þessu undir 200)

Sent: Sun 18. Mar 2007 11:07
af Selurinn
Acer 6465 hjá Tölvutek.........

Intel Core 2 Duo T7200 örgjörvi, 2.0GHz, massa örgjövi með 4mb flýtiminni
2gb ddr2 667mhz
160 gb SATA 5400rpm diskur
15.4 CrystalBrite skjár
128mb ATI X1300

á 179.900

Þetta er klárlega málið ef þessi tölva á ekki að notast í leikjanotkun ;)

Sent: Sun 18. Mar 2007 16:13
af zedro
Ekki skil ég afhverju hann vill eyða pening þegar hann þarf þess ekki.

En anyhow:

Acer Aspire 5684WLMi
Core2Duo T5600,
2GB minni,
160GB diskur,
DVD-RW,
15,4" WXGA,
Go 7600-Se

156.000 kr

Sent: Mán 19. Mar 2007 13:54
af Tappi
Hvað er málið að allar þessar fartölvur með 15.4" skjái eru bara 1280x800dpi upplausn?? Þoli þetta ekki :evil:

Sent: Mán 19. Mar 2007 14:27
af Revenant
Tappi skrifaði:Hvað er málið að allar þessar fartölvur með 15.4" skjái eru bara 1280x800dpi upplausn?? Þoli þetta ekki :evil:

Thinkpad T60pw er með 15,4" skjá og 1680x1050 upplausn

Sent: Mán 19. Mar 2007 14:28
af Ripper
Tappi skrifaði:Hvað er málið að allar þessar fartölvur með 15.4" skjái eru bara 1280x800dpi upplausn?? Þoli þetta ekki :evil:

Það eru til 15.4" vélar með hærri upplausn. Þessi er td með 1920x1200!
http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... cts_id=480

En komið í örlítið dýrari vél :D

Ég er sjálfur að nota vél með 15.4" 1680x1050 sem er alger snilld!

Sent: Þri 20. Mar 2007 12:01
af wICE_man
Tappi skrifaði:Hvað er málið að allar þessar fartölvur með 15.4" skjái eru bara 1280x800dpi upplausn?? Þoli þetta ekki :evil:

Umm... af því að það er rándýrt að framleiða skjái með hærri upplausn/minna pixel pitch, þess vegna eru flestar tölvur með hærri upplausn umm eða yfir 200.000 kallinum.

Hvað eru menn eiginlega að nota fartölvurnar sínar í ef þeir þurfa þessa upplausn "on the fly"? Það er alltaf hægt að tengja stærri skjá við fartölvurnar ef maður vill vinna í almennilegri upplausn :)

Sent: Þri 20. Mar 2007 12:37
af JReykdal
wICE_man skrifaði:

Bull og vitleysa. Búinn að vera með 1680x1050 í nokkur ár og það er ekki séns að maður fari í 1280x800 eftir það. Og það er vesen að vera með external skjá í fanginu :)

Sent: Þri 27. Mar 2007 16:24
af Tappi
wICE_man skrifaði:
Tappi skrifaði:Hvað er málið að allar þessar fartölvur með 15.4" skjái eru bara 1280x800dpi upplausn?? Þoli þetta ekki :evil:

Umm... af því að það er rándýrt að framleiða skjái með hærri upplausn/minna pixel pitch, þess vegna eru flestar tölvur með hærri upplausn umm eða yfir 200.000 kallinum.

Hvað eru menn eiginlega að nota fartölvurnar sínar í ef þeir þurfa þessa upplausn "on the fly"? Það er alltaf hægt að tengja stærri skjá við fartölvurnar ef maður vill vinna í almennilegri upplausn :)

Þetta er svo mikið kjaftæði! Ég er búinn að eiga 15.4" hp tölvu í rúmlega 3 ár sem er með 1680x1050 í upplausn. Á sínum tíma keypti ég hana á 180. þús. Ég hefði nú haldið að þetta væri orðið standar í dag. Það er ekki séns í helvíti að ég fari neðar en það á svona stórum skjá. Svona 1200x800 upplausn er fín á 12" skjái.
Málið er bara að þetta hefur aldrei verið neinn stór sölupunktur fyrir almenna("vitlausa") tölvunotandann sem veit ekkert hvað upplausn er og fer bara eftir því hvað skjárinn er stór. T.d. er upplausnin oft ekki nefnd í tilboðum og sagt frekar háskerpuskjár eða eitthvað álíka heimskulegt.

Re: Ný fartölva.

Sent: Fim 19. Apr 2007 20:35
af BunnyLover
ég á ACER og hún er ge ðveikt góð :D veit ekki hvað hún kostaði alveg en hún er samt góð :D \:D/

Sent: Þri 24. Apr 2007 14:15
af Harvest
Mundi skoða einhvað í kringum 150 - 170k hjá att.

http://www.att.is

Hef haft góða reynslu af vélunum frá þeim