Síða 1 af 1
Nýgræðingur
Sent: Mið 22. Nóv 2006 11:23
af María
Tölvan sem ég á í augnablikinu er 5 ára IBM tölva sem er bara alls ekki að virka, batteríið alltaf að fara og annað vesen. Ég er að leita að ódýrri fartölvu sem ég myndi aðallega nota fyrir skólann en einnig til að nota tónlistaforrit eins og Cubase SX 3 eða ProTools. Ég býst við að þurfa að kaupa hljóðkort til að forritið virki almennilega, spurning hvað væri sniðugt.
Ég hef verið að skoða tilboð á kisildalur.is og leist ágætlega á Averatec AV1050... ?
Allar ábendingar eða komment vel þegnar.
kv.
María
Sent: Mið 22. Nóv 2006 13:13
af wICE_man
Hún er allavega sniðug ef þú ert að leita að léttri og meðfærilegri tölvu með góðri batterís endingu.
Sent: Mið 22. Nóv 2006 13:40
af Mazi!
Sent: Mið 22. Nóv 2006 14:23
af gumol
Tölvulista tölvan:
15.4" WideScreen WXGA CrystalBrite með 1280x800
Þetta er alltof lítil upplausn fyrir svona stóran skjá.
Sent: Mið 22. Nóv 2006 14:34
af Voffinn
gumol skrifaði:Tölvulista tölvan:
15.4" WideScreen WXGA CrystalBrite með 1280x800
Þetta er alltof lítil upplausn fyrir svona stóran skjá.
Alls ekki, var að skoða þessa tölvu bara í gær og hún leit mjög vel út.
Sent: Mið 22. Nóv 2006 14:49
af gumol
Ég er að nota þessa upplausn á 13 tommu skjá og ég get ekki ímyndað mér að vera með hana á yfir 15 tommu skjá.
Sent: Fim 23. Nóv 2006 11:57
af wICE_man
Er þetta bara í mínum vafra eða er þessi tölva horfin?
Og hvaða vaktari verslar svo sem við Tölvunasistann?
Sent: Fim 23. Nóv 2006 12:56
af Voffinn
wICE_man skrifaði:Er þetta bara í mínum vafra eða er þessi tölva horfin?
Og hvaða vaktari verslar svo sem við Tölvunasistann?
Sennilega þeir sem geta ekki keypt tölvur hjá þér af því að þær eru allar uppseldar... ég var að hjálpa frænda mínum að velja fartölvu en eftir að hafa kíkt á heimasíðuna þína, þá voru bara engar fartölvur til á lager!
Sent: Fim 23. Nóv 2006 21:17
af Dári
Hefurðu pælt í
MacBook? held að öll þessi forrit fáist fyrir makkann, en það skiptir kanski ekki svo miklu máli þar sem þú getur keyrt windows líka á henni. Kostar ekki nem 120þúsund kall á klakanum
Sent: Fös 24. Nóv 2006 12:18
af wICE_man
Voffinn skrifaði:wICE_man skrifaði:Er þetta bara í mínum vafra eða er þessi tölva horfin?
Og hvaða vaktari verslar svo sem við Tölvunasistann?
Sennilega þeir sem geta ekki keypt tölvur hjá þér af því að þær eru allar uppseldar... ég var að hjálpa frænda mínum að velja fartölvu en eftir að hafa kíkt á heimasíðuna þína, þá voru bara engar fartölvur til á lager!
Point taken, við einfaldlega náðum ekki að anna eftirspurn í haust enda í mörgum tilfellum 10-15.000kr ódýrari en samkeppnisaðilar. En það eru samt aðrir staðir en Tölvunasistinn til þegar við bregðumst
En svo eigum við þessa vél með bleiksanseruðu loki, beat that
Sent: Fös 24. Nóv 2006 18:25
af gnarr
Ég mæli með avartec 1050 vélinni í kísildal. Síðan er spurning hvað þú ert að taka upp? eða ertu kanski bara að mixa á þessari tölvu?
Þú verður líka að vera með ProTools "approved" hljóðkort. Semsagt ProTools M-Powered M-Audio kort eða kort frá Digidesign.
Sent: Þri 28. Nóv 2006 15:05
af María
Frábært! takk fyrir alla hjálpina, ég ætla að spá aðeins í þessu, spara aðeins meira og svona
Sent: Þri 28. Nóv 2006 16:12
af ÓmarSmith
http://www.tolvutaekni.is
ekkert flókið
persónuleg og góð þjónusta, ef vara er ekki til þá kemur hún iðulega mjööööög hratt og örugglega.
Hef pantað nokkra hluti þarna og aldrei þurft að bíða neitt.
Sent: Þri 28. Nóv 2006 19:19
af Dust
Bara hugdetta
Notaður lappi