Síða 1 af 1

Acer : Aspire eða Travelmate

Sent: Þri 18. Júl 2006 23:37
af Bj4rki
Sælir

Ég er að spá í að fjárfesta mér í fartölvu og hef fundið eina í danmörku þar sem ég er að fara og það er Acer Travelmate tölva : http://edbpriser.dk/Listprices.asp?ID=209893 .

Getur einhver sagt mér hvort aspire séu betri tölvur heldur en travelmate. Til dæmis væri aspire betri tölva með þessu sem er í linknum heldur en travelmate? Takk

Sent: Mið 19. Júl 2006 00:15
af kokosinn
Mæli frekar með Aspire, Aspire 5670...er með þannig og get ábyrgst goða vél

http://us.acer.com/acereuro/page4.do?sp ... 1163154511

hér er mynd af henni ásamt specc

1.73Ghz Intel Centrino Duo
2gb ddr2 533mhz
120gb diskur
X1600 PCI-Express 512mb kort

Flottur skjár með crystal brite tækni. Hún er ótrúlega flott og góð, myndavél á skjá og mic og allur pakkinn bara :) kostar 179.000 í tölvulistanum allavega. Mæli eindregið með henni

Sent: Mið 19. Júl 2006 00:31
af audunn
ætti nú ekki að vera neinn gæðamunur milli aspire og travelmate... travelmate eru meira hannaðar sem business tölvur margar travelmate eru örlitlar og svoleiðs! held það sé oftast þannig að travelmate koma með xp pro en aspire með xp home..

þannig að fyrir skólavél sem virkar í leiki þá eru aspire líklegri nema skólinn fari framá að þú sért með xp pro á vélinni :8)

Sent: Mið 19. Júl 2006 13:35
af DoofuZ
kokosinn, hefuru eitthvað prófað að tengja lappann þinn við sjónvarp? Hvernig virkaði það? Var það ekkert mál og svona, að fá allt í lit og allt það? Ég er nefnilega að fara að kaupa sömu týpu og þú átt núna í vikunni í Kísildalnum á 155þús. eða svo ;) Reyndar bara með 1gb í minni, en hver þarf meira? Og svo verður minnið 633mhz :)

Sent: Mið 19. Júl 2006 13:40
af kokosinn
hmmm okei :p Er það með T2200 örranum?

Sent: Mið 19. Júl 2006 13:41
af kokosinn
gæti ekki líka verið að þú sért að fá Aspire 5671? Það er minni vélin, samt sama skjákort og diskur

Sent: Mið 19. Júl 2006 13:43
af kokosinn
audunn skrifaði:ætti nú ekki að vera neinn gæðamunur milli aspire og travelmate... travelmate eru meira hannaðar sem business tölvur margar travelmate eru örlitlar og svoleiðs! held það sé oftast þannig að travelmate koma með xp pro en aspire með xp home..

þannig að fyrir skólavél sem virkar í leiki þá eru aspire líklegri nema skólinn fari framá að þú sért með xp pro á vélinni :8)


veistu Audunn, það kæmi mér bara alls ekkert á óvart :s

Sent: Mið 19. Júl 2006 15:16
af gnarr
notaðu edit takkann!

Sent: Mið 19. Júl 2006 15:50
af Bj4rki
En hvernig er með þessa tölvu sem ég sendi link á, ræður hún við nýjustu leiki og þannig?

Sent: Mið 19. Júl 2006 17:05
af DoofuZ
Nei kokosinn, vélin sem ég fæ mér er með T2300 örgjörva :8)

Sent: Mið 19. Júl 2006 20:10
af kokosinn
össs það er ekkert annað ;)