Síða 1 af 1

A challenger appears!

Sent: Þri 27. Jún 2006 22:11
af tms
Sælir,
var búinn að plana að kaupa mér ferðatölvu á undir 200.000kr, með Dual Core örgjörva, 1GB minni og skjá með 1680x1050 upplausn (eða hærri), og þá kom lítið annað til mála en þessi til mála.
Allt í einu birtist challenger og málið var ekki eins auðvelt lengur.

Er eitthvað hægt að vera að druslast með 17" lappa í skólan? Er ég að horfa fram hjá eitthverjum öðrum betri lappa? Þarf að fá svar fyrir 1. júl., þá verð ég vonandi hjá ejs að eyða laununum :)

Sent: Þri 27. Jún 2006 22:58
af Alcatraz
Ef tölvan er bara fyrir skóla þá er best að hún sé létt og að rafhlaðan sé með mikla endingu. En miðað við að þú ætlar að eyða 200.000 kalli í tölvuna þá ætlarðu væntanlega líka að nota hana í leiki en mér finnst þetta vera einfalt.

Öflug borðtölva í leikina og "soso" fartölva í skólann.

Sent: Þri 27. Jún 2006 23:41
af Rusty
Betra er að fá sér mjög létta tölvu með rafhlöðu sem endist, því annars áttu aldrei eftir að nenna að vera að taka hana með þér í skólann.

Sent: Þri 27. Jún 2006 23:44
af tms
Nei það verða engir leikir spilaðir á þessari tölvu :O
Annars væri ég ekki búinn að sætta mig við GMA950 skjákort.

Sent: Mið 28. Jún 2006 10:53
af Yank
tms skrifaði:Nei það verða engir leikir spilaðir á þessari tölvu :O
Annars væri ég ekki búinn að sætta mig við GMA950 skjákort.

Þá hefur þú lítið við ferðavél með 7800 go korti að gera og þá auka þyngd sem því fylgir. Eða hvað?

Sent: Mið 28. Jún 2006 11:11
af Baldurmar
Og afhverju að henda svona miklum pening í hana?
Getur fengið fína tölvu á miklu minna. Bættu bara við vinnsluminni á einhverja ódýra með góðri batterýs endingu, þá ertu góður.

Sent: Mið 28. Jún 2006 13:02
af tms
Baldurmar skrifaði:Og afhverju að henda svona miklum pening í hana?
Getur fengið fína tölvu á miklu minna. Bættu bara við vinnsluminni á einhverja ódýra með góðri batterýs endingu, þá ertu góður.

Ég þarf ekkert endilega að eyða miklu í hana, en ef maður ætlar að fá sér ferðatölvu með góðum skjá verður maður að fara svona hátt.

Sent: Mið 19. Júl 2006 00:32
af kokosinn
Ef þig vantar bara fartölvu fyrir skólann, þá myndi ég bara fara útí BT og versla eitt stykki dós á 60-99.000 fer eftir hvaða verð er á þessu hjá þeim. Myndi aldrei spreða millum í tölvu til að nota fyrir ritvinnslu og kannski smá power point :p

Sent: Mið 19. Júl 2006 09:35
af ManiO
kokosinn skrifaði:Ef þig vantar bara fartölvu fyrir skólann, þá myndi ég bara fara útí BT og versla eitt stykki dós á 60-99.000 fer eftir hvaða verð er á þessu hjá þeim. Myndi aldrei spreða millum í tölvu til að nota fyrir ritvinnslu og kannski smá power point :p

Hann þurfti svar fyrir 1. júlí, frekar seint að koma með þetta núna...

Sent: Fim 20. Júl 2006 12:46
af tms
4x0n skrifaði:

Og líka hræðilegt ráð.
Keypti mér Dell Inspiron 6400 með góðri batterísendingu og mögnuðum skjá.
Sé ekkert eftir að hafa ekki hlustað á ykkur.

Sent: Fim 20. Júl 2006 12:52
af kokosinn
ég sé ekki hvað er svona hræðilegt ráð að segja þér að kaupa þér dós á lítinn pening þar sem þú ætlaðir bara að nota hana í skólann, ef það er ekki kennt í skólanum hjá þér, þá kallast þetta hagfræði. En gott að þú fannst þér samt eitthvað :)

Sent: Fim 20. Júl 2006 15:37
af gnarr
kokosinn skrifaði:ef það er ekki kennt í skólanum hjá þér, þá kallast þetta hagfræði.

LOL!

Ertu 100% viss um að þetta sé ekki viðskiptafræði? eða jafnvel sálfræði?

Sent: Fim 20. Júl 2006 22:12
af goldfinger
Þjóðhagfræði ?

Sent: Fim 20. Júl 2006 23:22
af tms
Hvernær hef ég sagt að hún verður bara notuð í skólanum?
Eina sem er hægt að nota tölvur í í skólanum er að gera eitthvað annað en að læra eða glósa niður í leiðinlegu fögunum.

Sent: Fim 20. Júl 2006 23:41
af kokosinn
Varst allavega búinn að nefna að nota hana í skólann, og minntist á að það yrðu engir leikir spilaðir í henni...þá þarftu enga ofurvél kallinn minn

Sent: Fös 21. Júl 2006 00:37
af tms
kokosinn skrifaði:Varst allavega búinn að nefna að nota hana í skólann, og minntist á að það yrðu engir leikir spilaðir í henni...þá þarftu enga ofurvél kallinn minn

Ég gerði þennan þráð fyrst og fremst til að sjá hvort ég væri að fara fram hjá góðri tölvu þegar ég var með nóg af tíma til að eyða í að skoða fartölvur. Svo reyndist ekki, ég keypti mér tölvu með 1680x1050 skjá sem var lágmark sem ég var búinn að ákveða. Case closed.
Mér er sama þó þú segir að þú mundir frekar kaupa þér druslu sem endist ekki í neitt annað en skólan á meðan ódýrt batterí endist í þessum þræði, en ekki fara að álykta hvað ég geri í tölvunni og hvernig tölvu ég þarf.
Það getur vel verið að með síðasta bréfinu þínu hér hefuru bara verið að vernda mál þitt en þetta fer að verða frekar dónalegt.

Sumir kaupa bíla til að komast frá A til B (ég t.d.), aðrir kaupa draumabílinn þó þeir þurfa í raun og veru bara að komast í búðina.

I, accustomed to the finer things in life, find your laptop bland and boring.

P.S. Ég er ekki kallinn þinn.
EDIT: 666. bréf, passaðu þig bara! :twisted:

Sent: Þri 14. Ágú 2007 15:35
af CendenZ
tms skrifaði:
4x0n skrifaði:
kokosinn skrifaði:Ef þig vantar bara fartölvu fyrir skólann, þá myndi ég bara fara útí BT og versla eitt stykki dós á 60-99.000 fer eftir hvaða verð er á þessu hjá þeim. Myndi aldrei spreða millum í tölvu til að nota fyrir ritvinnslu og kannski smá power point :p

Hann þurfti svar fyrir 1. júlí, frekar seint að koma með þetta núna...

Og líka hræðilegt ráð.
Keypti mér Dell Inspiron 6400 með góðri batterísendingu og mögnuðum skjá.
Sé ekkert eftir að hafa ekki hlustað á ykkur.

WUXGA skjár ?

ég er með dell 9300 með wuxga skjá, þvílíkur draumur !!!
Matlab, Open office og firefox hlið við hlið.

Sent: Þri 14. Ágú 2007 16:12
af corflame
Þú ert bara ári of seinn að svara :P

Sent: Þri 14. Ágú 2007 16:56
af CendenZ
WTH, afhverju birtist hann upp hjá mér efst .. ég hélt þetta hefði verið nýtt .. eldrautt alveg hreint