Síða 1 af 1
Glósu/leikja fartölva
Sent: Mið 07. Jún 2006 22:35
af noizer
Sælt veri fólkið.
Nú hef ég verið að skoða fartölvur sem verður notuð í skólanum en samt verður hún notuð eitthvað til leikjaspilunnar. Verðin sem ég hef aðallega verið að spá í er í kringum 150.000 kr. og þá hefur mér litist vel á
Acer Aspire 5672WLMI á
151.950 kr. Er þetta ekki alveg ágæt fartölva?
Annars megið þið alveg koma með hugmyndir að öðrum tölvum.
Sent: Mið 07. Jún 2006 23:58
af Tesli
Mér finnst skjárinn mjög slappur en annars ágætis fartölva
Sent: Fim 08. Jún 2006 00:13
af @Arinn@
Þetta er svona alveg í það minnsta ég myndi vilja betri.
EDIT: Er svona búinn að vera að skoða þetta og maður fær ekkert betra fyrir þennann pening en annars myndi ég fá mér
http://computer.is/vorur/5698
eða
http://computer.is/vorur/5823
Sent: Fim 08. Jún 2006 00:25
af Rusty
Eins og oft hefur komið fram, helst að fá sér ódýra og létta fartölvu í skólann svo þú nennir nú að bera hana út um allt, og aðra undir leiki.
Nema þú sért bara að fara að spila CS og Quake etc.
Sent: Fim 08. Jún 2006 07:38
af noizer
hmm kannski ég fái mér bara
QUANTA HW1A. Er Quanta ekki annars bara fínt merki?
Sent: Fim 08. Jún 2006 08:23
af gnarr
Skoðaðu 13" MacBook tölvurnar. Fáránlega léttar og öflugar vélar fyrir þennann pening.
Sent: Sun 11. Jún 2006 21:11
af noizer
Jæja ég held ég sé bara hættur við að kaupa Quanta lappann og ætla að fá mér
Acer Aspire 5652WLMI og þá þarf ég ekkert að kaupa mér nýja borðtölvu alveg strax, þar sem þessi lappi er betri en borðtölvan sem ég á núna
Sent: Sun 18. Jún 2006 20:18
af goldfinger
Mín fartölva er nú um 2,9kg og virkar enn vel eftir rúmlega 2 ára notkun, hinsvegar er maður að farinn að hugsa um að fá sér einhverja nettari, mjög þreytandi að hafa þetta á bakinu ásamt nokkrum skólabókum.
Sent: Sun 18. Jún 2006 21:05
af ICM
Passaðu þig þó á MacBook, þær eru ekki kjöltutölvur og þeir vara við að geyma þær á lærunum.
Sent: Sun 18. Jún 2006 21:25
af CraZy
ICM skrifaði:Passaðu þig þó á MacBook, þær eru ekki kjöltutölvur og þeir vara við að geyma þær á lærunum.
Brunahætta?
Sent: Sun 18. Jún 2006 22:12
af ICM
Já
My MacBook under load runs up to 95 degrees celcius, or 203 degrees fahrenheit. It isn’t rocket science to understand that is extremely hot, easily hot enough to inflict a wound. Those of us who have complained to Apple about the heat and discomfort it causes typically receive this snotty answer “The MacBook is a notebook, not a laptop, refer to your user manual.”
Sent: Sun 18. Jún 2006 22:39
af CraZy
váá 95°c
það er ekkert smá