AlltSaman hjá Nova, hvar liggja sanngirnismörkin?

Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17397
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2436
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: AlltSaman hjá Nova, hvar liggja sanngirnismörkin?

Pósturaf GuðjónR » Mið 02. Sep 2026 14:18

gunni91 skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Uppfært, september 2026.

hvort þessi þróun sé farin að vera úr takti við raunverulegt verðmæti þjónustunnar og almennt verðlag í þjóðfélaginu.
Sérstaklega þegar stór hluti þess sem er innifalið í pakkanum mínum er einfaldlega ekki nýttur.

Þegar ég skrifaði upphaflegu færsluna var ég að velta fyrir mér hvort ég ætti að halda áfram hjá Nova eða skoða aðra kosti.
Eftir þessar tvær hækkanir á árinu er spurningin orðin aðeins skýrari.

Kannski er því einfaldlega kominn tími til að skoða Hringdu aftur eftir öll þessi ár.


Þessar hækkanir á einu ári eru miklar og erfitt að réttlæta, en þá spyr maður sig er eitthvað annað betra í boði? Hvernig er samkeppnin.
Er þetta ekki bara orðið eins og með tryggingarfélögin? skoða í kringum sig á eins til tveggja ára fresti?

Þetta er orðið svo auðvelt að færa sig milli fjarskiptafyrirtækja í dag.

Er sjálfur hjá Vodafone og hef ekki pælt nógu mikið í þessu öllu saman.


Sammála. Þetta er farið að minna töluvert á tryggingamarkaðinn þar sem tryggð við eitt fyrirtæki er ekki endilega verðlaunuð og það borgar sig að bera saman verð reglulega.

Ég fór sjálfur nýlega yfir tryggingarnar mínar og sparaði rúmlega 113 þús. kr. á ári með því að skipta um félag.

Nú þegar ég skoða fjarskiptaþjónustuna sé ég að sambærileg lausn hjá Hringdu með 1 Gbit ljósleiðara og 5 farsíma kostar um 20.750 kr. á mánuði, á móti 28.150 kr. hjá Nova. Það er munur upp á 7.400 kr. á mánuði, eða 88.800 kr. á ári.

Til að vera sanngjarn þá fylgja Úrlausnir ekki með hjá Hringdu, auk þess eru hvorki 2f1 tilboð né 10% tækjaafsláttur eins og hjá Nova.

Samt finnst mér munurinn orðinn það mikill að það sé eðlilegt að fara að skoða málið alvarlega í stað þess að vera áfram af vana.




orn
has spoken...
Póstar: 164
Skráði sig: Þri 18. Okt 2016 10:46
Reputation: 43
Staða: Ótengdur

Re: AlltSaman hjá Nova, hvar liggja sanngirnismörkin?

Pósturaf orn » Fim 03. Sep 2026 10:32

M.v. verðlagsreiknivél Hagstofunnar kostar dýrasti Alltsaman pakki núna 1% minna en þessar 19.900 kr. í ágúst 2020 leiðréttur fyrir verðbólgu. Hann kostar í dag 28.150 en ætti að kosta 28.495 skv. reiknivélinni.
Viðhengi
Screenshot 2026-09-03 at 10.27.26.png
Screenshot 2026-09-03 at 10.27.26.png (316.37 KiB) Skoðað 900 sinnum



Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17397
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2436
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: AlltSaman hjá Nova, hvar liggja sanngirnismörkin?

Pósturaf GuðjónR » Fim 03. Sep 2026 11:15

orn skrifaði:M.v. verðlagsreiknivél Hagstofunnar kostar dýrasti Alltsaman pakki núna 1% minna en þessar 19.900 kr. í ágúst 2020 leiðréttur fyrir verðbólgu. Hann kostar í dag 28.150 en ætti að kosta 28.495 skv. reiknivélinni.


Gott og vel, en ef þú skoðar upphafsinnlegg þráðarins þá sérðu líka að verðið var 20.990 kr. í janúar 2024.
Samkvæmt verðlagsreikni Hagstofunnar ætti verðið í ágúst 2026 að vera 24.010 kr. miðað við almenna verðlagsþróun, sem gerir um 14,4% hækkun eða 5,3% á ári.

Raunverulegt verð er hins vegar 28.150 kr., sem er 34,1% hækkun á 2 árum og 9 mánuðum, eða 11,3% á ári, sem er langt umfram almenna verðbólgu tímabilsins.
Viðhengi
Screenshot 2026-09-03 at 11.05.17.png
Screenshot 2026-09-03 at 11.05.17.png (188.79 KiB) Skoðað 889 sinnum




orn
has spoken...
Póstar: 164
Skráði sig: Þri 18. Okt 2016 10:46
Reputation: 43
Staða: Ótengdur

Re: AlltSaman hjá Nova, hvar liggja sanngirnismörkin?

Pósturaf orn » Fim 03. Sep 2026 11:32

Áhugavert. Það segir þá að Nova hafi annað hvort vanrækt hækkanir eða haldið aftur af sér á tímabilinu 2020-2024.

Er slíkur seinagangur eitthvað sem er ósanngjarnt að sé leiðrétt fyrir á endanum? Viðskiptavinur hefur væntanlega notið góðs af því að borga "minna" m.t.t. verðlags í dágóðan tíma. Það væri lítið mál að færa rök fyrir að þ.a.l. þyrfti hækkun að vera umfram verðbólgu, eða hvað?

Annars ætlaði ég ekki að taka þátt í e-u rifrildi. Mig langaði bara að benda á þessa staðreynd.
Síðast breytt af orn á Fim 03. Sep 2026 13:53, breytt samtals 1 sinni.



Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17397
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2436
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: AlltSaman hjá Nova, hvar liggja sanngirnismörkin?

Pósturaf GuðjónR » Fim 03. Sep 2026 14:29

Þetta er alls ekki rifrildi, heldur málefnaleg umræða um sama málið út frá mismunandi sjónarhornum.
Rökin sem þú kemur með eru alveg gild ef miðað er við árið 2020 og verðið er leiðrétt miðað við verðbólgu.

En þá kemur upp önnur spurning: hvað með þá sem byrjuðu hjá Nova í janúar 2024 þegar pakkinn kostaði 20.990 kr.?
Þeir nutu ekki góðs af því að Nova héldi aftur af hækkunum á árunum þar á undan, en sitja nú uppi með 34,1% hækkun á innan við þremur árum.

Það er því alveg hægt að færa rök fyrir því að Nova hafi verið of lengi að hækka verðið og sé nú að ná þeim hækkunum upp.
En er sanngjarnt að viðskiptavinir sem komu inn síðar borgi fyrir þá uppsöfnuðu hækkun?

Að mínu mati snýst þetta ekki endilega um hvort Nova megi hækka verð, heldur hvort 34% hækkun á tiltölulega stuttum tíma sé ásættanleg fyrir viðskiptavininn miðað við þá þjónustu sem hann fær og þá valkosti sem eru í boði á markaðnum.

Á endanum skiptir minna máli hvort verðhækkunin sé réttlætanleg út frá verðbólgu, kostnaði eða einhverju öðru.
Ef viðskiptavinur getur fengið sambærilega þjónustu sem uppfyllir þarfir hans annars staðar fyrir tugþúsundum króna minna á ári, þá er eðlilegt að hann íhugi að færa viðskiptin.




orn
has spoken...
Póstar: 164
Skráði sig: Þri 18. Okt 2016 10:46
Reputation: 43
Staða: Ótengdur

Re: AlltSaman hjá Nova, hvar liggja sanngirnismörkin?

Pósturaf orn » Fim 03. Sep 2026 15:51

GuðjónR skrifaði:Þetta er alls ekki rifrildi, heldur málefnaleg umræða um sama málið út frá mismunandi sjónarhornum.

Ég meinti það alls ekki sem svo að þetta væri rifrildi. Var í raun bara að tilkynna að ég væri ekki að fara að deyja á þessum hól. Góður punktur með þá sem komu síðar að borðinu. Held það sé almennt óheppilegt að bíða of lengi með verðhækkanir og taka þær í stærri stökkum því það skapar meiri óánægju á einhverju base-leveli hjá fólki.



Skjámynd

Baldurmar
Geek
Póstar: 869
Skráði sig: Þri 20. Jún 2006 12:07
Reputation: 163
Staða: Ótengdur

Re: AlltSaman hjá Nova, hvar liggja sanngirnismörkin?

Pósturaf Baldurmar » Þri 08. Sep 2026 16:31

Það þarf einhver að leggjast yfir það hversu mikið af verðbólgunni er bókstaflega græðgi fyrirtækja...


Gigabyte X850 - Ryzen 9900X 32gb Kingston CL30 6000mhz - AMD 7900XTX

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 9109
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1447
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: AlltSaman hjá Nova, hvar liggja sanngirnismörkin?

Pósturaf rapport » Þri 08. Sep 2026 17:07

Baldurmar skrifaði:Það þarf einhver að leggjast yfir það hversu mikið af verðbólgunni er bókstaflega græðgi fyrirtækja...


Að nota verðtryggingu er by default græðgi...

Af hverju á húsaleiga að hækka þegar Cheerios hækkar í verði vegna lélegs gengis?

Af hverju ætti að lofa lánveitendum eða leigusölum að krónurnar sem þeir fá greiddar geti keypt jafn mikið af einhverjum neysluvörum og krónurnar sem þeir lánuðu OG hvað þá að vextir séu greiddir af uppreiknuðum verðtryggðum höfuðstól?

Það er búið að "gíra" þetta kerfi eins mikið upp og hægt er.



Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6897
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 975
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: AlltSaman hjá Nova, hvar liggja sanngirnismörkin?

Pósturaf Viktor » Þri 08. Sep 2026 19:45

rapport skrifaði:Af hverju á húsaleiga að hækka þegar Cheerios hækkar í verði vegna lélegs gengis?


Húsaleigan er ekki að hækka. Virði krónunnar er að lækka.


I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 9109
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1447
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: AlltSaman hjá Nova, hvar liggja sanngirnismörkin?

Pósturaf rapport » Þri 08. Sep 2026 20:59

Viktor skrifaði:
rapport skrifaði:Af hverju á húsaleiga að hækka þegar Cheerios hækkar í verði vegna lélegs gengis?


Húsaleigan er ekki að hækka. Virði krónunnar er að lækka.


Nei, ekki ef bara Ceerios hækkar í verði...



Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6897
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 975
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: AlltSaman hjá Nova, hvar liggja sanngirnismörkin?

Pósturaf Viktor » Þri 08. Sep 2026 21:08

rapport skrifaði:
Viktor skrifaði:
rapport skrifaði:Af hverju á húsaleiga að hækka þegar Cheerios hækkar í verði vegna lélegs gengis?


Húsaleigan er ekki að hækka. Virði krónunnar er að lækka.


Nei, ekki ef bara Ceerios hækkar í verði...


Þá hækkar húsaleigan ekki :popeyed


I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB


gunni91
Besserwisser
Póstar: 3821
Skráði sig: Mán 03. Jan 2011 00:22
Reputation: 268
Staða: Ótengdur

Re: AlltSaman hjá Nova, hvar liggja sanngirnismörkin?

Pósturaf gunni91 » Þri 08. Sep 2026 23:32

Væntanlega er Rapport að vísa í ansi marga húsaleigusamninga sem eru tengdir við vísitölu neysluverðs eða með þannig ákvæði að leigusali megi hækka samninginn í takt við vísitöluna. Ef overall matarkarfan (cheerios) hækkar sem er ein af mörgum variables til að mæla vísitölu neysluverðs, þá hækkar vísitalan/verðbólga sem bitnar á heimilum landsins sem eru með verðtryggð lán sem og húsaleigu sem eru tengd við vísitöluna.

Ætla nú ekki að segja að verðtryggingin sé græðgi en það er vissulega allt "gírað" í botn :fly
Síðast breytt af gunni91 á Þri 08. Sep 2026 23:35, breytt samtals 2 sinnum.



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 9109
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1447
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: AlltSaman hjá Nova, hvar liggja sanngirnismörkin?

Pósturaf rapport » Mið 09. Sep 2026 06:52

Viktor skrifaði:
rapport skrifaði:
Viktor skrifaði:
rapport skrifaði:Af hverju á húsaleiga að hækka þegar Cheerios hækkar í verði vegna lélegs gengis?


Húsaleigan er ekki að hækka. Virði krónunnar er að lækka.


Nei, ekki ef bara Ceerios hækkar í verði...


Þá hækkar húsaleigan ekki :popeyed


Jú, Cheerios er í neyslukörfunni, grunni vísitölunnar.

Þegar Cheerios hækkar í verði, sama hver ástæða hækkunarinnar er, þá verður til verðbólga á Íslandi.
Síðast breytt af rapport á Mið 09. Sep 2026 06:53, breytt samtals 1 sinni.