Nýr sími...halda mig í Galaxy eða prófa iPhone?
-
Höfundur - Stjórnandi
- Póstar: 5596
- Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
- Reputation: 1054
- Staða: Ótengdur
Nýr sími...halda mig í Galaxy eða prófa iPhone?
Ég þarf að endurnýja símann, er með galaxy s6+, þar á undan galaxy s2. Uppfæri ekki oft, þannig að ég er ekki svona poweruser í farsíma, er meiri desktop user.
Ekkert að kvarta yfir vegna samsung galaxy, er að hugsa um s10+ þá. Reyndar hefur mér alltaf fundist interfaceið í android vera svolítið óþarflega flókið, allskonar skjámyndir og icon scatteruð út um allt hér og þar.
En svo finnst mér iPhone líka bara flottur, betur organizað ui. En aldrei verið með iPhone þannig að ég veit ekki hver reynslan er þar í samanburði við android.
Einhver ástæða önnur að skipta í iPhone?
Svo er ég ekki viss um að ég vilji fórna minijack, sem iPhone er ekki með.

*-*
-
- Gúrú
- Póstar: 550
- Skráði sig: Mán 20. Sep 2010 22:31
- Reputation: 57
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Nýr sími...halda mig í Galaxy eða prófa iPhone?
Ef þú vilt að eitthvað virki, og heldur áfram að virka lengi og þér er alveg sama um hvernig stýrikerfið lítur út > iPhone
Ef þú vilt leikja þér við stýrikerfið og sérsníða það > Android
Ef þú vilt leikja þér við stýrikerfið og sérsníða það > Android
What ever you do, what ever you think you can do, there'll always be an Asian who's better than you.
-
- Bara að hanga
- Póstar: 1577
- Skráði sig: Mið 13. Apr 2005 13:56
- Reputation: 130
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Nýr sími...halda mig í Galaxy eða prófa iPhone?
Ég er Samsung maður en nýju Iphone 11 Pro símarnir virðast vera mjög flottir og frábærar myndavélar. Ég fíla Android betur og hef ekki hugsað mér að skipta en skil alveg fólk sem freistast í eplin.
Have spacesuit. Will travel.
Re: Nýr sími...halda mig í Galaxy eða prófa iPhone?
Bæði Galaxy 10+ og iPhone 11 eru geggjað flottir símar, en þeir eru líka geggjað dýrir. Ég ákvað fyrir rúmu ári að kaupa ódýran en sæmilega spekkaðan kínasíma til prufu. Ég keypti Xiaomi Mi A2 á rúmlega 30 þúsund. Skjárinn er fínn, hraðinn er fínn, myndvélin er fín, batteríið er gott og hann er svo svipaður iPhone X plus að ég og dóttir mín erum hvað eftir annað að ruglast á símum. Hann er það góður að ég sé ekki tilgang í að kaupa síma á 100-200 þúsund, get notað peninginn í eitthvað annað. Það eru til betri kínasímar ef mann langar í fjarhleðslu, betri vatnsvörn ofl. Dýrasti Xiaomi síminn kostar 80þ. vs ...250..300? fyrir iPhone. Ef vinnan borgar þá skiptir þetta auðvitað minna máli
Re: Nýr sími...halda mig í Galaxy eða prófa iPhone?
Ég var dolfallinn Android maður en skipti úr Galaxy S7 í iPhone 7 Plus þegar hann kom út og er með iPhone XS Max í dag, gæti ekki verið sáttari. Stýrikerfið er að mínu mati einfaldara og þau öpp sem ég er að nota eru meira responsive á iPhone. Hvet þig því eindregið til að prófa eplið. Í versta falli mætti selja það ef þér finnst þetta alveg hræðilegt en eplin virðast halda verði betur á notuðum markað.
Ef ég þyrfti að kaupa mér Android síma í dag myndi ég þó sennilega kaupa OnePlus. 90Hz skjár, flottir spekkar og gott stýrikerfi sem fæst á góðu verði.
Ef ég þyrfti að kaupa mér Android síma í dag myndi ég þó sennilega kaupa OnePlus. 90Hz skjár, flottir spekkar og gott stýrikerfi sem fæst á góðu verði.
Löglegt WinRAR leyfi
Re: Nýr sími...halda mig í Galaxy eða prófa iPhone?
Ég var alltaf með Android. Skipti frá Galaxy S7 yfir í iPhone 8 og næsti sími mun vera iPhone. iPhone uppfyllir allar þær kröfur sem ég geri til síma, Android bíður upp á miklu fleiri möguleika með margt en ég endaði yfirleitt á því að "skemma" símana því ég fiktaði svo mikið í Android.
Tölva, 2 skjáir, Alltof mörg lyklaborð, þráðlaus mús og næs heyrnatól
Re: Nýr sími...halda mig í Galaxy eða prófa iPhone?
Sammála með að bæði OnePlus og Xiaomi séu flottir símar. Keypti Xiaomi MI 9 af GearBest um daginn. Hingað kominn á innan við 60.000. Frábær sími.
-
- </Snillingur>
- Póstar: 1020
- Skráði sig: Lau 06. Des 2008 12:28
- Reputation: 206
- Staðsetning: ::1
- Staða: Ótengdur
Re: Nýr sími...halda mig í Galaxy eða prófa iPhone?
Fólk segir oft þegar það er borið saman iPhone og Android, að þú getir "fiktað" meira i android.
Málið er að ég held að langflestir vilji bara síma sem VIRKI án þess að fikta eitthvað.
iPhone er svo algjörlega málið þegar kemur að bara að virka. Skiptir ekki máli hvað er í gangi, þá bara virkar hann

CCNA Collaboration
CCNA Voice
CCNA Video
Re: Nýr sími...halda mig í Galaxy eða prófa iPhone?
Hauxon skrifaði:Bæði Galaxy 10+ og iPhone 11 eru geggjað flottir símar, en þeir eru líka geggjað dýrir. Ég ákvað fyrir rúmu ári að kaupa ódýran en sæmilega spekkaðan kínasíma til prufu. Ég keypti Xiaomi Mi A2 á rúmlega 30 þúsund. Skjárinn er fínn, hraðinn er fínn, myndvélin er fín, batteríið er gott og hann er svo svipaður iPhone X plus að ég og dóttir mín erum hvað eftir annað að ruglast á símum. Hann er það góður að ég sé ekki tilgang í að kaupa síma á 100-200 þúsund, get notað peninginn í eitthvað annað. Það eru til betri kínasímar ef mann langar í fjarhleðslu, betri vatnsvörn ofl. Dýrasti Xiaomi síminn kostar 80þ. vs ...250..300? fyrir iPhone. Ef vinnan borgar þá skiptir þetta auðvitað minna máli
Það sem gerir sig ekki fyrir mig í þessum kínasímum er að í þeim flestum þá vantar einhvern fídus, eins og NFC og þráðlausu hleðsluna , ég borga td einungis með símanum mínum í dag, hef ekki borgað með korti í marga mánuði , og ég nota mikið þráðlausa hleðslu , yfirleitt með símann í dokku í glugganum þegar ég er að keyra í vinnuni og hann hleðst á meðan
-
- </Snillingur>
- Póstar: 1020
- Skráði sig: Lau 06. Des 2008 12:28
- Reputation: 206
- Staðsetning: ::1
- Staða: Ótengdur
Re: Nýr sími...halda mig í Galaxy eða prófa iPhone?
Hauxon skrifaði: Dýrasti Xiaomi síminn kostar 80þ. vs ...250..300? fyrir iPhone. Ef vinnan borgar þá skiptir þetta auðvitað minna máli
Hvar finnur þú 300k iphone?
CCNA Collaboration
CCNA Voice
CCNA Video
-
- Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 382
- Skráði sig: Mið 28. Maí 2014 13:57
- Reputation: 54
- Staðsetning: Akureyri
- Staða: Ótengdur
Re: Nýr sími...halda mig í Galaxy eða prófa iPhone?
Jón Ragnar skrifaði:Hauxon skrifaði: Dýrasti Xiaomi síminn kostar 80þ. vs ...250..300? fyrir iPhone. Ef vinnan borgar þá skiptir þetta auðvitað minna máli
Hvar finnur þú 300k iphone?
https://www.epli.is/iphone/iphone-11-pro-max-512-space.html
Þessi er ekkert langt frá 300k
-
- </Snillingur>
- Póstar: 1020
- Skráði sig: Lau 06. Des 2008 12:28
- Reputation: 206
- Staðsetning: ::1
- Staða: Ótengdur
Re: Nýr sími...halda mig í Galaxy eða prófa iPhone?
brynjarbergs skrifaði:Jón Ragnar skrifaði:Hauxon skrifaði: Dýrasti Xiaomi síminn kostar 80þ. vs ...250..300? fyrir iPhone. Ef vinnan borgar þá skiptir þetta auðvitað minna máli
Hvar finnur þú 300k iphone?
https://www.epli.is/iphone/iphone-11-pro-max-512-space.html
Þessi er ekkert langt frá 300k
Dýrasta týpan er ekki sambærilegt við ódýran kínasíma?
Færð iPhone 11 Pro á talsvert minna en þetta
CCNA Collaboration
CCNA Voice
CCNA Video
-
- Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 382
- Skráði sig: Mið 28. Maí 2014 13:57
- Reputation: 54
- Staðsetning: Akureyri
- Staða: Ótengdur
Re: Nýr sími...halda mig í Galaxy eða prófa iPhone?
Jón Ragnar skrifaði:brynjarbergs skrifaði:Jón Ragnar skrifaði:Hauxon skrifaði: Dýrasti Xiaomi síminn kostar 80þ. vs ...250..300? fyrir iPhone. Ef vinnan borgar þá skiptir þetta auðvitað minna máli
Hvar finnur þú 300k iphone?
https://www.epli.is/iphone/iphone-11-pro-max-512-space.html
Þessi er ekkert langt frá 300k
Dýrasta týpan er ekki sambærilegt við ódýran kínasíma?
Færð iPhone 11 Pro á talsvert minna en þetta
Alveg kórrétt hjá þér! Xiaomi eru vaxandi í áliti hjá mér eftir að ég eignaðist nokkur tæki frá þeim.
Ég hef verið mjög fastur Samsung Note aðdáandi en myh gawd hvað nýju Xiaomi líta vel út!
-
- Vaktari
- Póstar: 2485
- Skráði sig: Lau 20. Maí 2006 22:05
- Reputation: 235
- Staðsetning: NGC 3314.
- Staða: Ótengdur
Re: Nýr sími...halda mig í Galaxy eða prófa iPhone?
Ég var í Android; var alltaf að fikta, skemma, laga, öppin að crash, bloatware, frjósa, og stöku lagg.
Skipti yfir í WIndows Phone; geggjaðar myndavélar og aldrei hik, lagg eða vesen. Hinsvegar app skortur.
Skipti yfir í iPhone; allir kostir Windows Phone plús besta app support. Byrjaði á notuðum 5s sem ég keypti á 20þús, líkaði svo vel að ég keypti nýjan iPhone 7 sem ég nota enn. Hef ekki litið við síðan.
Apps í iPhone virka alltaf súper vel. Til nokkrar greinar sem tala um að það sé meira incentive fyrir forrita að þróa apps fyrir iPhone þar sem að það sé meiri gróði í boði á þeim markaði (fólk líklegra til þess að eyða pening). Ég hef verslað eitt og annað app, enda kominn yfir nískuna að tíma ekki andvirði gosflösku í gæða app án auglýsinga.
Ég vil bara síma sem virkar mjög vel þar sem ég nota tækið mjög mikið (og Apple Pay er snilld), umtalsvert meira en far-/borðtölvuna, sé litið framhjá vinnunni. Er einmitt að íhuga að uppfæra í iPhone 11 ..

Main -> || Windows 11 || Ryzen 5600x || Asus ROG B550i || 32GB DDR4 3600 || RTX 3070 || CM 750W SFX || Lian Li TU-150 || 34" IPS 3440x1440 180Hz ||
NAS -> || Truenas Scale || i7 8700 || 64GB DDR4 2666 || 2x 12 TB ||
"It's a magical world, Hobbes, Ol' Buddy... let's go exploring!"
NAS -> || Truenas Scale || i7 8700 || 64GB DDR4 2666 || 2x 12 TB ||
"It's a magical world, Hobbes, Ol' Buddy... let's go exploring!"
-
- vélbúnaðarpervert
- Póstar: 985
- Skráði sig: Þri 15. Des 2015 01:27
- Reputation: 105
- Staðsetning: Höfuðborgarsvæðið
- Staða: Ótengdur
Re: Nýr sími...halda mig í Galaxy eða prófa iPhone?
Mér finnst persónulega iPhone vera alveg flottir símar en þeir eru alltof dýrir svo sé ég sjálfur enga ástæðu fyrir mig að færa yfir í iPhone frá Samsung Note seríuni
Ryzen 7 5800X | ASRock B550M Steel Legend | Corsair 32GB (2x16) LPX 3200Mhz | RTX 3060ti | Seasonic Focus+ Gold | ATX Lancool II
Re: Nýr sími...halda mig í Galaxy eða prófa iPhone?
Var persónlega alltaf í android(S4, S5, S6, S7.) og ákvað að prófa iphone eftir að hafa verið svona lengi í android og sé eiginlega ekki eftir því myndavélin frábær stýrikerfið er solid gestures geggjað þæginlegt faceid mjög þæginleg (enginn fingrafaraskanni en böggar mig ekki því faceid er frekar hratt) varðandi verð þá hafa símar almennt hækkað í verði bæði android og iphone símar.
Apple pay er æðislega þægilegt og allt apple ecosystemið sumt sem er smá böggandi en annars er það frekar solid.
Er með Iphone XS Max 256GB og það er meira en nóg og ef 128GB hefði verið valmöguleiki hefði ég örugglega tekið það.

I7-8700K|Corsair H-150i|Asus Maximus X Hero (Wifi) |32GB G.Skill Tridend Z RGB|GTX 1080ti |
Coolermaster Mastercase 5|
Coolermaster Mastercase 5|
-
- Ofur-Nörd
- Póstar: 248
- Skráði sig: Þri 12. Mar 2013 16:04
- Reputation: 18
- Staða: Ótengdur
Re: Nýr sími...halda mig í Galaxy eða prófa iPhone?
Fékk mér s10+ aldrei verið jafn svekktur með síma. Reyndar geggjuð myndavél á honum.
Var með iPhone áður (iphone 6 plus mjög ánægður með hann en gaf upp öndina).
Fékk að skipta símanum og fékk mér iPhone aftur.
Lexía: Maður endar alltaf aftur í iPhone, þeir bara virka og ekkert vesen!
Var með iPhone áður (iphone 6 plus mjög ánægður með hann en gaf upp öndina).
Fékk að skipta símanum og fékk mér iPhone aftur.
Lexía: Maður endar alltaf aftur í iPhone, þeir bara virka og ekkert vesen!
-
- /dev/null
- Póstar: 1421
- Skráði sig: Mið 01. Sep 2004 09:43
- Reputation: 33
- Staðsetning: 201
- Staða: Ótengdur
Re: Nýr sími...halda mig í Galaxy eða prófa iPhone?
hvað með þetta fræga rafhlöðuvesen i iphone? er ekki fljótt að dragast úr styrknum a þeim? munur á innan við ári?
GPU: AMD Radeon™ RX 7900 XT - GA z590 gaming X - Intel Core i7 11700k - Corsair Rm750x - Noctua-U12S - iCUE 465X RGB Mid-Tower- AORUS RGB Memory DDR4 16GB x4 3733MHz - Samsung 970 EVO 1TB M.2 2280 SSD - Win 10 Pro 64bit - ASUS ROG Swift Curved PG348Q @ 100mhz
Re: Nýr sími...halda mig í Galaxy eða prófa iPhone?
Aimar skrifaði:hvað með þetta fræga rafhlöðuvesen i iphone? er ekki fljótt að dragast úr styrknum a þeim? munur á innan við ári?
Þetta var eitt sem ég pældi mikið í áður en ég fékk mér iPhone en hef aldrei fundið fyrir eftir að ég fékk mér þannig. Mér fannst allir Android símar sem ég hef átt verða með augljóslega verri rafhlöðuendingu í þeirri notkun sem ég er í þrátt fyrir að vera með miklu stærri rafhlöðu í mAh. Hvað endinguna varðar þá hef ég aldrei átt síma nægilega lengi til þess að það hafi orðið vandamál en núna er ég með rúmlega eins árs iPhone XS Max og rafhlaðan í honum getur haldið 99% af upprunalegri rýmd samkvæmt Settings appinu.
Ef ég mun eiga þennan síma nægilega lengi til að rafhlaðan í honum sé orðin augljóslega léleg, geri ráð fyrir 2-3 árum, þá þykir mér heldur ekki mikið að borga 8.990kr fyrir að fá nýja OEM rafhlöðu frá viðurkenndum þjónustuaðila Apple: https://www.epli.is/thjonusta/verdlisti.html
Það er meira að segja dýrara að fá nýja Samsung rafhlöðu í flaggskip frá þeim frá viðurkenndum þjónustuaðila. Get ekki betur séð en að rafhlöðuútskipti á S8-S10 séu á bilinu 14-15 þúsund: https://samsungmobile.is/thjonusta/verd ... y-s10plus/
Löglegt WinRAR leyfi
Re: Nýr sími...halda mig í Galaxy eða prófa iPhone?
Aimar skrifaði:hvað með þetta fræga rafhlöðuvesen i iphone? er ekki fljótt að dragast úr styrknum a þeim? munur á innan við ári?
Minn sími er orðinn 18 mánaða gamall og maximum capacity er 85%.
Hef ekki enn fundið fyrir þessum mun þar sem ég nota símann tiltölulega lítið. Hef þó þurft að hlaða símann 1-2x á heavy use dögum.
Tölva, 2 skjáir, Alltof mörg lyklaborð, þráðlaus mús og næs heyrnatól
Re: Nýr sími...halda mig í Galaxy eða prófa iPhone?
Aimar skrifaði:hvað með þetta fræga rafhlöðuvesen i iphone? er ekki fljótt að dragast úr styrknum a þeim? munur á innan við ári?
Ég var með Iphone 6s+ sem rétt var orðinn 4 ára þegar að ég skipti yfir í Iphone 11. Batteríið var komið í 77-79% sem mér finnst alveg ásættanlegt miðað við daglega notkun í 4 ár. Ég hefði í raun getað látið gamla símann endast lengur með því að skipta um batterý en ég sé ekki eftir uppfærslunni í Iphone 11.
Helstu kostirnir við Apple finnst mér er að tækin tala saman, ég er ekki með tölvu en ég hef Ipad pro, Iphone og apple úrið og það er svaka þægilegt að allt “syncast” á milli. Allar ljósmyndir, glósur, forrit og gögn fara sjálfkrafa á milli.
Mér persónulega finnst Iphone 11 Pro vera of dýr miðað við muninn á 11 og 11 pro. Myndavélin er sú saman fyrir utan aðdráttarlinsuna, og batterýlíftíminn er svipaður, það er munur á skjánum en mér finnst uppfærslan frá 11 yfir í 11 pro ekki vera 50.000kr virði.
-
Höfundur - Stjórnandi
- Póstar: 5596
- Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
- Reputation: 1054
- Staða: Ótengdur
Re: Nýr sími...halda mig í Galaxy eða prófa iPhone?
Ákvað að fara í galaxy s10+. Er ekki í þessu Apple eco systemi, líkar vel við núverandi galaxy, og langar að hafa mic jack.
*-*
-
- </Snillingur>
- Póstar: 1085
- Skráði sig: Þri 25. Apr 2017 17:21
- Reputation: 91
- Staða: Ótengdur
Re: Nýr sími...halda mig í Galaxy eða prófa iPhone?
Er búið að langa skipta í iPhone í nokkur ár síðan ég prófaði einn hjá vinkonu minni fyrir tilviljun. Ég hef ekki prófað iPhone fyrr eða síðar, en tók strax eftir að hann var 100% mikið meira responsive. Alveg 0% lagg m.v. ég hef prófað marga Android of það hefur alltaf verið eitthvað lagg á mismunadi stigum, annað hvort 1% eða 0,01% svo ég komi þessu einhvernvegin í orð -- veit ekki hversu margar miliseconds (ms) og prósenturnar eru bull en allt lagg böggar mig! Ef einhver gamall iPhone sem hún fékk gefins er meira responsive heldur en glænýr Samsung Note 8 á sínum tíma, þá er ég að fara fá mér iPhone þegar ég endurnýja (er einhver að selja?).
Re: Nýr sími...halda mig í Galaxy eða prófa iPhone?
Einn stærsti gallinn við Iphone að mínu mati er þessi árátta hjá þeim að vera með allt proprietary , hleðslusnúra öðruvísi en allir aðrir er alveg mega bögg , síðan þetta one button dæmi er eitthvað sem er rosalega erfitt að venjast, vill hafa back takkann td alltaf á sama stað en ekki þurfa leita að honum eftir í hvaða appi maður er í
-
- spjallið.is
- Póstar: 419
- Skráði sig: Lau 02. Nóv 2019 02:27
- Reputation: 44
- Staðsetning: 815
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Nýr sími...halda mig í Galaxy eða prófa iPhone?
Oneplus 7T Pro. Ódyr, geggjuð features eins og putta skanni undir skjá, geðveikur skjár og flottur