[Komið]Brotið gler á Asus spjaldi, hvert á að snúa sér?


Höfundur
Vaski
spjallið.is
Póstar: 405
Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 15:11
Reputation: 12
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

[Komið]Brotið gler á Asus spjaldi, hvert á að snúa sér?

Pósturaf Vaski » Mið 13. Ágú 2014 15:59


Krakkanum tókst að brjóta glerið (vonandi bara það) á ASUS Transformer Pad TF300TG spjaldinu. Og þegar ég hringdi í tryggingarfélagði sagði það mér að fara með hana og láta meta hvað það kosti að gera við hana / eða hvort að hún sé ónýt. En þar sem spjaldið er keypt erlendis að þá veit ég ekki hvert ég að á fara með hana :uhh1 Er einhver umboðsaðili hér á landi fyrir ASUS sem maður á að snúa sér til? Veit af unlock.is, en fer til þeirra ef að það er hægt að gera við þetta, en veit ekki hvort að þeir séu teknir trúanlegir af tryggingarfélaginu ef þeir dæma hana ónýta. Einhver sem veit hvernig á að snúa sér í svona málum?
Síðast breytt af Vaski á Mið 13. Ágú 2014 20:40, breytt samtals 1 sinni.



Skjámynd

svensven
spjallið.is
Póstar: 453
Skráði sig: Þri 16. Mar 2010 16:10
Reputation: 7
Staða: Ótengdur

Re: Brotið gler á Asus spjaldi, hvert á að snúa sér?

Pósturaf svensven » Mið 13. Ágú 2014 16:05

Er það ekki tryggingarfélagið sem á að segja til varðandi hvaða verkstæði þau taka góð og gild ? :-k




Höfundur
Vaski
spjallið.is
Póstar: 405
Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 15:11
Reputation: 12
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Brotið gler á Asus spjaldi, hvert á að snúa sér?

Pósturaf Vaski » Mið 13. Ágú 2014 16:11

Það sagði mér að fara þangað sem ég keypti vélina.



Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6799
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 940
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Brotið gler á Asus spjaldi, hvert á að snúa sér?

Pósturaf Viktor » Mið 13. Ágú 2014 16:14

Smá gúggl segir Tölvulistinn

https://www.google.is/search?q=asus+umboð


I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB

Skjámynd

kizi86
Vaktari
Póstar: 2227
Skráði sig: Lau 26. Sep 2009 18:08
Reputation: 170
Staða: Ótengdur

Re: Brotið gler á Asus spjaldi, hvert á að snúa sér?

Pósturaf kizi86 » Mið 13. Ágú 2014 17:39

Vaski skrifaði:Það sagði mér að fara þangað sem ég keypti vélina.

af hverju tókstu þá ekki fram að varan var keypt erlendis?


ASRock B650E PG-ITX WiFi AMD Ryzen 9 7950X PowerColor "Red Devil" RX 7900 XTX 24GB G.Skill Trident Z5 RGB 32GB (2 x 16GB) DDR5-6000 stýrikerfi: wd black sn850x 2TB WD RED 4TB WD RED 4TB 65" LG B8 OLED TV


Höfundur
Vaski
spjallið.is
Póstar: 405
Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 15:11
Reputation: 12
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Brotið gler á Asus spjaldi, hvert á að snúa sér?

Pósturaf Vaski » Mið 13. Ágú 2014 19:08

var bent á tölvtek þegar ég tók það fram, en sagt að það ætti þó meira við um tölvuvörur, en ekki spjaldtölvur.



Skjámynd

KermitTheFrog
Kóngur
Póstar: 4273
Skráði sig: Mán 07. Júl 2008 23:32
Reputation: 67
Staða: Ótengdur

Re: Brotið gler á Asus spjaldi, hvert á að snúa sér?

Pósturaf KermitTheFrog » Mið 13. Ágú 2014 19:35

Þú getur komið með spjaldtölvuna í tjónamat hjá okkur í Tölvutek.




Höfundur
Vaski
spjallið.is
Póstar: 405
Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 15:11
Reputation: 12
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Brotið gler á Asus spjaldi, hvert á að snúa sér?

Pósturaf Vaski » Mið 13. Ágú 2014 20:39

vissi að vaktin skilaði svari :)
kíki einhverja næstu daga.
takk takk