iPad í skólann ?

Skjámynd

Höfundur
aggibeip
Ofur-Nörd
Póstar: 237
Skráði sig: Sun 23. Maí 2010 23:10
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

iPad í skólann ?

Pósturaf aggibeip » Þri 28. Jan 2014 15:15

Góðan dag.
Ég á iPad mini 16gb sem mig langar til þess að nota í skólann. Notkunin felur í sér að glósa og svara verkefnum.
Eru einhverjir hér sem nota iPad mini í svona ?
Ef svo er þá langar mig að spyrja nokkrar spurningar:

1. Er hægt að fá Office pakkann í iPad mini ?

    -* Ef ekki, hvaða forriti mælirðu þá með til að taka glósur ?
    -* Hvernig er að vinna með glósur og verkefni í því forriti sem þú notar ?
    -* Er forritið þannig að það geti opnað Office skjöl og unnið með þau án þess að þau verði afskræmd þegar ég opna þau í Office?
2. Ertu með eitthvað lyklaborð tengt við ?

    -* Hvernig lyklaborð? Innbygt í hulstrið sem iPadinn er í eða full size bluetooth mac lyklaborð ?
    -* Ef innbygt lyklaborð í hulstri, hvernig er að skrifa á það ? Hvernig er plássið ?

3. Ef ekkert lyklaborð, ertu þá með hraðritunar app ?

    -* Ef svo er, hvaða app ?

Aukaspurning:
Er ekki á nokkurn hátt hægt að láta iPadinn hlaðast á meðan maður er að nota hann ?



Skjámynd

upg8
vélbúnaðarpervert
Póstar: 998
Skráði sig: Fim 18. Ágú 2011 21:32
Reputation: 41
Staða: Ótengdur

Re: iPad í skólann ?

Pósturaf upg8 » Þri 28. Jan 2014 15:39

Hljómar eins og þú hefðir verið betur settur með Surface, algjörlega hannað fyrir þær aðstæður sem þú ert að lýsa.

Ef þú ert með nettengingu þá getur þú notað Office á netinu í gegnum Skydrive, þú getur sótt Office 365 apps fyrir iPad ef þú ert með áskrift að þeirri þjónustu en það býður ekki uppá eins mikla eiginleika. Þú gætir fundið aðrar þjónustur en þær gætu afskræmt skjölin eitthvað aðeins en það væri aldrei svo slæmt að það væri ekki nothæft.

Þú getur notað One Note eða Evernote fyrir iPad til þess að taka glósur.


Kóði: Velja allt

"There's an adapter for that"

Skjámynd

Farcry
spjallið.is
Póstar: 406
Skráði sig: Mið 18. Apr 2012 16:38
Reputation: 10
Staða: Ótengdur

Re: iPad í skólann ?

Pósturaf Farcry » Þri 28. Jan 2014 16:43




Skjámynd

norex94
Ofur-Nörd
Póstar: 215
Skráði sig: Lau 25. Ágú 2012 14:54
Reputation: 9
Staða: Ótengdur

Re: iPad í skólann ?

Pósturaf norex94 » Þri 28. Jan 2014 20:32

Mæli með Notes Plus, nota penna við það og það virkar ótrúlega vel. :happy



Skjámynd

GunZi
Ofur-Nörd
Póstar: 221
Skráði sig: Sun 29. Sep 2013 13:58
Reputation: 22
Staðsetning: Reykjanesbær
Staða: Ótengdur

Re: iPad í skólann ?

Pósturaf GunZi » Þri 28. Jan 2014 22:32

Stærri iPadinn virkar betur í svona, notaði einn sjálfur í rúmt ár og það gekk vel. Ekkert office, en flest allt styður office, þ.e. getur opnað glósurnar þínar í office. Notaði bara Evernote til að skrifa niður glósur og ef þurfti skelti ég bara textanum í word heima í borðtölvunni til að lagfæra eitthvað sem ég átti að skila. Mæli líka með einhverjum stylus ef þú ert að teikna eða gera útreikninga í stærðfræði greinum Notability er mjög flott í það getur einnig notað það til að skrifa venjulega o.fl., getur látt öll skjölin save'ast á Google Drive.
Í sambandi með lyklaborð þá veit ég ekki, ég var með stóran iPad og innbyggða lyklaborðið virkaði fínt fyrir mig, þarf aðeins að venjast því að skrifa á það. Mæli með að fá þér utanáliggjandi lyklaborð fyrir svona litla tölvu. Væri ekki bara fínt að fá hulstur með lyklaborði, svo þú sér ekki að burðast með 2 sitthvora hlutina?

flott ef þú gætir reddað þér svonahttp://store.apple.com/us/product/HB731VC/A/logitech-ultrathin-keyboard-cover-mini-for-ipad-mini :8)


ps. gætir líka kíkt á apple appin eins og Pages og Numbers o.fl. en mér finnst þau samt handónýt hehe.


Örgjövi: Ryzen 5800x3D Minni: 32GB 3600MHz DDR4 GPU: AMD Radeon RX 7800 XT SSDs: 1TB (Evo 870) og 250GB (Evo 840) Móðurborð: B450 I Aorus Pro Wifi PSU: 760W skjáir: Samsung Odyssey Neo G9 49" 240Hz