Verðmunur á fartölvum á Ísl. og í USA

Skjámynd

Höfundur
Sera
Ofur-Nörd
Póstar: 254
Skráði sig: Lau 04. Okt 2003 19:14
Reputation: 13
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Verðmunur á fartölvum á Ísl. og í USA

Pósturaf Sera » Lau 13. Júl 2013 21:30

Ég átta mig ekki alveg á þessum gríðarlega verðmun á fartölvum. Ég var að koma frá USA og keypti þar ASUS Vivobook 14" skjár, nákvæmlega eins og þessi http://tolvutek.is/vara/asus-vivobook-s ... -silfurlit

Á Íslandi kostar hún 169.900 kr. en í búðinni þar sem ég keypti hana, Microsoft store kostar hún $639 með tax sem gerir 81.153 kr. samkvæmt visa yfirlitinu. Ég get því keypt 2 í USA fyrir verð á 1 stk. á Íslandi. Ég þurfti ekki að borga af henni þar sem nú má koma með einn hlut sem kostar 88 þús. inn til landsins.

Ég fæ auðvitað ekki 2 ára ábyrgðina sem við fáum á Íslandi en hún kemur með 1 árs alþjóðlegri ábyrgð.


*B.I.N. = Bilun í notanda*


Gislinn
FanBoy
Póstar: 769
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 01:07
Reputation: 50
Staða: Ótengdur

Re: Verðmunur á fartölvum á Ísl. og í USA

Pósturaf Gislinn » Lau 13. Júl 2013 21:48

Sera skrifaði:Ég þurfti ekki að borga af henni þar sem nú má koma með einn hlut sem kostar 88 þús. inn til landsins.


Þar kemur a.m.k. 21.000 kr af verðinu.

Sera skrifaði:Ég fæ auðvitað ekki 2 ára ábyrgðina sem við fáum á Íslandi en hún kemur með 1 árs alþjóðlegri ábyrgð.


Það og þú þurftir ekki að borga sendingarkostnað (ef þú tekur flugið með sem sendingarkostnað þá borgar þetta sig eflaust ekki). Þú þarft ekki að borga leigu á plássi undir búð eða laun starfsmanna í búðinni. Frekar fljótt að telja þegar allt er tekið inn í verðið.


common sense is not so common.


DabbiGj
Gúrú
Póstar: 529
Skráði sig: Mið 10. Mar 2010 16:11
Reputation: 43
Staða: Ótengdur

Re: Verðmunur á fartölvum á Ísl. og í USA

Pósturaf DabbiGj » Lau 13. Júl 2013 22:02

þetta er gamalt verð hjá tölvutek og er líka sérpöntun ekki eitthvað sem að þeir versla beint á bretti einsog aðrar fartölvur þar að auki eru flestar fartölvur hér á landi verslaðar frá evrópu sem er annað markaðssvæði og hærri verð sem að fylgja því



Skjámynd

Höfundur
Sera
Ofur-Nörd
Póstar: 254
Skráði sig: Lau 04. Okt 2003 19:14
Reputation: 13
Staðsetning: Hafnarfjörður
Staða: Ótengdur

Re: Verðmunur á fartölvum á Ísl. og í USA

Pósturaf Sera » Lau 13. Júl 2013 22:28

Gislinn skrifaði:
Sera skrifaði:Ég þurfti ekki að borga af henni þar sem nú má koma með einn hlut sem kostar 88 þús. inn til landsins.


Þar kemur a.m.k. 21.000 kr af verðinu.

Sera skrifaði:Ég fæ auðvitað ekki 2 ára ábyrgðina sem við fáum á Íslandi en hún kemur með 1 árs alþjóðlegri ábyrgð.


Það og þú þurftir ekki að borga sendingarkostnað (ef þú tekur flugið með sem sendingarkostnað þá borgar þetta sig eflaust ekki). Þú þarft ekki að borga leigu á plássi undir búð eða laun starfsmanna í búðinni. Frekar fljótt að telja þegar allt er tekið inn í verðið.


Þó að ég hefði pantað hana á netinu og látið senda mér heim þá efast ég stórlega um að ég hefði náð upp í 169 þúsund.

Ég veit að Ísland er lítið markaðssvæði, en þeir í búðinni í USA þurfa líka að fá hana senda frá Asíu og halda úti búð og starfsmönnum. Svo það er ekkert öðruvísi en á Íslandi.


*B.I.N. = Bilun í notanda*


Gislinn
FanBoy
Póstar: 769
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 01:07
Reputation: 50
Staða: Ótengdur

Re: Verðmunur á fartölvum á Ísl. og í USA

Pósturaf Gislinn » Lau 13. Júl 2013 22:54

Sera skrifaði:Þó að ég hefði pantað hana á netinu og látið senda mér heim þá efast ég stórlega um að ég hefði náð upp í 169 þúsund.

Ég veit að Ísland er lítið markaðssvæði, en þeir í búðinni í USA þurfa líka að fá hana senda frá Asíu og halda úti búð og starfsmönnum. Svo það er ekkert öðruvísi en á Íslandi.


Ósammála um að það sé ekkert öðruvísi, líklegast meira magn sem fer í gegnum búðir á borð við Microsoft Store sem geta þá pantað þetta inn í meira magni sem þýðir lægra verð per tölvu.

Annars, ef við tökum aðra tölvu, sem er ekki sérpöntun, t.d. þessa. Hún kostar um 465 USB á Newegg, gerum ráð fyrir að sendingarkostnaðurinn sé 60 USD þá er verðið frá USA um 115 þúsund kr með vsk.

Líklegast er rétt, sem DabbiGj bendir á, að þetta sé gamalt verð þar sem þetta er sérpöntun.


common sense is not so common.


AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6354
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 161
Staða: Ótengdur

Re: Verðmunur á fartölvum á Ísl. og í USA

Pósturaf AntiTrust » Lau 13. Júl 2013 22:59

Langmesti munurinn, og oftast sá sem minnst er hægt að afsaka eru verðin á Lenovo/Dell/HP enterprise línunum. Bara til þess eins að geta slegið nógu mikið af 'listaverð' til stórra kúnna.

Ég er búinn að kaupa 3 síðustu ThinkPads frá USA og í öll skipti 50-60% ódýrari en hér heima. Óafsakanlegt.