Kostnaður við að kaupa spjaldtölvu frá BNA

Skjámynd

Olafst
Ofur-Nörd
Póstar: 285
Skráði sig: Mán 15. Mar 2010 12:29
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Kostnaður við að kaupa spjaldtölvu frá BNA

Pósturaf Olafst » Mán 12. Des 2011 00:24

hannesstef skrifaði:Hefurðu semsagt aldrei heyrt um iPoda að hætta að virka mjög stuttu eftir að ábyrgðin rennur út? Allavega hafa 3 hjá mér gert það og nokkrir félagar mínar lent í því líka, þetta voru samt allt eldri iPodar.

Hefurðu líka aldrei heyrt talað um svona staðbundna framleiðslugalla? Þetta var til dæmis gert við Rover í Bretlandi skilst mér og fleiri gerðir og þess vegna hættu þeir að vera vinsælir. Það var verið að reyna að fjölga störfum á viðgerðasvæðum.

Auðvitað heyrir maður allskonar sögusagnir og samsæriskenningar. Það er svo annað mál hvort maður kýs að trúa þeim eða ekki :)
Við erum sennilega bara í sitthvorum hópnum hvað það varðar.

Eitt dæmi um gallaða framleiðslulínu af ipod gefur varla tilefni til að hrópa "samsæri, svik og prettir"?
Það er mjög ólíklegt að um ásetning sé að ræða til þess eins að hrella viðskiptavini sína. Það er það sem ég er að meina.
Framleiðsla getur alltaf klikkað, en að meina að um sé að ræða forritun af ásetningi finnst mér heldur sterkt tekið til orða.
Mín skoðun. Þér er velkomið að vera ósammála.




Höfundur
capteinninn
Of mikill frítími
Póstar: 1725
Skráði sig: Sun 12. Sep 2004 16:02
Reputation: 20
Staða: Ótengdur

Re: Kostnaður við að kaupa spjaldtölvu frá BNA

Pósturaf capteinninn » Mán 12. Des 2011 00:38

Olafst skrifaði:
hannesstef skrifaði:Hefurðu semsagt aldrei heyrt um iPoda að hætta að virka mjög stuttu eftir að ábyrgðin rennur út? Allavega hafa 3 hjá mér gert það og nokkrir félagar mínar lent í því líka, þetta voru samt allt eldri iPodar.

Hefurðu líka aldrei heyrt talað um svona staðbundna framleiðslugalla? Þetta var til dæmis gert við Rover í Bretlandi skilst mér og fleiri gerðir og þess vegna hættu þeir að vera vinsælir. Það var verið að reyna að fjölga störfum á viðgerðasvæðum.

Auðvitað heyrir maður allskonar sögusagnir og samsæriskenningar. Það er svo annað mál hvort maður kýs að trúa þeim eða ekki :)
Við erum sennilega bara í sitthvorum hópnum hvað það varðar.

Eitt dæmi um gallaða framleiðslulínu af ipod gefur varla tilefni til að hrópa "samsæri, svik og prettir"?
Það er mjög ólíklegt að um ásetning sé að ræða til þess eins að hrella viðskiptavini sína. Það er það sem ég er að meina.
Framleiðsla getur alltaf klikkað, en að meina að um sé að ræða forritun af ásetningi finnst mér heldur sterkt tekið til orða.
Mín skoðun. Þér er velkomið að vera ósammála.


Mér finnst það ekkert alltof fráleitt að framleiðandi gífurlega vinsællar vöru vilji að hún sé keypt oftar en einu sinni. Ég átti iPod Photo (4th gen) og svo 5th gen og þeir gerðu allir það sama.
Apple er alltaf að uppfæra vörurnar sínar með nýjustu hlutunum, með því að láta þær bila þegar það er búið að koma fram ný útgáfa finnst þér ekki jafn slæmt að fá þér nýjustu útgáfuna og ert hugsanlega bara ánægður að geta fengið alla þessa nýju uppfærslur.

Ég trúi því alveg að þetta sé í flestum vörum en ég er ekkert að forða mér frá því að kaupa t.d. Apple. Þetta er bara viðskiptastrategía og mér finnst betra að ég viti af henni heldur en ekki.