Vantar álit á fartölvu


Höfundur
coldi
Nýliði
Póstar: 2
Skráði sig: Mán 05. Júl 2010 16:10
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Vantar álit á fartölvu

Pósturaf coldi » Mán 05. Júl 2010 16:22

Er að leita að fartölvu fyrir net og skóla/ritvinnslu. Líka til þess að horfa á video, þessi er með HDMi svo ég get tengt hana við sjónvarpið. Ætti hún ekki að ráða við HD playback?

http://www.att.is/product_info.php?prod ... bae38b81ee

Haldiði að hún sé góð? Miðað við verð?
Síðast breytt af GuðjónR á Mán 05. Júl 2010 20:35, breytt samtals 1 sinni.
Ástæða: Lýsandi titla takk.



Skjámynd

FuriousJoe
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1623
Skráði sig: Mið 24. Mar 2010 20:34
Reputation: 20
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: álit

Pósturaf FuriousJoe » Mán 05. Júl 2010 16:25

Fínasta vél

http://www.tolvutek.is/product_info.php ... s_id=21858

Ert að fá stærri HDD þarna fyrir auka 2þús kall :)


Lenovo Legion Y540 - intel Core i7 9750H HexaCore @3.6Ghz - 16GB DDR4 - Nvidia RTX 2060 - 512MB M.2 + 2TB HDD


Höfundur
coldi
Nýliði
Póstar: 2
Skráði sig: Mán 05. Júl 2010 16:10
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: álit

Pósturaf coldi » Mán 05. Júl 2010 16:28

Maini skrifaði:Fínasta vél

http://www.tolvutek.is/product_info.php ... s_id=21858

Ert að fá stærri HDD þarna fyrir auka 2þús kall :)


Takk kærlega fyrir að benda á þessa.



Skjámynd

FuriousJoe
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1623
Skráði sig: Mið 24. Mar 2010 20:34
Reputation: 20
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: álit

Pósturaf FuriousJoe » Mán 05. Júl 2010 16:32

coldi skrifaði:
Maini skrifaði:Fínasta vél

http://www.tolvutek.is/product_info.php ... s_id=21858

Ert að fá stærri HDD þarna fyrir auka 2þús kall :)


Takk kærlega fyrir að benda á þessa.



Ekki málið.


Lenovo Legion Y540 - intel Core i7 9750H HexaCore @3.6Ghz - 16GB DDR4 - Nvidia RTX 2060 - 512MB M.2 + 2TB HDD

Skjámynd

Glazier
BMW
Póstar: 2511
Skráði sig: Fös 30. Jan 2009 22:20
Reputation: 14
Staðsetning: Mosó
Staða: Ótengdur

Re: álit

Pósturaf Glazier » Mán 05. Júl 2010 16:40

Bara svo þú verðir kannski ekki fyrir vonbrigðum þá er ekkert geisladrif í vélinni ;)


Tölvan mín er ekki lengur töff.

Skjámynd

FuriousJoe
Vaktin er ávanabindandi
Póstar: 1623
Skráði sig: Mið 24. Mar 2010 20:34
Reputation: 20
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: álit

Pósturaf FuriousJoe » Mán 05. Júl 2010 16:46

Glazier skrifaði:Bara svo þú verðir kannski ekki fyrir vonbrigðum þá er ekkert geisladrif í vélinni ;)



Rétt að benda á það, það er ekkert geisladrif í þessum vélum og er ekki í flest öllum ef ekki öllum fisvélum. (þ.e.a.s þarft að fara í 15" vél ef þú vilt DVD drif, eða kaupa USB drif) :)


Lenovo Legion Y540 - intel Core i7 9750H HexaCore @3.6Ghz - 16GB DDR4 - Nvidia RTX 2060 - 512MB M.2 + 2TB HDD

Skjámynd

einarhr
Vaktari
Póstar: 2011
Skráði sig: Þri 27. Maí 2008 10:12
Reputation: 276
Staðsetning: 110 Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: álit

Pósturaf einarhr » Mán 05. Júl 2010 16:48

Reglur spjallsins

Innleggfrá gumol Fim 30. Des 2004 21:29
Þessar reglur eru til að gera spjallið okkar betra og þægilegra í notkun. Ef allir reyna að fara eftir
þeim verður spjallið mun betri staður til að fræðast og spjalla um tölvur og allt þeim tengt.


1. gr.

Taktu þér tíma og vandaðu uppsetningu, stafsetningu og frágang bréfa.
Bréf sem eru illa gerð verður breytt eða þeim læst/eytt.


2. gr.

Það á að nota lýsandi titla á nýjum bréfum

dæmi: Titillinn á ekki að vera "Hjálp!" eða "Hvort?" heldur frekar
"Vantar hjálp með fps drop í CS" eða "P4 3.0 GHz eða AMD64 3000+?".


3. gr.

Ekki senda inn sama bréfið á tvo eða fleiri mismunandi flokka
Ef þú ert ekki viss um hvar bréfið þitt á heima settu það þá þar sem þér finnst
líklegast að það eigi að vera. Stjórnendur munu svo færa það á réttan stað ef það þarf.


4. gr.

Ekki senda inn óþarfa bréf
Ekki senda inn bréf nema þú hafir eitthvað að segja eða spyrja um. Ekki senda inn
2 bréf í röð á sama þráðinn, þú getur notað breyta takkan til að bæta við eldri bréf.


5. gr.

Breyta takkinn er til að breyta bréfum, ekki til að eyða þeim.
Ef hann væri til að eyða þeim þá myndi hann ekki heita breyta takki. Það er ekki
vel séð að það sé verið að breyta meginmáli bréfs eftir að búið er að svara þeim.


6. gr.

Ekki koma með fullyrðingar ef þú ert ekki viss um það sem þú ert að segja
Segðu t.d."ég held að ef að þú breytir MBR þá breytist partion table ekki" frekar heldur en
"ef að þú breytir MBR breytist partion table ekki" nema þú sért fullkomlega viss.


7. gr.

Undirskriftin má ekki vera meira en tvær línur. Hún má ekki innihalda myndir og má ekki vera of áberandi.
Stjórnendur dæma um hvað er of áberandi og geta eytt henni alveg út ef þeir vilja.


8. gr.

Þú mátt aðeins hafa eitt notandanafn að þessu spjallborði.
Athugið að ekkert mál er fyrir okkur að sjá hverjir eru með tvo eða fleiri notendur.


9. gr.

Notendum ber að fara eftir lögum þegar þeir skrifa bréf.
Þetta er gert til að tryggja langlífi vaktarinnar. Þessi regla er ekki bara
formsatriði eins og sumstaðar, henni er fylgt eftir eins og öðrum reglum.


10. gr

Allt ósiðlegt eða ósæmilegt efni er stranglega bannað.
dæmi: rasismi, klám af hvaða toga sem er o.s.frv.


11. gr.

Menn sem eiga hagsmuna að gæta í umræðum sem þeir taka þátt í skulu taka það fram.
dæmi: Starfsmenn tölvu-, síma- eða annara fyrirtækja sem tengjast því sem spjallað er um.


12. gr

Notendur sem brjóta rеglurnar verða áminntir. Notendur sem brjóta rеglurnar alvarlega eða ítrekað verða bannaðir.

13. gr.

Reglum þessum ber að fylgja nema stjórnandi segi annað
Ef stjórnandi segir eitthvað á að fara eftir því óháð þessum reglunum.

14. gr.

Óheimilt er að biðja um eða óska eftir boðslyklum á Istorrent og aðrar Bittorrent síður nema hér.
Brot á þessari reglu leiðir til IP banns á spjallinu!

15. gr.

Eitt "bump" á 24. klst. fresti er leyfilegt.
Ekki færa þráð ofar með bumpi oftar en einu sinni á sólarhring nema þú sért að svara fyrirspurn.
Verði þessi regla brotin geta umræðustjórar læst eða eytt þræði án aðvörunar.


Reglurnar eru ekki tæmandi, þótt eitthvað sé ekki bannað þá þarf ekki endilega að vera að það sé í lagi, notið skynsemina.


| Ryzen 7 5800X 32GB |RTX 3070Ti| Server i7 6700K 16GB |

Skjámynd

Jimmy
FanBoy
Póstar: 720
Skráði sig: Fös 29. Jan 2010 21:50
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Re: álit

Pósturaf Jimmy » Mán 05. Júl 2010 19:55

Ég mæli með því að þú prófir touchpadið vel á þessari vél áður en þú kaupir hana.


~