Síða 1 af 1
óvenju lítið pláss
Sent: Fim 09. Feb 2006 15:11
af mjamja
góðan dag,
ég var ekki alveg viss um hvort þetta átti að fara hingað eða í Harða diska flokkinn.
En vandamálið er allavegana það að ég er að ég er með 10 gb partion sem ég nota undir stýrikerfið og ég tók eftir því núna áðan að það eru aðeins 2.5 gb laus á því partion sem mér fannst furðulegt því ég man eftir að hafa séð 4.5 gb laus núna fyrir stuttu. Þ.a. ég valdi alla fælana á partioninu og tékkaði hvað þeir tækju mikið pláss, samtals taka þeir um 5.5 gb þannig að af einhverjum ótrúlegum ástæðum hafa 2 gb horfið af þessu partioni, veit einhver af hverju og hvernig er hægt að fá þau tilbaka?
Sent: Fim 09. Feb 2006 15:33
af gnarr
með system restore í gangi? Búinn að athuga recycle bin ?
Sent: Fim 09. Feb 2006 17:35
af mjamja
ég er ekki með system restore i gangi og það er ekkert í ruslatunnunni
Sent: Fim 09. Feb 2006 17:48
af gnarr
hibernate eða pagefile?
Sent: Fim 09. Feb 2006 17:55
af mjamja
neibb, eitt enn ég ætlaði að tala við hugver um gallaða kassaviftu og þá spurði gaurinn mig hvort ég hefði keypt samsegga tölvu frá þeim og ég samði já, þá fór hann að tuða um að þar sem ég hefði rifið innsiglið (þetta heimskilega dót sem þeir setja á til að koma í veg fyrir að maður getir opnað tölvuna) þá hefði allt innvolsið dottið úr ábyrgð. Er ekki 2 ára neytendaábyrgð á öllum raftækjum sem maður kaupir?
Sent: Fim 09. Feb 2006 18:12
af gnarr
jú. Ég er næstum 100% viss um að þeir geti ekki gert þetta samkvæmt lögum.
Sent: Fim 09. Feb 2006 22:36
af arnarj
notaðu forritið Treesize, það segir þér nákvæmlega hvað er að taka pláss hjá þér og hvar það er á disknum.
Omg, bera þeir fyrir sér rofnu innsigli að skitin kassavifta sé að klikka. Maður hefur heyrt af skítakompaníum sem reyna að nota þessa afsökun til að spara krónur og aura en þetta slær nú flestöllu við. Þetta er spurning um þúsundkall eða 2.
Það er grundvallaratriði í tölvukaupum að kaupa ekki frá fyrirtæki sem setur innsigli á vélarnar
Sent: Fim 09. Feb 2006 23:29
af xpider
Það hafa margir kvartað yfir lélegum viftum í tölvum frá þeim og þeir vita vel af því þetta er lélegar viftur.
Sent: Fös 10. Feb 2006 00:44
af gumol
Það er tveggja ára ábyrgð á þessu nema þú hafir samið um annað við seljandan þegar þú keyptir vélina. (Skilmálar aftaná nótu er ekki það sama og samningur)
Sent: Lau 11. Feb 2006 14:50
af mjamja
gumol skrifaði:Það er tveggja ára ábyrgð á þessu nema þú hafir samið um annað við seljandan þegar þú keyptir vélina. (Skilmálar aftaná nótu er ekki það sama og samningur)
ok takk kærlega fyrir þetta, hann var einmitt að tuða um e-ð sem átti að hafa staðið á nótunni
Sent: Lau 11. Feb 2006 15:10
af Veit Ekki
mjamja skrifaði:gumol skrifaði:Það er tveggja ára ábyrgð á þessu nema þú hafir samið um annað við seljandan þegar þú keyptir vélina. (Skilmálar aftaná nótu er ekki það sama og samningur)
ok takk kærlega fyrir þetta, hann var einmitt að tuða um e-ð sem átti að hafa staðið á nótunni
Alltaf gott að hafa símanúmer og upplýsingar um Neytendasamtökin við hendina.
Neytendasamtökin | Síðumúla 13 | 108 Reykjavík | sími 545 1200 | fax 545 1212 | netfang:
ns@ns.is | Opið virka daga kl. 9-16.
Sent: Lau 11. Feb 2006 17:14
af Rusty
Viss um að þetta sé ekki pagefile? Eða ertu kannski með forrit á borð við Photoshop opin? Man að ég gat ekki hlaðað inn myndum sem ég hafði lengi unnið við vegna skorts á plássi á C: drifinu (sem ég nota aðeins fyrir system og docs/settings). Þegar ég lokaði Photoshop þá tæmdist diskurinn alltaf um 1.5gb.
Sent: Lau 11. Feb 2006 20:03
af Stutturdreki
Getur líka verið Temporary Internet files og svo safnast oft ótrúlegt magn af drasli í Application Data folderinn. Líka í My Recived Files ef þú ert mikið að fá sendar skrár í gegnum IM forrit eða álíka.
Keyrðu "
Start"->"
All Programs"->"
Accessories"->"
System"->"
Disk Cleanup". Opnaðu IE og farðu í "
Tools"->"
Internet Options" og á "
General" flipanum ýttu á "
Delete Fiiles...".
Ef þú ert með Firefox eða aðra browsera gerðu það sama í þeim. "
Tools"->"
Options.."->"
Privacy"->"
Cache" og "
Clear Cache Now" í Firefox.
Náðu svo í
Treesize eins og einhver var búinn að benda á. Keyrir það á partitionið og færð upplýsingar um stærð á öllum folderum á drifinu. Fljótasta og besta leiðin til að finna hvar drasl safnast upp.
Sent: Lau 11. Feb 2006 20:19
af beatmaster
Gott er að nota
Crap Cleaner til hreinsunar á óþarfa drasli
Snilldar forrit, beint download
hér
Sent: Lau 11. Feb 2006 20:41
af mjamja
það er nefnilega ekkert óþarfadót inná þessum disk, en núna allt í einnu jókst plássið upp í 3.6 gb þannig að þetta er að lagast.......
..... vonandi
Sent: Lau 11. Feb 2006 21:31
af GuðjónR
10GB er of lítið fyrir system disk.
Sent: Lau 11. Feb 2006 22:46
af ICM
Skoðaðu Windows möppuna, gífurlega mikið af temp skrám sem safnast þar fyrir og oft halda forritarar að fólk noti Windows möppuna sem geymslu. T.d. ef þú sækir Americas Army af netinu og keyrir setup þá afritar það allar setup skrárnar (um 800 MB) og geymir þar þó setup hafi klárast.
Sent: Lau 11. Feb 2006 23:47
af mjamja
GuðjónR skrifaði:10GB er of lítið fyrir system disk.
er það? það var nebblega e-ð tölvugúru sem sagði mér að það væri alveg nóg:S hvað er hæfilegt fyrir system disk?
ICM hvernig veit ég hverju má eyða og hverju ekki?
Sent: Sun 12. Feb 2006 01:57
af gumol
Það er nú alveg hægt að sleppa með það.
Sent: Sun 12. Feb 2006 02:13
af gnarr
ég er nú oftast með windows á 3-4GB partition..
Sent: Sun 12. Feb 2006 12:12
af Rusty
Ég er með 8gb partion, ásamt documents and settings (að my documents utantöldu)