Síða 1 af 1

msn vandræði á Vista 5270 Beta2

Sent: Mið 08. Feb 2006 05:48
af beatmaster
ok skrifarinn hjá mér í einhverju fokki þannig að í fyrrinótt ákvað ég að prufa bara að smella ISO file-inum mínum í Daemon Tools 4 og prufa hvernig það kæmi út að install-a Vista 5270 bara með honum og það er hægt, rétt sá bara pínu í dag áður en ég þurfti að hlaupa út og mín fyrstu viðbrögð voru oj, en eitt Apple rip-off hjá Microsoft (þeir byrjuðu ekki með "gluggana") og þetta minnti mig bara á screen shots sem ég hef séð af OS-X.

Það tók mig bara 5 mínútur eftir vinnu til að vera slefandi yfir tölvunni minni og Vista er bara GEÐVEIKT svalt stýrikerfi og ég tek ofan fyrir rip-offinu (eins og ég hef alltaf sagt um apple vs windows, þetta er ekki stuldur heldur fullkomnun) ;)

Hins vegar get ég ekki séð webcam á msn sem er mjög mikilvægt fyrir mig upp á krakkana mína sem búa í 400 km. fjarlægð þannig að ég verð að setja XP inn aftur nema ég nái að laga þetta :(

Ég er að tengjast webcam hjá öðrum en þegar það er búið og myndin á að sjást, þá komur bara "xxxxxxx has stopped viewing webcam with you" og þetta kemur alltaf :(

Einhverjar hugmyndir, vil ekki missa Vista aftur, get ekki beðið eftir final-num og þetta er alveg nógu stöðugt fyrir mig eins og er til þess að ég vilji nota það áfram :)

Sent: Mið 08. Feb 2006 06:10
af corflame
Get lítið hjálpað þér, hef það fyrir reglu að keyra ekki Windows tilraunaútgáfur á minni aðalvél.

Vil þó benda á að það var ekki Apple sem fundu upp gluggakerfið heldur stálu þeir hugmyndinni frá fyrirtæki sem heitir Xerox.

Gangi þér vel með þetta.

Sent: Mið 08. Feb 2006 09:22
af Birkir
Bjóstu virkilega við einhverju öðru en gluggakerfi á Windows?

Höndlar vélin þín þetta alveg?

Re: msn vandræði á Vista 5270 Beta2

Sent: Mið 08. Feb 2006 09:43
af Stutturdreki
Beatmaster skrifaði:.. en eitt Apple rip-off hjá Microsoft (þeir byrjuðu ekki með "gluggana")
Það var reyndar Xerox sem bjó til fyrsta gluggakerfið og almennt viðurkennt að Apple og Microsoft hafi 'stolið' hugmyndinni þaðan.

En ertu búinn að prófa að setja Messenger upp aftur? Þetta drasl er búið að vera í klessu hjá tengdó og allt í upplausn þar sem systir konunar er búsett í BNA og kvennfólk þarf helst að tala samann í minnst þrjár klst. á dag.. Anyroad.. náði í Messenger install frá MSN og gerði 'repair' og allt virkaði fínt eftir það.

Annars er Vista bara í beta útgáfu svo það er ekki gefið að allt virki sem skyldi :)

Sent: Mið 08. Feb 2006 14:09
af beatmaster
Birkir skrifaði:Bjóstu virkilega við einhverju öðru en gluggakerfi á Windows?

Höndlar vélin þín þetta alveg?

Ég á eftir að uppfæra undirskriftina mína, er að keyra Vista á 2.6 ghz P4 (Northwood HT), 512 mb OCZ Value series minni (2.5.4.4.8) (dragbíturinn, meira á leiðinni), Geforce fx5600 256 MB kort (sem er líklegast ástæðan fyrir því að þetta rúllar eins smooth og það gerir) pínu slow en þó ekki það mikið að það angri mig, sem er alveg magnað því að ég er óþolinmóðasti maður í heimi sem strauja tölvuna mína lágmark 1 sinni í mánuði og keyrir enga vírusvörn og var að fá mini XP útgáfu sem er 125 MB stripped útgáfa af XP pro, bara til þeiss eins að fá sem mesta performance í PC greyið mitt

Annars eru lágmarkskröfur Vista eftirfarandi (samkvæmt pro-networks
Modern CPU (AMD 3000+ or better, Intel Pentium @ 3 GHz or better, Opteron, or similar processor -- whether x86 or x64, single- or dual-core)


DirectX 9 capable Graphics Card or better (256 MB of on-card memory would be desirable)


1 GB of dual-channel DDR, single or dual-channel DDR2, or better


A good quality PSU, to ensure smooth power supply management for this demanding OS (if you have a DirectX 9 capable Graphics Card or better)


A recent flat screen monitor


Ég uppfylli engar af þessum kröfum nema varðandi skjákortið, þannig að þeir sem halda því fram að ekki þurfi stærri GPU en með 128 mb minni þurfa að fara að endurskoða afstðu sína

Sent: Mið 08. Feb 2006 14:16
af beatmaster
halldor skrifaði:Ég vil benda fólki á að horfa á myndina 'The Pirates of Silicon Valley'. Snilldar mynd (frekar skrýtin samt) sem skýrir nokkurnvegin söguna um þetta, ekki að ég kunni hana eitthva, en samt...

Búinn að sjá þessa mynd og misminnti greinilega þaðan og vil biðja Apple afsökunar á að hafa haldið því fram að þeir hafi gert eitthvað gagn í tölvuheiminum :twisted:

Sent: Mið 08. Feb 2006 15:40
af Stebet
Þessi minimum requirements eru tómt bull. Það eru engin final requirements komin fyrir Vista og koma ekki fyrr en rétt fyrir release því stór hluti af optimization ferlinu er eftir.

Vista var bara nýlega að komast í Feature Complete ástand (5270 er ekki feature complete) og er ekki búist við public beta útgáfu sem verður feature complete fyrr en í apríl.

Það er hins vegar að koma nýtt Vista drop núna í enda febrúar sem við beta testerarnir fáum. Sú útgáfa er þó aðallega ætluð fyrir fyrirtæki til þess að prófa mass-deployments innanhúss hjá sér an það er hins vegar búist við því að Sidebarinn verði loksins með í þeirri útgáfu :). Sú útgáfa sem kemur í apríl verður meira "user-oriented" og vonandi feature complete.

5270 er heldur ekki Beta 2 og ekki einu sinni nálægt því heldur er þetta einungis pre-Beta 2. Það er ekki víst að það verði eiginlegt Beta 2 drop heldur verði CTP ætluð fyrirtækjum (febrúar) og annað ætlað almennum notendum (apríl) og síðan er búist fastlega við RC stuttu seinna.

Sent: Mið 08. Feb 2006 22:15
af Veit Ekki
halldor skrifaði:Skemmtilegt í lágmarks kröfunum 'nýlegur flatskjár' :P Af hverju í ósköpunum þarf hann að vera flatur?


Svo að það sé hægt að sjá allt þetta nýja í Windows Vista. :P

Re: msn vandræði á Vista 5270 Beta2

Sent: Mið 08. Feb 2006 22:21
af GuðjónR
Beatmaster skrifaði:Hins vegar get ég ekki séð webcam á msn sem er mjög mikilvægt fyrir mig upp á krakkana mína sem búa í 400 km. fjarlægð þannig að ég verð að setja XP inn aftur nema ég nái að laga þetta :(

lol....krakkana þína? viðurkenndu það bara þú ert að klæmast á netinu...U PERV!!!

Sent: Mið 08. Feb 2006 22:39
af Snorrmund
er að spá hvar ég geti downloadað þessari betu.. er ekki annars hægt að setja hana upp á vmware?

Sent: Fim 09. Feb 2006 11:33
af beatmaster
Stebet skrifaði:Þessi minimum requirements eru tómt bull. Það eru engin final requirements komin fyrir Vista og koma ekki fyrr en rétt fyrir release því stór hluti af optimization ferlinu er eftir.

Vista var bara nýlega að komast í Feature Complete ástand (5270 er ekki feature complete) og er ekki búist við public beta útgáfu sem verður feature complete fyrr en í apríl.

Það er hins vegar að koma nýtt Vista drop núna í enda febrúar sem við beta testerarnir fáum. Sú útgáfa er þó aðallega ætluð fyrir fyrirtæki til þess að prófa mass-deployments innanhúss hjá sér an það er hins vegar búist við því að Sidebarinn verði loksins með í þeirri útgáfu :). Sú útgáfa sem kemur í apríl verður meira "user-oriented" og vonandi feature complete.

5270 er heldur ekki Beta 2 og ekki einu sinni nálægt því heldur er þetta einungis pre-Beta 2. Það er ekki víst að það verði eiginlegt Beta 2 drop heldur verði CTP ætluð fyrirtækjum (febrúar) og annað ætlað almennum notendum (apríl) og síðan er búist fastlega við RC stuttu seinna.

Takk innilega fyrir að senda inn þennann póst sem kenndi mér talsvert meira um Vista :)
beatmaster skrifaði:Annars eru lágmarkskröfur Vista eftirfarandi (samkvæmt [url=http://www.pro-networks.org/forum/forum-80.html&sid=05044f878b449b1a5a6bca50952069e1]pro-networks
[/url]

Setti inn url-ið til að þurfa ekki að útskíra að pro-networks er tölvunörda síða (ekki ósvipuð vaktinni) með 83280 meðlimum sem virðist aðallega vera byggð upp á að fjalla um Longhorn/Vista og Beta testing en nei nei ég treysti frekara einum íslenskum beta testara (sem er greinilega mjög stoltur sem slíkur) til að fræða mig um þetta stýrikerfi :wink: og takk fyrir alla hjálpina með að redda msn-inu hjá mér :(

Sent: Fim 09. Feb 2006 12:02
af Icarus
desirable og needed er alls ekki það sama.

Væri mjög svo desirable að tölvan mín hefði 20GB af vinnsluminni og svona en 1GB er samt alveg nóg.

Sent: Fim 09. Feb 2006 12:10
af zaiLex
recent flat-screen er örugglega útaf HDCP

Sent: Fim 09. Feb 2006 17:24
af CendenZ
vista gengur skítsæmó a einni vél hérna

Sent: Fim 09. Feb 2006 22:37
af andrig
hvar náið þið í þetta beta?

Sent: Mán 13. Feb 2006 11:32
af Stebet
Beatmaster skrifaði:Setti inn url-ið til að þurfa ekki að útskíra að pro-networks er tölvunörda síða (ekki ósvipuð vaktinni) með 83280 meðlimum sem virðist aðallega vera byggð upp á að fjalla um Longhorn/Vista og Beta testing en nei nei ég treysti frekara einum íslenskum beta testara (sem er greinilega mjög stoltur sem slíkur) til að fræða mig um þetta stýrikerfi :wink: og takk fyrir alla hjálpina með að redda msn-inu hjá mér :(


Einu requirementin sem eru komin so far eru DX9 skjákort með held ég 64MB minni ef þú vilt fá Aero Glass (nýja gegnsæja UIið). Önnur requirements koma ekki fyrr en rétt fyrir release þegar optimization ferlinu lýkur :)

MSN reddingin er annað mál og gæti orðið erfitt þar sem um er að ræða Beta að sjálfsögðu ;). Hvernig Webcam er þetta og gastu installað drivernum fyrir það? Ég gat notað Creative Webcamið mitt með Vista 5231 en hef ekki prófað það á 5270.