Ég var eitthvað að fikta í heimatölvunni í gær að reyna að setja upp svona home network (http://computer.howstuffworks.com/home-network.htm) milli heimatölvunnar og fartölvunnar minnar. Ég veit ekki hvort það var einhver séns að þetta myndi virka en samt, maður verður að reyna.
Það gekk allt vel í fartölvunni en þegar ég fór að reyna að breyta heimatölvunni þá kom vandamálið upp. Heimatölvan var nefninlega sett upp hjá fyrirtækinu sem faðir minn vinnur hjá. Hún var því skráð á eitthvað domain hjá þessu fyrirtæki.
Ég breytti svo nafninu á tölvunni og breytti úr domain yfir í workgroup. Þegar ég breytti úr domain yfir í workgroup var ég beðinn um username og password og það dugði að nota bara það sem við notum til að logga okkur í tölvuna.
Eftir þetta var ég svo beðinn um að restarta tölvunni. Þegar ég ætlaði svo að logga mig inn aftur þá kemur bara:
"The system could not log you on. Make sure your User name and domain are correct, then type your password again. Letters in passwords must be typed using the correct case."
Það er btw. Windows XP í tölvunni ef það hjálpar eitthvað.
Ég vona innilega að einhver hérna geti hjálpað því að það eru allir í fjölskyldunni orðnir brjálaðir yfir því að komast ekki í tölvuna.
freako
Get ekki loggað mig inn
-
- Gúrú
- Póstar: 572
- Skráði sig: Mán 28. Okt 2002 22:40
- Reputation: 8
- Staðsetning: 113 Reykjavík
- Staða: Ótengdur
að taka fyrirtækjavél úr domaini er náttúrulega frekar slæmt. Get ekki séð að þú getir sett hana aftur í domain nema vélin sé á vinnustaðarnetinu og það þarf einnig admin aðgang að domaininu sem þú hefur eflaust ekki.
Þú gætir samt að öllum líkindum brotið þér leið með því að gerast admin á workgroup á vélinni (ef þú þarft aftur á móti að koma vélinni aftur á domain þá ertu fucked).
Til þess að "resetta" admin aðganginn þá geturðu keyrt floppy disk. prófaðu að googla "windows pass reset". ATH þetta dugar ekki til að koma þér aftur inn á domain. En þú kemst inn á vélina.