Síða 1 af 1

World of Warcraft

Sent: Sun 05. Feb 2006 18:24
af gutti
ég veit á ekki að vera hér en þetta er samband við netið búin að spila í wow
er forvitna bara hversu margir hafa lent í lagg er að spá að hætta á landsímnum ef þetta heldur áfram svona hjá þeim :twisted: :evil:
gnarr þér vellkomið að læsa eða delete þráðnum

Sent: Sun 05. Feb 2006 19:24
af Pandemic
Sé enga ástæðu að þessum þræði verð hent/læst.
Annars er ég búinn að lenda í svona köflum hjá símanum seinustu daga.
Stundum er netið slow og stundum er það hratt og stundum respondar það alls ekki.

Sent: Sun 05. Feb 2006 19:28
af gutti
miða við þegar er að spila í leikinn þá lýsir þannig að char verða stundum frozinn er með hátt ms í wow ef þetta heldur svona þá segji ég bara bæbæ við siman fer í anna stað
:twisted:

Sent: Sun 05. Feb 2006 19:31
af DoRi-
gutti skrifaði:miða við þegar er að spila í leikinn þá lýsir þannig að char verða stundum frozinn er með hátt ms í wow ef þetta heldur svona þá segji ég bara bæbæ við siman fer í anna stað
:twisted:


guð minn almáttugur,, vandaðu stafsetningu og mælfræði, þetta er skiljanlegt en það er leiðinlegt að lesa þetta

Sent: Sun 05. Feb 2006 20:47
af gumol
Vinur minn sem er WOW sjúklingur var líka að tala um þetta, þetta er víst mjög mikið vandamál og enginn sérstakur vilji hjá símanum til að laga þetta. Hann var að spá í að færa tenginguna sína annað.

Þetta er samt eitthvað sem ég heyrði frá öðrum, prófaðu að hringja í þjónustuverið hjá símanum á morgun og spurja.

Sent: Sun 05. Feb 2006 21:12
af Veit Ekki
DoRi- skrifaði:
gutti skrifaði:miða við þegar er að spila í leikinn þá lýsir þannig að char verða stundum frozinn er með hátt ms í wow ef þetta heldur svona þá segji ég bara bæbæ við siman fer í anna stað
:twisted:


guð minn almáttugur,, vandaðu stafsetningu og mælfræði, þetta er skiljanlegt en það er leiðinlegt að lesa þetta


Held að þetta hafi verið sagt við hann í meirihlutanum af þeim póstum sem hann skrifar en hann virðist aldrei reyna að vanda sig. :roll:

Re: World of Warcraft

Sent: Mán 06. Feb 2006 00:15
af gnarr
gutti skrifaði:
gnarr þér vellkomið að læsa eða delete þráðnum


þetta fer allt að koma hjá þér. Þessi póstur er tildæmis margfalt betri hjá þér en þeir voru fyrir ári síðan. Ég hef fulla trú á því að þetta verði farið að verða þokkanlega ásættanlegt hjá þér eftir nokkra mánuði ;)

Sent: Mán 06. Feb 2006 10:48
af JReykdal
gumol skrifaði:Vinur minn sem er WOW sjúklingur var líka að tala um þetta, þetta er víst mjög mikið vandamál og enginn sérstakur vilji hjá símanum til að laga þetta. Hann var að spá í að færa tenginguna sína annað.

Þetta er samt eitthvað sem ég heyrði frá öðrum, prófaðu að hringja í þjónustuverið hjá símanum á morgun og spurja.


Reyndu að ljúga meira...í alvöru gerðu það.

Sent: Mán 06. Feb 2006 11:17
af gumol
JReykdal skrifaði:Reyndu að ljúga meira...í alvöru gerðu það.

Endilega rökstyddu þetta.

Er það ekki rétt að þetta hefur verið vandamál?
Er það ekki rétt að þegar hringt hefur verið í síman til að spurja um þetta þá sé fátt um svör?
Er það óeðlilegt að túlka það þannig að það sé lítill vilji til að laga þetta?

Fór reyndar á huga núna og sá að á einhverjum c.a. vikugömlum korki á WoW korkasvæðinu á Blizzard áhugamálinu var verið að tala um að þetta hefði verið lagað hjá símanum og að þeir hafi verið að veita amk. sumum góða þjónustu kringum það. Breytir því ekki að það sem ég sagði var satt og engin lygi.

Sent: Mán 06. Feb 2006 11:21
af heidaro
gumol skrifaði:Vinur minn sem er WOW sjúklingur var líka að tala um þetta, þetta er víst mjög mikið vandamál og enginn sérstakur vilji hjá símanum til að laga þetta. Hann var að spá í að færa tenginguna sína annað.

Þetta er samt eitthvað sem ég heyrði frá öðrum, prófaðu að hringja í þjónustuverið hjá símanum á morgun og spurja.


Ég er kominn til Hive nýliði.

Ég var hjá símanum með 5000+ ms og lagspikes. Ég fór til Hive og er með stable 300 - 400ms og enga lagspikes. Núna gef ég skít í landsímann og segi Hive ftw. Held að þetta sé svipað hjá og vodafone, amk er enginn þar að kvarta.

JReykdal skrifaði:Reyndu að ljúga meira...í alvöru gerðu það.


Það kann kannski að vera vilji til að laga þetta en ég er svo beyond caring, þetta er búið að vera svona það lengi að ég hefði getað hugsað mér að skipta úr símanum í bréfdúfur.

Sent: Mán 06. Feb 2006 11:26
af JReykdal
gumol skrifaði:
JReykdal skrifaði:Reyndu að ljúga meira...í alvöru gerðu það.

Endilega rökstyddu þetta.

Er það ekki rétt að þetta hefur verið vandamál?
Er það ekki rétt að þegar hringt hefur verið í síman til að spurja um þetta þá sé fátt um svör?
Er það óeðlilegt að túlka það þannig að það sé lítill vilji til að laga þetta?

Fór reyndar á huga núna og sá að á einhverjum c.a. vikugömlum korki á WoW korkasvæðinu á Blizzard áhugamálinu var verið að tala um að þetta hefði verið lagað hjá símanum og að þeir hafi verið að veita amk. sumum góða þjónustu kringum það. Breytir því ekki að það sem ég sagði var satt og engin lygi.


Vandamál varðandi útlandatenginguna eru þekkt og unnið er að stækkun. Slíkir hlutir taka bara sinn tíma vegna ýmissa þátta innanlands og erlendis (aðallega erlendis).

Þótt þú hafir lent á einhverjum hjá þjónustuverinu sem þekkir ekki alveg til þessara mála (þetta fólk er ráðið til að aðstoða við Internettengingar en ekki hin ýmsu TCP/IP tengd vandamál) þýðir það að ekkert sé verið að gera í málunum?

Það ER verið að skoða þetta. Þetta VERÐUR lagað.

Eins og þú sást á þessum korki þá er unnið í þessu og ástandið mun batna.

Það er samt alltaf áhætt varðandi það að spila tölvuleiki yfir þúsundir kílómetra leið að það eru allt of margir þjónustuaðilar á leiðinni sem þinn ISP hefur engin tök á að stjórna. Það verður alltaf eitthvað lagg og vesen og þá sérstaklega þegar um er að ræða jafn erfiðan aðila og Blizzard.

Sent: Mán 06. Feb 2006 11:34
af heidaro
Hvernig kemur þetta Telia við?

Sent: Mán 06. Feb 2006 11:44
af gumol
JReykdal skrifaði:Þótt þú hafir lent á einhverjum hjá þjónustuverinu sem þekkir ekki alveg til þessara mála (þetta fólk er ráðið til að aðstoða við Internettengingar en ekki hin ýmsu TCP/IP tengd vandamál) þýðir það að ekkert sé verið að gera í málunum?

Hvað á fólk að halda þegar það heyrir ekki neitt frá símanum þótt þeim hafi verið lofað að láta líta á þetta? Annars er það alveg rétt hjá þér að við þekkjum alltof vel vandamál með útlandatengingar, sama hvaða þjónustuaðila við erum hjá.

Svo var það ekki ég sem var í vanda, þori varla að spila þennan leik, en það breytir svosem ekki neinu.

Sent: Mán 06. Feb 2006 13:21
af gumball3000
sko ég held það sé bara eitthvað að íslenska netinu til útlanda ég er líka að lenda í þessu í ölum leikjum sem ég spila :? og ég er með ljósleiðara frá emax :P og ég hef líka heyrt mikið um kvart frá hive notendum. Þannig éveit ekki hvað málið er en þetta er mjög þreytandi og þetta var ekki svona fyrir smá tíma(kannski 2 mán) :roll: ég væri til í að fá að heyra einhverja almennilega(sanna) ástæðu fyrir þessu :!: