Síða 1 af 1

Haiku stýrikerfið

Sent: Þri 17. Sep 2024 18:21
af jonfr1900
Þetta tilraunastýrikerfi virkar. Þetta er reyndar í sýndartölvu í VirtualBox og aðeins 32bita þar sem ég fékk ekki 64bita útgáfuna til þess að virka af einhverjum ástæðum. Kom bara kernel panic.

VirtualBox_Haiku32_15_09_2024_21_00_09.png
VirtualBox_Haiku32_15_09_2024_21_00_09.png (430.78 KiB) Skoðað 1356 sinnum

Re: Haiku stýrikerfið

Sent: Þri 17. Sep 2024 18:25
af brain
Gamla góða BEOS....

Re: Haiku stýrikerfið

Sent: Þri 17. Sep 2024 18:27
af olihar
Ertu með kveikt á virtualization í BIOS? Gæti verið vandamálið á 64bit hja þér.

Re: Haiku stýrikerfið

Sent: Þri 17. Sep 2024 19:48
af drengurola
haiku.png
haiku.png (183.3 KiB) Skoðað 1298 sinnum

Re: Haiku stýrikerfið

Sent: Þri 17. Sep 2024 20:01
af gRIMwORLD
Ég hef prófað þetta stýrikerfi reglulega í gegnum árin.

BeOS var legendary fyrir tæpum 25 árum og gat ræst vélar upp í stýrikerfi á ljóshraða miðað við annað sem var til á þeim tíma.
Því miður eftir mikla flækju fyrirtækjakaupa og sölu þá endaði BeOS hjá Palm sem svo jarðaði kóðann. Haiku er ekki BeOS, kóðinn af BeOS er closed source, en Haiku hefur reynt að endurskrifa stýrikerfið frá grunni með sömu princip í huga.

https://www.haiku-os.org/

https://en.wikipedia.org/wiki/BeOS

Re: Haiku stýrikerfið

Sent: Þri 17. Sep 2024 20:21
af gRIMwORLD
Til að keyra í 64bit í VirtualBox

Screenshot 2024-09-17 201137.png
Screenshot 2024-09-17 201137.png (39.02 KiB) Skoðað 1266 sinnum

Re: Haiku stýrikerfið

Sent: Þri 17. Sep 2024 20:56
af jonfr1900
olihar skrifaði:Ertu með kveikt á virtualization í BIOS? Gæti verið vandamálið á 64bit hja þér.

Nei. Slökkti á öllu slíku í Windows 11 til að ná fram réttum afköstum í VirtualBox. Mig grunar að þetta sé kannski galli í Haiku 64bita útgáfunni. Gæti einnig verið galli í VirtualBox þar sem þetta er ekki stutt þar.

Re: Haiku stýrikerfið

Sent: Mið 18. Sep 2024 08:29
af gRIMwORLD
jonfr1900 skrifaði:

Ekki galli í Haiku, ég bókstaflega skellti upp Virtualbox og 64bit Haiku til að prófa aftur og flaug inn. Það kom 64bit kernel panic villa með default VM stillingunum en virkaði með því að stilla Version í Other/Unknown (64bit) :happy

Re: Haiku stýrikerfið

Sent: Mið 18. Sep 2024 09:49
af worghal
hver er ágóði þess að nota þetta stýrikerfi og hvað væri usecase þess frammyfir önnur OS?

Re: Haiku stýrikerfið

Sent: Mið 18. Sep 2024 15:18
af drengurola
worghal skrifaði:hver er ágóði þess að nota þetta stýrikerfi og hvað væri usecase þess frammyfir önnur OS?

Það er afskaplega létt í keyrslu, er samt nútímalegt að mörgu leyti. Einfaldleikinn er mikill og það er bara einn notandi. Notendaviðmótið er býsna sniðugt og minnir mig á RiscOS, en sjálfur hef ég aldrei notað MacOS eða BeOS.

Ég hef prófað það öðru hverju síðustu árin (áratugina?) og hef gaman af því að sjá hvað er að frétta. Usecase-ið er í sjálfu sér held ég fyrst og fremst grínið, en ég sæi fyrir mér að sem stýrikerfi á heimilistölvu fyrir afa eða eitthvað væri þetta dálítið sniðugt.

Re: Haiku stýrikerfið

Sent: Mið 18. Sep 2024 16:34
af jonfr1900
gRIMwORLD skrifaði:
jonfr1900 skrifaði:
olihar skrifaði:Ertu með kveikt á virtualization í BIOS? Gæti verið vandamálið á 64bit hja þér.

Nei. Slökkti á öllu slíku í Windows 11 til að ná fram réttum afköstum í VirtualBox. Mig grunar að þetta sé kannski galli í Haiku 64bita útgáfunni. Gæti einnig verið galli í VirtualBox þar sem þetta er ekki stutt þar.

Ekki galli í Haiku, ég bókstaflega skellti upp Virtualbox og 64bit Haiku til að prófa aftur og flaug inn. Það kom 64bit kernel panic villa með default VM stillingunum en virkaði með því að stilla Version í Other/Unknown (64bit) :happy

Ég náði að setja upp 64 bita útgáfuna en það fraus. Kannski er þetta örgjörvinn sem Haiku ræður ekki við. Þetta er tilraunastýrikerfi og í betu 5. Þannig að ég er ekki að eyða of miklum tíma í að reyna finna út hvað er ekki að virka hérna.

Re: Haiku stýrikerfið

Sent: Mið 18. Sep 2024 21:59
af gRIMwORLD
drengurola skrifaði:
worghal skrifaði:hver er ágóði þess að nota þetta stýrikerfi og hvað væri usecase þess frammyfir önnur OS?

Það er afskaplega létt í keyrslu, er samt nútímalegt að mörgu leyti. Einfaldleikinn er mikill og það er bara einn notandi. Notendaviðmótið er býsna sniðugt og minnir mig á RiscOS, en sjálfur hef ég aldrei notað MacOS eða BeOS.

Ég hef prófað það öðru hverju síðustu árin (áratugina?) og hef gaman af því að sjá hvað er að frétta. Usecase-ið er í sjálfu sér held ég fyrst og fremst grínið, en ég sæi fyrir mér að sem stýrikerfi á heimilistölvu fyrir afa eða eitthvað væri þetta dálítið sniðugt.

Merkilegt nokk þá er á wikipediasíðunni minnst á að Tascam SX1 studio græja notaði vel breytta útgáfu af BeOS sem stýrikerfi og bootaði beint upp í application viðmótið. Þetta var víst vinsælt á niche markaði í music production á þeim tíma. Hver veit hvernig þetta stýrikerfi væri í dag ef haldið hefði verið áfram með þróun. Haiku er ekki BeOS en byggt upp til að vera BeOS compatible/clone án þess að nota original source kóðann.

Re: Haiku stýrikerfið

Sent: Fös 20. Sep 2024 13:13
af Saber
Á hverju er Haiku byggt? Er þetta Linux, Unix eða skrifað alveg frá grunni?

Re: Haiku stýrikerfið

Sent: Fös 20. Sep 2024 16:12
af kornelius
Saber skrifaði:Á hverju er Haiku byggt? Er þetta Linux, Unix eða skrifað alveg frá grunni?

https://en.wikipedia.org/wiki/Haiku_(operating_system)

K.