Síða 1 af 1

Linksys PLE200 powerline Adapter vandamál

Sent: Þri 03. Sep 2024 15:39
af Selurinn
Sælir,

Ég vil fá eldsnöggt álit þar sem ég er engin expert á svona net yfir rafmagns gæja en þá sem ég hef notað fyrir utan þennan hefur aldrei verið vesen.
Þetta var fyrsta týpan sem ég keypti og það kom aldrei ljós á annað unitið þegar ég tengdi það í rafmagn sama hvar ég prófaði að tengja það.

Ég fór með þetta síðan aftur í Tölvutek þar sem ég keypti þetta og þeir sögðu ekkert vera að þessu og var rukkaður um skoðunargjald.

Svo ákvað ég núna sirka rúmlega áratugi síðan að gefa þessu uniti annan séns og fór eftir bæklingin og öllu til þess að reyna að fá þetta til að virka.

Ættu samt ekki unitin að kveikja á sér, þ.e.a.s LED ljósið á Power ætti alltaf að fara í gang sama hvort þetta sé tengt eða ekki.
Mitt álit er bara að annað unitið er steinlega dautt og ekki veit ég afhverju ég fékk þá skýringu á þeim tíma að það væri ekkert að þessu, hefði að sjálfsögðu átt að láta þá sýna mér það en ég asnaðist til að gera það ekki.

Set hérna tvær myndir til að sýna fram á að það skiptir engu máli hvar þetta er tengt, annar gæjinn einfaldlega kveikir aldrei á sér.

Er ekki óhætt að segja að annar gæjinn sé bara dauður og þetta á einfaldlega bara að fara í ruslið?

Mynd
Mynd

Re: Linksys PLE200 powerline Adapter vandamál

Sent: Fim 05. Sep 2024 11:06
af Squinchy
Beiiiiint í ruslið

Re: Linksys PLE200 powerline Adapter vandamál

Sent: Fim 05. Sep 2024 11:21
af olihar
Net yfir rafmagn er algjör dauði.

Re: Linksys PLE200 powerline Adapter vandamál

Sent: Fim 05. Sep 2024 21:22
af EinnNetturGaur
Beint í ruslið með þetta.

Re: Linksys PLE200 powerline Adapter vandamál

Sent: Fim 05. Sep 2024 22:26
af Sinnumtveir
olihar skrifaði:Net yfir rafmagn er algjör dauði.


Nei, þetta er of langt gengið. Sumt af þessu dóti sérstaklega það sem er í nýrri kantinum getur virkað alveg ljómandi vel.
Ég á slatta af svona græjum og áreiðanleiki og latency hefur batnað stórlega með tímanum.

En jú, þetta er ekki alltaf patent lausn. Vandræði með gamlar 200Mbit græjur? Ekki eyða tíma í það.