Síða 1 af 2

þráðlaust net dettur út mínum vélum

Sent: Mið 11. Jan 2006 12:36
af Mazi!
sko þannig standa málin að netið er alltaf að detta út hjá mér eða oft mér dettur í hug að rouderinn sé eitthvað að fjandast vegna þess að netið dettur af öllum þráðlausu tölvunum en samt ekki snúru tengdu tölvunum hvað getur verið að?

er með 2 wireless tölvur stundum 3
og 2 snúru tengdar

Sent: Mið 11. Jan 2006 17:18
af Stutturdreki
Ertu nokkuð með Linksys wag54g?

Sent: Mið 11. Jan 2006 22:37
af Mazi!
nei bara einhvern ógeðslegan sagem router

Sent: Fim 12. Jan 2006 09:36
af Stutturdreki
Ok.. þetta er bara algengt vandamál með Linksys WAG54G.

Dettur þráðlausa netið allstaðar út á sama tíma? Þ.e. í öllum tölvunum á þráðlausa netinu. Getur prófað að skipta um channel.

Annars er þrauðlaust net algert drasl, alltof mikið sem getur truflað það :)

Sent: Fim 12. Jan 2006 12:25
af Andri Fannar
Ég verð að vera á móti því StutturDreki.

Sent: Fim 12. Jan 2006 13:27
af gnarr
ég er sammála drekanum.

Þráðlaus net eru total crap!

Ég var með tölvuna mín ekki lengra en 10metra frá routernum, var alltaf í low, og datt út stundum. Enginn málmur eða steinveggir á milli.

Sent: Fim 12. Jan 2006 14:06
af DoRi-
sammála gnarr og drekanum, er í li´tilli íbúð og það er alltaf í low i´10-15 m færi

Sent: Fim 12. Jan 2006 14:19
af Andri Fannar
Iss, er svona 20m frá routernum og signalið er excellent

Sent: Fim 12. Jan 2006 14:33
af zream
Var 1 hæð og mörg herbergi á milli mín og routersins og ég var samt að ná ágætu sambandi (ekki excellent).
En þegar ég er á hinni hæðinni þótt það séu 1 stór veggur og 2 herbergi fæ ég Good.
Router frá HIVE (Man ekki hvað hann heitir, enda ekki heima.

Sent: Fim 12. Jan 2006 14:48
af gnarr
Zyxel HW660 .. það er líka einn besti consumer router sem hefu rnokkurntíman verið gerður.

Ég setti eitt stikki þannig á gistiheimili sem ég sé um þráðlausa netið á. ég hef ekkert þurft að sjá um þráðlausa netið þar síðan í september.. þrátt fyrir að það séu allavega 10 notendur stanslaust.

Sent: Fim 12. Jan 2006 15:34
af Stutturdreki
Sko, gæði þráðlausra neta er ekki bara hægt að mæla í gæðunum á merkinu.

- Þráðlaus net eru bara ekki nógu örugg, ef einhverjum langar inn á þráðlausa netið þitt þá getur hann það. Ekkert sem þú getur gert til að koma í veg fyrir það nema kannski helst að gera það óaðgengilegt með fjarlægðar takmörkunum.

- Öfugt við routað snúru net, þar sem allar tölvur á netinu hafa td. 100Mb tenginu sína á milli, deila allar tölvur á þráðlausa netinu bandvíddinni. Er kannski allt í lagi fyrir 10 notendur sem eru að browsa netið með 1Mb internet tenginu en svakalegur flöskuháls fyrir flest all annað.

- Alltof margt sem truflar þráðlausar sendingar.

Annars er öllum algerlega frjálst að hafa aðrar skoðanir á þessu en ég :) Og ekki gleyma upphaflega vandamálinu hjá maro

Sent: Fim 12. Jan 2006 18:03
af CraZy
skil ekki hvað þið eruð að hvarta, jújú þráðlaust net er crapp ef maður er með borðtölvu, en bráðnauðsinlegt ef maður er með lappa, annars þá ætti fólk virkilega að læsa routerunum sínum, var einhvern tíman í rvk og tölvuna vantadi VLC til að spila dvd, keyrði niður þarna hjá Mcdonalds, 32 þráðlausnet og þar af 12 ólæst :?
svo má með ganni geta að það eru 2 þráðlaus net hjá Staðaskála, bæði ólæst..vildi bara share-a

Sent: Fös 13. Jan 2006 10:30
af Stutturdreki
Það er bara ekki nóg að læsa routernum :)

Ég nota þráðlaust net heima fyrir lappann minn en það er samt crapp.

Sent: Fös 13. Jan 2006 13:25
af CraZy
þetta var meira svona dæmisaga sem kemur málinu ekkert við...

Sent: Fös 13. Jan 2006 14:21
af Vilezhout
Þráðlaust net er auðvitað frábært ef menn eru með fartölvu inná heimilinu

sjálfur t.d. spila ég alla tónlist og kvikmyndir af borðvélini í gegnum þráðlausa netið

netið dregur svo útum allt húsið

Það skiptir líka miklu máli hvernig netkort menn eru með

sjálfur var ég með planet pmcia þráðlaust netkort og var í sífelldu veseni með netið heima og í skólanum

svo komst ég yfir thompson netkort og prófaði það og allt í góðu lagi eftir það

er búinn að setja thompson netkort í allar þrjár ferðavélarnar hérna heima og af þeim eru ein nýleg hp og ein nýleg ibm vél sem áttu í þessum sömu vandræðum

Sent: Fös 13. Jan 2006 14:46
af Andri Fannar
Ég er með 2 Planet PCI kort, bæði virka þau mjög vel, svo er ég með lappa með INTEL PRO 2200bg kortinu og ég streama mp3, tónlist og allt það af borðvélinni...

Sent: Lau 14. Jan 2006 02:55
af Rusty
Stutturdreki skrifaði:- Þráðlaus net eru bara ekki nógu örugg, ef einhverjum langar inn á þráðlausa netið þitt þá getur hann það. Ekkert sem þú getur gert til að koma í veg fyrir það nema kannski helst að gera það óaðgengilegt með fjarlægðar takmörkunum.

Bíddu, er ekki alveg hægt að læsa þessu með t.d. WEP lykli, rétt nafn, ákveðnu lykilorði inn á hann, og kannski ákveðin tíma sem tölvur hafa til að skrá sig?

Er þá enn eitthvað auðvelt að komast inn?

Sent: Lau 14. Jan 2006 02:57
af Vilezhout
Það er frekar spurning um hve notendeavænnt þetta á að vera

Sent: Lau 14. Jan 2006 08:55
af Mazi!
Stutturdreki skrifaði:Ok.. þetta er bara algengt vandamál með Linksys WAG54G.

Dettur þráðlausa netið allstaðar út á sama tíma? Þ.e. í öllum tölvunum á þráðlausa netinu. Getur prófað að skipta um channel.

Annars er þrauðlaust net algert drasl, alltof mikið sem getur truflað það :)


ok hvernig skipti ég um channel?.

ps: er með wireless á öllu tölvu ruslinu minu
útaf því að pabbi hatar snúrur
:roll:

Sent: Lau 14. Jan 2006 13:56
af Stutturdreki
maro skrifaði:ok hvernig skipti ég um channel?.

Eh.. einhverstaðar í stillingum á þráðlausa netinu í Routernum? Þekki ekki þennann Segam. Hjá mér heitir það einfaldlega "Wireless Channel" undir "Wireless" -> "Basic Wireless Settings" og tekur gildi frá 1 til 13, en ég er með Linksys WAG54G.. sem hefur því miður verið algerlega til friðs síðan ég ákvað að fá mér Zylex 660 næst þegar Linsksysinn yrði með vesen..

Það hljóta að vera einhverjar stillingar síður fyrir þráðlausa netið hjá þér og þar undir ætti að vera eitthvað 'channel' thingy.

Sent: Lau 14. Jan 2006 14:20
af machinehead
Ég næ Excellent sambandi út um alla íbúð, enda er ég með acer lappa :D

Sent: Lau 14. Jan 2006 17:30
af Rusty
maro skrifaði:
Stutturdreki skrifaði:Ok.. þetta er bara algengt vandamál með Linksys WAG54G.

Dettur þráðlausa netið allstaðar út á sama tíma? Þ.e. í öllum tölvunum á þráðlausa netinu. Getur prófað að skipta um channel.

Annars er þrauðlaust net algert drasl, alltof mikið sem getur truflað það :)


ok hvernig skipti ég um channel?.

ps: er með wireless á öllu tölvu ruslinu minu
útaf því að pabbi hatar snúrur
:roll:

Aldrei láta svoleiðis fólk vita að þráðlaust sé í boði... :roll:

Sent: Þri 24. Jan 2006 13:23
af Mazi!
Rusty skrifaði:
maro skrifaði:
Stutturdreki skrifaði:Ok.. þetta er bara algengt vandamál með Linksys WAG54G.

Dettur þráðlausa netið allstaðar út á sama tíma? Þ.e. í öllum tölvunum á þráðlausa netinu. Getur prófað að skipta um channel.

Annars er þrauðlaust net algert drasl, alltof mikið sem getur truflað það :)


ok hvernig skipti ég um channel?.

ps: er með wireless á öllu tölvu ruslinu minu
útaf því að pabbi hatar snúrur
:roll:

Aldrei láta svoleiðis fólk vita að þráðlaust sé í boði... :roll:


hahaha já.
hann vill þráðlausar rafmagnsnúrur líka úff eins gott að það sé ekki til :cry:

Sent: Þri 24. Jan 2006 18:44
af natti
Stutturdreki skrifaði: Öfugt við routað snúru net, þar sem allar tölvur á netinu hafa td. 100Mb tenginu sína á milli, deila allar tölvur á þráðlausa netinu bandvíddinni. Er kannski allt í lagi fyrir 10 notendur sem eru að browsa netið með 1Mb internet tenginu en svakalegur flöskuháls fyrir flest all annað.

Mér finnst þetta einmitt mjög skondið.
Sama fólk sem brjálast ef það lendir á 10mbit sviss, vill alltaf vera á 100mb, er á móti hubbum, vill helst gigabit svissa útum allt... notar þráðlaust net til þess að vera "cool" þó það sé möguleiki á tengil við hliðin á tölvunni.




CraZy skrifaði:jújú þráðlaust net er crapp ef maður er með borðtölvu,

Afhverju er þráðlaust net e-ð meira crap ef maður er með borðtölvu?
Þráðlaus kort eru reyndar bara nokkuð vinsæl í borðtölvur til þess að komast hjá því að leggja snúrur á milli herbergja.
Oftar en ekki er router bara settur hjá símanum/einhvernstaðar miðsvæðis og þráðlausa netið á að dekka stofuna (fyrir þá með laptop) og e-ð herbergi sem "krakkinn" er með borðvél.