Síða 1 af 1

Þráðlausa netið drífur ekki inn til mín!!!!

Sent: Fim 05. Jan 2006 23:25
af Jokull
Ok ég var að kaupa mér fartölvu, en svo vill til að *ljótt orð* þráðlausa netið drífur ekki inn til mín.
Er hægt að kaupa einhver svona "booster" á styrkinn á sendingunni frá router *ljótt orð*. Er ekki að fýla það að geta ekki verið á netinu inni hjá mér.
Og nei það er víst ekki inn í myndinni að færa routerinn, er með router frá ogvodafone Zyxel 660 series (ef það breytir einhverju)
Held svosem að þið hafið enginn svör við þessu, líður bara betur að deila mínum kvölum með ykkur elskurnar.

EDIT: og btw þá er herbergið mitt eini staðurinn í húsinu sem netið virkar ekki fínt í (evil masterplan?)

Sent: Fim 05. Jan 2006 23:38
af mjamja
ég held að það eina sem að þú getur gert er að færa routerinn(veit að þú villt það ekki)..... btw hvað er herbergi þitt eiginlega langt frá routernum??

Sent: Fös 06. Jan 2006 00:15
af arnarj
já þú getur keypt repeater.

sbr.
http://www.computer.is/vorur/4624

Hérna er hann reyndar "out of stock" en ég hef séð þetta í mörgum verslunum, rúllaðu bara gegnum helstu vefsíður helstu tölvuverslana og þú finnur svona.

Sent: Fös 06. Jan 2006 09:14
af gnarr
arnarj skrifaði:já þú getur keypt repeater.

sbr.
http://www.computer.is/vorur/4624

Hérna er hann reyndar "out of stock" en ég hef séð þetta í mörgum verslunum, rúllaðu bara gegnum helstu vefsíður helstu tölvuverslana og þú finnur svona.


Virkar eingöngu með WAP54G, WRT54G og WRT54GS frá Linksys

Sent: Fös 06. Jan 2006 09:16
af Mazi!
eða bara taka gamla macintos nammi dollu og búa til loftnet :lol:

Sent: Fös 06. Jan 2006 15:17
af Rusty
maro skrifaði:eða bara taka gamla macintos nammi dollu og búa til loftnet :lol:
verður það að vera gömul?

Sent: Fös 06. Jan 2006 16:06
af arnifa
er til svona repeater fyrir Planet ADW-4100 ?

Sent: Fös 06. Jan 2006 17:03
af tms
maro skrifaði:eða bara taka gamla macintos nammi dollu og búa til loftnet :lol:

Hefur macintosh eitthvað fram yfir aðrar lausnir eða tókstu bara svona til orða? :lol: Hef séð gerð svona "bunny ears" á loftnet á AP til að fá semi-directional loftnet en aldrei heyrt um macintosh :P

Sent: Lau 07. Jan 2006 02:30
af Zaphod
Keyptu þér bara Access point og stilltu hann á repeater mode t.d Planet WAP-4033 eða WAP 4000 fæst að ég held í tölvulistanum . er að ég held meira að segja ódýrari en svona repeater .