Síða 1 af 1

Torrent og Nethraði(surf)

Sent: Þri 27. Des 2005 23:09
af Geek
Sælir..

Þannig er að ég hef aðeins verið að reyna að nýta mér torrent en þannig vill til að um leið og það er einhver traffík komin inn á það þá virðist ómögulegt að surfa á netinu eða nota browserinn. Ég er samt langt frá því að vera kominn yfir takmörk tengingarinnar með t.d 100 kb í download og 40 kbs í upload(6 mb hjá símanum). Tek t.d ekki eftir þessu með DC forrit.

Ég hef verið laus við þetta áður en svo fór tölvan að taka upp á þessu .. Er búinn að reyna nokkra clienta og virðist vera sama vandmálið með þá alla , Azeurus, bitcomet,bittorrent.

Ég er búinn að prufa ótrúlegustu port(21,6881,15000) en það virðist ekki breyta neinu. Búinn að prufa format og fleira. Ég skipti reyndar um netkort fyrir ekkert svo löngu sökum þess að onboard netkortið datt alltaf út. Þetta vandamál var komið til sögunnar áður en ég skipti um netkortið þannig að ég tel mjög líklegt að það sé ekki sökudólgurinn. Það virðist ekki vera hægt að surfa á hinni tölvunni heldur þegar torrentið er í gangi.

Vonandi getið þið ágætu spjallverjar hjálpað mér að finna lausnina á þessu vandamáli eða miðlað reynslu ykkar ef þið hafið lent í svipuðu.

Með fyrirfram þökkum...
Jón

Sent: Mið 28. Des 2005 02:38
af corflame
Heyrist þetta bara vera dæmigert fyrir ADSL tengingu. Málið er að þegar það er komin einhver umferð í aðra áttina, þá skerðir það hraðann í hina áttina verulega.

Sent: Mið 28. Des 2005 02:43
af CraZy
hrjáir mig ekki og ég er oftast að dl-a á yfir 300 og uppa á 70 :?
er með sömu tenginu og hann

Sent: Mið 28. Des 2005 05:12
af HemmiR
ég hef ekki tekið eftir þessu.
og ég hef notad 3 forrit i gegnum tíðina fyrst ABC,svo Azureus , svo Bitcomet og nota það enðá enda best að minu mati.
ég er með sömu tengingu og þú væri þá ekki bara ágætt að tala við simann um þetta bögg?

Sent: Mið 28. Des 2005 09:43
af Amything
Ef þú ert að nota Azerues, fiktaðu í Transfer í Options.

Þá sérstaklega Max upload speed og Maximum number of connections eða sambærilegu í því forriti sem þú notar.

Sent: Mið 28. Des 2005 15:51
af Geek
Þakka skjót svör...

Ég virðist vera kominn með lausn á málinu .. Það er víst routerinn sem var að vesenast eitthvað .. Prufaði annan router og þetta hefur skot gengið eftir það. Finnst það samt hálf skrítið þar sem að ekkert hefur verið átt við gamla routerinn.. Hann þykir kannski vera orðinn of gamall fyrir þessar nýju tengingar(2-3 ára linksys).

Kveðja
Jón

Sent: Mið 28. Des 2005 16:12
af Amything
Ég held að sumir routerar séu að skíta á sig só to speak með nokkrum torrentum í gangi og kanski 80 connection á hvern, hann er þá tengdur hundruðum IP í einu og bara flippar út. Þess vegna mælti ég með að fikta "max connections".

Sent: Mið 28. Des 2005 16:45
af mjamja
prófaðu utorrent, annars finn ég spyware lykt af þessu

Sent: Mið 28. Des 2005 17:27
af Fumbler
mjamja skrifaði:prófaðu utorrent, annars finn ég spyware lykt af þessu


цTorrent er snildar torrent forrit, bara ein exe skrá, notar bara 2mb í RAM með fullt af torent í gangi. ég skipti BitComet út fyrir það, það noatði yfir 150mb í ram.

Speedtouch180 og Repeater

Sent: Mið 28. Des 2005 21:03
af Geek
Úff... Eftir að hafa skipt út routernum þá er greinilegt að drægnin á þráðlausa netinu í honum er ekki jafn góð og á þeim gamla sem veldur því að netið í annari tölvunni dettur alltaf út. Ég er með Speedtouch180 wireless ethernet bridge í höndunum sem ég ætlaði að nota til þess að framlengja drægninni með "Repeater" en ....

Þrátt fyrir að vera búinn að setja þetta allt upp þá fæ ég ekkert connection í gegn. Fæ alltaf skilaboðin limited or no connectivity. SSID nafnið er það sama á routernum og punktinum eins og talað var um að ætti að gera og wep einnig. Ég er búinn að velja punktinn sem wds device í gegnum routerinn(speedtouch 585). Þeir eru á sama channeli einnig.

Sambandið í herberginu þar sem tölvan er hefur alltaf verið slæmt yfirleitt very low eða low. Eftir að ég setti upp sendinn fæ ég yfirleitt good eða excellent sem bendir til þess að sendirinn sem slíkur nái að magna upp sambandið en eftir að ég skellti punktinum á milli fæ ég alltaf skilaboðin limited or no connectivity á tölvunni. Prufaði líka fartölvuna og virðist sem að sendingarsvæðið í kringum "magnarann" virki ekki til þess að tengjast netinu sjálfu fæ alltaf signal en netið virkar aldrei .. Svo þegar ég fer út fyrir svæðið og nálgast þráðlausa netið á routernum skotvirkar það.. Virðist sem að "netsambandið" stoppi í punktinum.

Einhver sem kannast við slíkt vandamál?

Með fyrirfram þökkum
Kveðja
Jón

Sent: Sun 01. Jan 2006 20:33
af Viktor
Getur einhver sent mér invæt í torrent?

Sent: Sun 01. Jan 2006 20:34
af Veit Ekki
Viktor skrifaði:Getur einhver sent mér invæt í torrent?


Það er nú heill þráður um þetta í Koníakstofunni.

http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?t=8854